21.10.1970
Sameinað þing: 5. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 328 í D-deild Alþingistíðinda. (3737)

40. mál, siglingar milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Till. sú, sem hér er um að ræða, er um það að skora á ríkisstj. að hlutast til um, að Skipaútgerð ríkisins taki upp daglegar áætlunarferðir með vörur og farþega milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar. Það er út af fyrir sig ágætt að vekja athygli á þörfinni á því að bæta samgöngur við Vestmannaeyjar. En ef hv. þm. hefði rætt við mig eða forstjóra Skipaútgerðar ríkisins, þá hefði hann nú strax fengið upplýsingar um það, að einmitt þetta mál er í sérstakri athugun hjá Skipaútgerðinni núna, einmitt vegna þess, að skipakostur Skipaútgerðar ríkisins batnar á næsta vetri og þá fæst möguleiki til þess að bæta úr samgöngunum frá því, sem verið hefur. Vestmanneyingar vilja helzt ráða Herjólfi. Þeim finnst nú alltaf svona eins og þetta skip sé þeirra skip. Það er rétt, sem hv. flm. minntist hér á áðan, að Herjólfur hefur ekki verið látinn þjóna Vestmanneyingum eingöngu, og það er vegna þess, að skipakosturinn hefur ekki verið nægilega mikill, sem Skipaútgerðin hefur haft yfir að ráða. Nú breytist þetta til batnaðar, þegar tvö ný vöruflutningaskip, miklu hentugri en áður, verða komin í þjónustu landsmanna. Þá er útlit fyrir, að Herjólfur gæti þjónað Vestmanneyingum eingöngu.

Það er vitanlega í athugun hjá Skipaútgerð ríkisins, með hverjum hætti verður hægt að þjóna hagsmunum fólksins á ströndinni, eftir að nýju skipin eru bæði komin í notkun, og þetta, hvort fært er að láta Herjólf vera eingöngu fyrir Vestmannaeyjar, eins og upphaflega var nú jafnvel áætlað, þegar þetta skip var byggt. Herjólfur hefur verið tekinn í Hornafjarðarflutninga aðra hverja viku, og það hefur dregið úr og spillt fyrir samgöngum við Vestmannaeyjar að nokkru leyti. En þegar hin skipin eru bæði komin, er alveg óvíst, hvort það gerist þörf á því að láta Herjólf fara til Hornafjarðar. Þá verða vikulegar ferðir til Hornafjarðar með öðru hvoru þessara nýju skipa, og samgöngurnar batna mjög, auk þess sem það er til athugunar, hvaða annar skipakostur verður fyrir hendi hjá Skipaútgerðinni til þess að fullnægja þessari þörf. Allir vilja vitanlega fá bættar samgöngur og sem bezta þjónustu hjá Skipaútgerðinni, og það er vitanlega hlutverk hennar að gera allt, sem unnt er, til þess að uppfylla þessar óskir, sem eru sanngjarnar.

Ég get tekið undir flestallt, sem sagt er í grg. fyrir þessari till. um nauðsynina á því að bæta samgöngurnar á milli lands og Vestmannaeyja. Og vissulega er það rétt, að það er stytzt að fara til Þorlákshafnar frá Vestmannaeyjum. Hvort það er heppilegt að gera ferðaáætlun um það, að þangað fari skipið á hverjum degi allan ársins hring, það er eftir að athuga. M.a. það, hvort höfnin sé þá nógu góð til þess, að það geti verið á hverjum degi yfir vetrarmánuðina. En það er mál út af fyrir sig. Það breytir ekki því, að það er eðlilegt og sjálfsagt, að þetta geti átt sér stað þann tíma ársins a.m.k., sem talið er, að heppilegt sé að leggja skipi í Þorlákshöfn og byggja áætlun á því, að það verði á hverjum degi.

Það hefur farið mjög í vöxt, að fólk fari á milli frá Vestmannaeyjum til Þorlákshafnar. Sérstaklega var það á s.l. sumri. Það hefur aldrei verið meira en á s.l. sumri. Og það var m.a. vegna þess, að flutningsgjöld á bifreiðum voru lækkuð verulega á s.l. vori. Í sumar treysti fólk sér frekar til þess að flytja bílinn með sér heldur en áður, af því að það kostaði minna. Og það er eðlilegt, að þeir, sem búa úti í Vestmannaeyjum, vilji fara með bifreiðarnar með sér og fjölskylduna til landsins og nota sitt sumarleyfi með því að ferðast á eigin farartæki með sinni fjölskyldu um landið. Þetta þurfa Vestmanneyingar að geta gert, og þeir notuðu sér það í ríkara mæli í sumar en nokkru sinni fyrr, vegna þess að það kostaði minna í sumar að koma bifreiðinni á milli en áður hafði verið. Og það var líka sanngjarnt að láta það kosta minna, ekki sízt vegna þess, að hallinn á Herjólfi hefur verið mun minni en á öðrum strandferðaskipum og flutningar milli lands og Eyja eru verulegir og þessi hópur manna, á sjötta þúsund, sem lifir í Vestmannaeyjum, leggur mikið til þjóðarbúsins og á það skilið, að eftir því sé tekið og stuðningur sé veittur þessu byggðarlagi, sem réttlátur og nauðsynlegur er.

Það hefur batnað mikið með samgöngur í Vestmannaeyjum undanfarið við það, að þverbrautin er komin á flugvöllinn, sem þó þarf að lengja og verður lokið við að lengja sennilega í vetur. Það verk hefur verið boðið út, það er að taka úr Sæfellinu, gera aðflugið auðveldara og öruggara, jafnvel í stormi, en verið hefur og lengja þverbrautina um 300 metra. Við það batnar öll aðstaða við flugið. Ég skal ekki fullyrða um það, hversu mikið flugdögunum getur fjölgað, en eitthvað gæti þeim fjölgað við það. En hvað sem því líður, hvað góður sem flugvöllurinn verður í Vestmannaeyjum, þá dugar flugið ekki eitt út af fyrir sig. Það skapar þægindi, það skapar aukið öryggi, en það hljóta alltaf að koma dagar og jafnvel margir dagar á ári, sem ekki verður hægt að fljúga. Og þungavöruflutninga er ekki hægt að hafa að verulegu marki í lofti. Það verður því að hafa skip, sem gengur frá Vestmannaeyjum og til Þorlákshafnar og jafnvel stundum til Reykjavíkur. Ég geri ráð fyrir því, ef menn setjast nú niður og fara að reikna það út, hvort eigi að flytja þungavöruna frá Reykjavík landveg til Þorlákshafnar og koma henni þar í þetta svo kallaða Vestmannaeyjaskip, þá verði niðurstaðan sú, að hin vöruflutningaskipin eigi að koma við í Vestmannaeyjum, þegar þau sigla þar fram hjá, og það sé heppilegt, að þau taki vörur í Reykjavík samhliða þeim ferðum. Með þessu verða ferðirnar fleiri, og með því verður hagsmunum fólksins þjónað betur.

Það er óþarfi að fara mörgum orðum um þessa till. Seinni hluti hennar er þannig, að það verði undirbúin smíði skips, sem væri sérstaklega gert til þess að sinna þessu verkefni, þ.e. að fara milli lands og Eyja, og það veiti sem bezta þjónustu á sem hagkvæmastan hátt. Það er náttúrlega vissulega eðlilegt, að það verði athugað með smíði nýs skips, en það, sem fyrst á að gera, er að ígrunda það, hvernig fyrirkomulagið á að vera á strandferðunum yfirleitt og hvernig eigi að haga áætlunum á milli lands og Eyja. Ég geri ráð fyrir því, að Herjólfur, ef Vestmanneyingar fá hann til eigin umráða, geti dugað nú fyrstu árin, ekki kannske mörg. En það má segja, að það taki nokkurn tíma að smíða nýtt skip og undirbúa það, og það er síður en svo, að það sé ekki tímabært að tala um þetta nú og hugsa um það.

Það er rétt, sem hefur verið sagt, að þetta mál er ekki nýtt. Þetta mál hefur áður verið rætt hér í hv. Alþ., og það hefur oft verið rætt í Vestmannaeyjum, bæði í bæjarstjórninni og á fundum þar. Og þetta mál hefur verið rætt á fundum, sem ég hef verið staddur á í Vestmannaeyjum, ekki endilega framboðsfundum, heldur öðrum fundum, þannig að málið er vissulega á dagskrá, og Vestmanneyingar spyrja um það, hvenær þeir geti fengið hentugt skip til flutninga. Herjólfur er ekki hentugur til bifreiðaflutninga. Hann getur ekki tekið marga bíla. En forstjóri Skipaútgerðarinnar hafði orð á því við mig einu sinni í haust, að nú væri gott að flytja bíla frá Vestmannaeyjum með Heklu og nýju Esju, því að nú sé pláss. Vestmanneyingar vilja vitanlega fara þá leiðina, sem stytzt er. Þeir vilja vitanlega heldur aðeins vera 31/2 tíma á sjó en 10 tíma, a.m.k. ef það er vont í sjóinn og ef menn eru sjóveikir. En það er óhentugt að senda bílinn til Reykjavíkur, ef fólkið eða fjölskyldan fer til Þorlákshafnar, þannig að þetta er nú allt saman nokkuð flókið og þarf að gera sér grein fyrir því, hvernig þessu verður bezt fyrir komið.

Herra forseti, ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta mál að sinni. Ég vildi aðeins vekja athygli á því, að þetta mál er á dagskrá og í athugun hjá Skipaútgerð ríkisins og að forstjóri Skipaútgerðar ríkisins hefur sérstaklega rætt það við mig, hvernig þessum málum verði bezt fyrir komið, þegar nýja Esja kemur í gagnið, sem vonazt er til að verði í febrúarmánuði n.k.