16.03.1971
Neðri deild: 62. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 277 í D-deild Alþingistíðinda. (3704)
16. mál, mengun frá álbræðslunni í Straumi
Jón Skaftason:
Herra forseti. Góðir hlustendur. Efni þeirrar þáltill., sem hér er til umr., er að skora á ríkisstj. að mæla svo fyrir, að tafarlaust verði komið upp fullkomnum hreinsitækjum í álbræðslunni við Straumsvík til þess að takmarka mengun svo sem kostur er. Till. gefur beint tilefni til þess að ræða almennt um það, sem nefnt hefur verið ógnir nútímaþjóðfélags, en með því er átt við þá umhverfiseyðingu, sem er fylgifiskur nútímabúskapar og atvinnuhátta, og hvernig Íslendingar ætla að mæta þeim vanda í sínu landi. Auk þess mun ég víkja að álbræðslunni í Straumsvík sérstaklega.
Helzta einkenni þeirra tíma, sem við lifum á, er hraði breytinganna í þjóðfélögunum fyrir áhrif nýrrar tækni og vísinda. Framleiðsluhættir og framleiðslugreinar eru sífelldum breytingum undirorpnar. Á síðustu 30 árum hefur þannig verið framleitt meira magn svo nefndra neyzlugæða heldur en samtals frá upphafi mannkyns til þess tíma. Þessi framleiðsla er undirstaðan að þeim lífskjörum, sem milljónir manna njóta víða um heim og vilja halda áfram að njóta.
Það eru aðeins nokkur ár síðan ráðamenn þjóðanna og almenningur varð sér þess meðvitandi, að þessari þróun fylgja líka ókostir, þ.e. umhverfiseyðing í víðtækri merkingu, svo sem skemmdir á landi, vatni, í lofti og á lífi í sjó, vötnum og á landi. Heildaráhrifin eru þau, að gripið hefur verið inn í hringrás náttúrunnar á þann hátt, að allt líf á jörðinni getur verið í voða, sé ekki snúizt til varnar gegn vandanum. Sem betur fer gefa vísindi og tækni vopn í hendur gegn vandanum, ef mennirnir bara vilja nota þau og greiða þau því verði, sem nauðsynlegt er. Ég fæ ekki séð annað en menn neyðist til þess, hvort sem þeim líkar betur eða verr.
Jarðarbúar eru nú taldir vera um 3.7 milljarðar, og er talið, að þeim fjölgi um helming á næstu 35 árum. En einmitt tilvist mannsins á jörðinni með þeirri starfsemi, er honum óhjákvæmilega fylgir, er helzti mengunarvaldurinn. Í rökréttu framhaldi þessara staðreynda er ljóst, hvílík nauðsyn það er öllum þjóðum að marka ákveðna stefnu til þess að koma í veg fyrir mengun svo sem mögulegt er. Fjöldi alþjóðlegra stofnana um allan heim glímir nú við þetta vandamál sem forgangsverkefni. Sameinuðu þjóðirnar munu á næsta ári efna til alþjóðlegrar ráðstefnu í Stokkhólmi um umhverfisvandamálin í þeim tilgangi að fá samþykktar alþjóðlegar reglur gegn umhverfiseyðingu. Bandaríkjastjórn ver nú meira en 10 billjónum dala árlega í baráttunni gegn umhverfiseyðingu og hefur fengið í lög settar afar strangar reglur gegn umhverfiseyðandi starfsemi, og beitir hún í baráttunni háum sektarviðurlögum. Þetta sýnir okkur vel, hversu áríðandi og um leið miklu ódýrara er að reyna að koma strax í upphafi í veg fyrir skaðann af ákveðinni starfsemi heldur en þurfa að bæta hann, eftir að hann er orðinn.
Það er með hliðsjón af þessari sáru reynslu ýmissa þjóða, sem Íslendingum ber að taka þessi mál til alvarlegrar athugunar nú og marka ákveðna stefnu um umhverfisvernd, er miði að því að koma í veg fyrir umhverfiseyðingu. Fráleitt er, að slíkt verði gert með því að standa gegn allri meiri háttar atvinnuuppbyggingu í landinu, enda er vel hægt að sameina bæði markmiðin, ef vel er á málum haldið. Ég fagna því þeirri umr., sem hér fer fram, og tel aðalgildi hennar felast í því tækifæri, sem gefst til þess að ræða vandamálið af raunsæi og víðsýni í áheyrn alþjóðar.
Íslendingar eru skammt á veg komnir í iðnþróun. Engin spurning er í mínum huga um, að okkur beri að stefna að iðnaðaruppbyggingu í landinu. smárri og stórri. Stóriðjufyrirtæki eru hér enn þá fá, en einmitt í sambandi við rekstur þeirra er mesta hættan af umhverfiseyðingu. Álbræðslan í Straumsvík, áburðarverksmiðjan, sementsverksmiðjan og kísilgúrverksmiðjan eru dæmi um stóriðjufyrirtæki í landinu. Þeim er það öllum sameiginlegt að hafa engar eða litlar fyrirbyggjandi varnir gegn umhverfiseyðingu af völdum eiturefna í reyk og frárennsli. En þetta gildir ekki einasta um stóriðjuþáttinn í atvinnustarfsemi okkar Íslendinga. Af umr., sem fram fóru á ráðstefnu um mengun dagana 27. og 28. febr. s.l., varð mér fyrst verulega ljóst, hversu eftirlit Íslendinga og fyrirbyggjandi aðgerðir gegn mengun eru í afar bágbornu ástandi, lagafyrirmæli fá og framkvæmdir og eftirlit í sundurlausu kerfi. Segja má, að flest sé nefnt í þeim efnum, ef getið er um starfsemi heilbrigðiseftirlitsins, t.d. við rannsóknir á drykkjarvatni og mjólk, og eftirlit með flúor frá álverksmiðjunni og frá Heklugosinu. Hér er því stórt verk að vinna. Mikilvægast er að mínu viti að móta nú þegar ákveðna stefnu með löggjöf um umhverfisvernd, og hefur formaður Framsfl., Ólafur Jóhannesson prófessor, flutt þáltill. um það efni. Erlendis frá er góðar fyrirmyndir að finna um slíka löggjöf, sem mjög má styðjast við. Kæmi þá helzt til greina löggjöf Svía um þessi efni, sem er mjög fullkomin og nær til allra þátta umhverfisverndar. Framkvæmd laganna er í höndum einnar yfirstjórnar, Statens Naturvårdsverk, sem svipar um margt, að því er tekur til valdsviðsins, til rn.
Við Íslendingar búum við þá sérstöðu enn þá, að iðnaður er skammt á veg kominn og hefur því valdið litlum umhverfisskemmdum enn. Við getum því hagað iðnvæðingunni á þann veg, sem minnstum skemmdum veldur. Við þurfum að velja úr þær greinar iðnaðar, er við viljum leggja mesta áherzlu á, og við eigum að velja framleiðsluaðferðirnar líka. Starfsemi fyrirtækis, er veldur umhverfiseyðingu, veldur öðrum þjóðfélagsborgurum tjóni í töpuðum verðmætum. Sum verða auðveldlega metin til fjár, t.d. skemmdir á jarðvegi, er leiða til, að hætta verður búskap. Önnur er erfitt að meta til fjár eins og spillingu andrúmslofts, hávaða og skemmdir á útsýni í okkar fagra landi, sem allir útlendingar, er hingað koma, dásama. Samkv. algildum lagareglum á sá, er tjóni veldur öðrum, að bæta það. Bezt er fyrir alla, er til lengdar lætur, og ekki sízt skaðvaldinn, að taka enga áhættu í þeim efnum, og það tel ég vel eiga við í því sérstaka tilfelli, sem hér er rætt um og ég skal nú víkja að.
Þann 1. okt. s.l. birtist í Tímanum grg. frá Ingólfi Davíðssyni grasafræðingi um niðurstöður af athugunum hans á gróðri í Hafnarfirði og í Straumsvík, en til þeirra hafði hann verið sérstaklega kvaddur af aðilum á þessu svæði. Þar segir m.a., með leyfi forseta:
„Síðari hluta ágúst fór undirritaður nokkrar ferðir til Hafnarfjarðar að skoða garða. Trjágróðurinn var óvenjuvesæll að sjá, einkum reyniviðartegundir, en einnig birki, víðir, heggur, hlynur og jafnvel ribsrunnar.“
Síðan lýsir Ingólfur skemmdunum nánar og ályktar svo þannig:
„Ég skoðaði laufið og fann ekki í því neinar skemmdir af völdum sveppa, og til frekari fullvissu sendi ég nokkur sýnishorn utan til rannsóknar, og fundust þar heldur ekki sveppar í laufinu. En allt benti til þess, að um einhvers konar sviðnun væri að ræða, helzt loftborna. Samkv. efnagreiningu reyndust sýnishorn trjálaufs úr Hafnarfirði menguð af flúor. Við sumarbústað rétt hjá Straumsvík reyndist flúormengun miklu meiri bæði í laufi og grasi. Bendir það til, hvaðan hún er komin í hafnfirzku garðana. Lítur ekki vel út með trjárækt Hafnfirðinga, ef slíku fer fram til lengdar. Flúormengun gæti og hæglega borizt til Reykjavíkur frá Straumsvík, þó að mistur þaðan leggi eðlilega oftar og meira um Hafnarfjörð. Hreinsitæki í verksmiðjuna virðast augljós nauðsyn,“ segir Ingólfur Davíðsson.
Menn, er lásu þetta, hrukku illa við og spurðu, hvort flúornefndin hefði nú sofnað á verðinum. Garðeigendur í Hafnarfirði og víðar í nágrenni verksmiðjunnar tóku að óttast um ávöxt erfiðis síns í mörg ár. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti samhljóða áskorun til ríkisstj. um að bregðast strax við og nota samningsrétt sinn til þess að krefjast þess af eigendum verksmiðjunnar, að gerðar væru tafarlausar ráðstafanir til þess að draga úr flúorhættunni með því að setja upp hreinsitæki. En dráttur er á því enn.
Jóhann Hafstein, hæstv. forsrh., lýsti því við umr. um till. þessa fyrir síðustu áramót, að það væri á valdi Alþ. og ríkisstj. að ákveða, hvort hreinsitæki yrðu sett upp eða ekki, og fyrirsvarsmenn ISALs lýstu því yfir á blaðamannafundi 14. jan. s.l., að þeir teldu sér skylt að hlýða slíkri fyrirskipun, ef fram kæmi. Þrátt fyrir aðvaranir Ingólfs Davíðssonar, sem um er getið, segist ríkisstj. enn þá bíða niðurstöðu af rannsókn um svo nefnd skaðleysismörk flúors á umhverfi við verksmiðjuna. Stefnan virðist vera sú að bíða, þar til tjónið er augljóslega skeð. Hér er þveröfugt staðið að hlutunum miðað við það, er fram kom af hálfu Jóhanns Hafsteins, þáv. iðnmrh., í umr. á Alþ. 1. marz 1967, en þá sagði hann m.a. í svari við fsp. um, hvort reykeyðingartækjum yrði fyrir komið í verksmiðjunni og hagnýtt frá byrjun, þetta orðrétt, með leyfi hæstv. forseta:
„Grundvallaratriðið er, að íslenzk yfirvöld hafi jafnan tiltækar allar upplýsingar, sem á þarf að halda, til þess að meta aðstæður í Straumsvík, þannig að þau verði jafnan reiðubúin að krefjast þess, að framkvæmdar séu þær varúðarráðstafanir, sem réttmætt er, að ISAL annist á hverjum tíma.“
Einnig kom fram í svari hæstv. iðnmrh. þá, að íslenzk heilbrigðisyfirvöld teldu nau3synlegt, að þegar í upphafi yrði gætt allra varúðarráðstafana. Í þessu sambandi vil ég leggja sérstaka áherzlu á, að hæstv. ríkisstj. og Alþ. stendur frammi fyrir því að taka ákvörðun, sem verður stefnumótandi um afstöðu í framtíðinni til atvinnurekstrar, sem sennilegt má telja, að haft geti í för með sér umhverfiseyðandi verkanir. Verður stefnan sú að bíða með fyrirbyggjandi aðgerðir, þar til ljónið er orðið, ellegar verður stefnan sú að krefjast strax í upphafi fyrirbyggjandi aðgerða til þess að koma í veg fyrir tjón? Ég lýsti fyrr í ræðu minni biturri reynslu ýmissa iðnaðarþjóða í þessum efnum, sem nú verja þúsundum milljarða kr. til að bæta fyrir margra ára léttúð í sambandi við umhverfiseyðingu. Föllum við sjáandi í sömu gröfina?
Rök mín fyrir stuðningi við till. eru m.a. þessi: Með ákvörðun ríkisstj. um að setja upp hreinsitæki væri stefna mörkuð um að stunda umhverfisvernd við uppbyggingu stóriðju í landinu í framtíðinni. Stóriðja mun hér rísa á legg í auknum mæli og hún tæki mið af þessu markmiði Íslendinga allt frá fyrstu hönnun framkvæmda. Yrði slíkt öllum til hags. Fyrirhuguð er stækkun álbræðslunnar um helming eða í 88 þús. tonna ársframleiðslu. Við það eykst flúormagnið, sem út í loftið fer, um helming eða í tæp 6 tonn á sólarhring. Með hreinsitækjum á að vera hægt að minnka magnið um 70%. Allar álbræðslur í Noregi eru nú útbúnar hreinsitækjum, og fróðir menn segja mér, að ólíklegt sé, að nokkur menningarþjóð muni í framtíðinni leyfa slíkar verksmiðjur án hreinsitækja. Návist verksmiðjunnar við höfuðborgarsvæðið, þar sem rúmur helmingur þjóðarinnar býr og saman eru komin mikil verðmæti eigna, er flúormengun gæti eyðilagt, krefst strangra öryggisráðstafana frá hugsanlegum skaðvaldi. Viðbótarfjárfesting vegna hreinsitækja upp á rúmar 100 millj. kr. af 5500 millj. kr. heildarfjárfestingu í stækkaðri álverksmiðju, eins og ráðgert er að hún verði á næsta ári, skiptir fyrirtækið óverulegu máli og má ekki undir neinum kringumstæðum ráða úrslitum í þessu máli.
Mjög auknar kröfur eru nú gerðar um allan heim í sambandi við atvinnurekstur, sem hefur umhverfiseyðandi áhrif. Við eigum að vera með í þeim efnum. Við eigum að ganga út frá þeirri meginreglu við stefnumótun okkar, að meiri háttar framleiðslustarfsemi geti verið mengunarvaldur, þar til sakleysið er sannað, og enginn hafi leyfi til þess að óhreinka umhverfi sitt og menga. Það þarf að vinna almenning til fylgis við setningu slíkra reglna, og ríkisvaldið á með jákvæðum aðgerðum að auðvelda atvinnurekstrinum í landinu, t.d. með beinni aðstoð og kynningarstarfsemi, að aðlaga sig skynsamlegum kröfum í þessum efnum.
Nokkuð er nú rætt um að koma upp efnaiðnaði hér í stórum stíl, m.a. sjóefnaiðju á Reykjanesi. Yrði það væntanlega stærsta fyrirtæki hér á landi, ef af yrði.
Ég heyrði Vilhjálm Lúðvíksson verkfræðing lýsa því yfir á fyrrnefndri verkfræðiráðstefnu, að tæknilega væri hægt að útiloka öll skaðvænleg mengunaráhrif frá þeim efnaiðnaði, sem rætt hefði verið um að koma á fót á Íslandi. Þetta er mér ásamt mörgu öðru sönnun þess, að vísinda- og tækniþekkingin, sem er undirrót og frumafl flestra framfara í heiminum, er ekki einasta til þess fallin að skapa umhverfiseyðingarvandamál, sé hún notuð fyrirhyggjulítið, heldur getur hún líka bætt úr, þar sem gálauslega hefur verið að farið, og fyrirbyggt, að þekkingunni fylgi böl fyrir mannfólkið. Vandinn stóri er sá að kunna að beita þekkingunni, svo að vel fari í búskaparháttum þjóðanna.
Enn þá ríkir hér ekki nægur skilningur í umgengninni við landið. Við sjáum þess dagleg merki í sorphaugum og hvers kyns drasli í byggð og í borg. Náttúrufræðingur hefur nýlega lýst því yfir, að beztu landbúnaðarhéruð landsins séu ofbeitt, svo að til vandræða horfi. Sjórinn í kringum landið er víða og þá helzt nálægt þéttbýli dauður sökum mengunar frá skolpi þéttbýlissvæðanna. Það gætir því nokkuð víða umhverfiseyðingarinnar í landi okkar, fyrst og fremst vegna hugsunarleysis íbúanna. Við skulum hefja hreinsunarstríðið í Straumsvík með samþykkt þessarar till., en minnast þess vel um leið, að verkið er þar með rétt aðeins hafið. - Góða nótt.