03.12.1970
Sameinað þing: 13. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 349 í D-deild Alþingistíðinda. (3772)

56. mál, leit að bræðslufiski

Guðlaugur Gíslason:

Herra forseti. Ég tel mjög eðlilegt og sjálfsagt, að fram fari allar athuganir eins og við verður komið á því, á hvaða hátt fiskimiðin kringum landið verði bezt nytjuð. Ég hef nú satt að segja haldið, að þessi þróun yrði frekar í þá átt að veiða þann fisk, sem hér er hægt að veiða, hvort sem þar er um stærri eða smærri fisktegundir að ræða, með það fyrir augum, að hann yrði sem mest gerunninn til útflutnings, en ekki að fara í slíkar veiðar á smærri fisktegundum til bræðslu. Það er alveg vitað, að gervinnsla á fiski gefur miklu meiri vinnulaun fyrir það fólk, sem í landi er og vinnur við fiskiðnaðinn, en bræðslufiskur almennt gerir. Ég tel ekki, að það geti verið rök fyrir því að fara í stórum stíl út í að sumu leyti hæpnar veiðar á þessum fisktegundum, sem hér hafa verið nefndar, vegna þess að í landi séu til þær verksmiðjur, sem fram að þessu hafa unnið úr síld og þá loðnu. Vitað er, að síldin er því miður að verða mjög sjaldgæfur fiskur hér við land, ef svo má segja. Veiði á henni fer alltaf minnkandi ár frá ári, og fiskifræðingar geta ekki staðhæft það og ekki bent á það með neinum rökum, að þess sé að vænta, að þetta sé kannske tímabundið ástand hér við land, heldur geti svo farið, að síldin sé horfin frá ströndum landsins um lengri eða skemmri tíma. Við aukna sókn í loðnuveiðarnar hefur það komið í ljós, kom í ljós á síðasta ári, hvort sem það er stundarfyrirbæri eða ekki, að hún veiddist að vissu marki. Hún var elt austan frá strönd landsins vestur að Portlandi. Þar virtist hún vera horfin, hvort sem það hefur nú verið vegna þess að hún hefur tekið breytta stefnu frá því, sem menn eiga að venjast, farið aðra leið í kringum landið á hringrásinni, eða hvort sóknin hefur verið of mikil í stofninn. Það liggur ekki ljóst fyrir, og hafa ekki fengizt skýringar á því hjá fiskifræðingum, hvað þarna hafi raunverulega verið að gerast. En hitt er staðreynd, sem við blasir, að þetta skeði. Bátamenn eltu þennan fisk frá því að hann kom til landsins við austurströndina og að Portlandi. Þar með var veiðin búin á s.l. vertíð. Eins og ég segi kann þetta að vera stundarfyrirbæri, og er vonandi, að annað hafi verið að verki en það, að of mikil sókn hafi verið í þessar veiðar, en hitt er staðreynd, að þetta átti sér stað, og einnig það, að þetta er í fyrsta skipti, að ég hygg, sem þeir menn, sem stundað hafa sjó hér við suðurströndina um áratugabil, muna eftir því, að loðna hafi ekki komið vestur fyrir Portland.

Það er önnur spurning, sem ég tel að hljóti að vakna upp í sambandi við hugmyndir um aukna sókn í fisktegundir, sem hér er minnzt á, spærling og sandsíli. Það hefur alltaf verið talið, að einmitt þessar fisktegundir væru það, sem annar nytjafiskur okkar, þorskurinn, sækti mest í og lifði kannske að verulegu leyti á vissan tíma árs og kannske mikinn tíma árs á sumum stöðum við landið. Það er þá ekki óeðlilegt, að upp vakni spurningin: Hvað skeður, ef sókn er stóraukin í þessar fisktegundir? Ég hef spurt fiskifræðing um þetta. Er þetta óhætt? Erum við kannske að vinna þarna spjöll, sem verða þess valdandi, að veiði minnkar verulega á öðrum nytjafiskum, sem við höfum hingað til byggt atvinnuvegi okkar á? Þeir segja réttilega: Það hefur ekki farið fram nægileg rannsókn, til þess að þessu spursmáli verði svarað. Ég hygg, að það sé alveg rétt hjá þeim. Þeir telja sig hvorki geta játað því eða neitað, vegna þess að nægileg rannsókn hefur ekki farið fram á þessu. Þess vegna tel ég sjálfsagt, að það verði gert meira af því eftirleiðis en hingað til hefur verið gert að kanna, hvernig við getum á sem arðvænlegastan hátt fyrir þjóðarheildina nytjað veiðisvæðin. Ég mundi telja það illa farið, ef svo færi t.d. með spærling og sandsíli, að þessar fisktegundir hyrfu allt í einú úr hafinu hér í kringum landið, eins og síldin hefur gert í bili. Það getur vel verið, að það mundi ekkert ske við það, en einhvern veginn held ég nú, að sjómenn hafi það á tilfinningunni, að það mundi eitthvað raskast við þetta, að aðrir nytjafiskar sæktu ekki eins á miðin, ef þessa fiska væri þar ekki að finna, því að lögmál náttúrunnar er, eins og allir vita, að það lifir þar hvað á öðru. Hinn stærri og gráðugri gleypir það smærra og lifir á því. Þetta er lögmál í dýraríkinu, og ef þessum hlutföllum er verulega raskað með stórsókn í þessar tegundir, þá gæti án efa verið hætta á því, að röskunin yrði meiri en við gerum okkur grein fyrir.

Eins og ég sagði í upphafi, þá held ég, að við hljótum að stefna að því fyrst og fremst að rannsaka aðstöðu okkar í sambandi við fiskveiðarnar í heild, hvaða fiskveiðar sé skynsamlegast að leggja mesta áherzlu á, og þá alveg sérstaklega þær fisktegundir, sem hægt er að vinna til útflutnings með meiri gervinnslu en átt hefur sér stað hingað til. Þróunin hefur verið að færast í þá átt, að þetta hefur smátt og smátt verið að gerast, að meiri gervinnsla hefur átt sér stað. En með hinar smærri fisktegundir, eins og síld, loðnu og spærling, hafa ekki verið gerðar tilraunir, svo að neinu nemi, eftir því sem ég bezt veit. Vel má vera, og ég hygg, að það sé rétt hjá flm. till., að þetta sé önnur hliðin á málinu, það geti vel farið svo, að með nægilegum athugunum komi það í ljós, að þessar smærri fisktegundir geti orðið verðmætar, ekki til bræðslu, heldur kannske fyrst og fremst til útflutnings og þá sem niðursoðnar eða niðurlagðar vörur. Væri að sjálfsögðu allt önnur aðstaða til þess að hefja veiðar á þessum tegundum, ef um það væri að ræða að gera þær að útflutningsvöru á þann hátt, því að þá yrði þar ekki um neitt magn sem heitið gæti að ræða og ekki magn, sem gæti raskað þeim hlutföllum, sem ég minntist á, að hlytu að vera eða maður verður að ætla, að séu á milli þessara fisktegunda og annarra nytjafiska, sem nú eru uppistaðan í okkar atvinnulífi.

Sem betur fer sýnist mér, að nokkur breyting sé kannske að verða á í sambandi við fiskveiðarnar, og á ég þar við það, sem nú hefur gerzt á þessu ári, að rækja er t.d. farin að veiðast víðar við land en áður var þekkt. Hún var, eins og vitað er, aðallega veidd í Ísafjarðardjúpi. Nú er hún farin að veiðast hér við Reykjanes, og ég hygg, að sjómönnum mörgum sé það ljóst, að rækja er kannske í mun stærri stíl annars staðar við landið en á þessum stöðum, sem hún enn þá hefur verið veidd. Og mér er kunnugt um það, að athuganir munu verða gerðar á því, þegar veðurfar og aðstæður leyfa, hvort rækja sé kannske í mun stærri stíl annars staðar við strendur landsins en hingað til hefur verið veitt. Þetta getur á mörgum stöðum, í mörgum sjávarplássum, gerbreytt atvinnulífinu, ef það kæmi á daginn, að hægt væri að veiða rækju í nokkuð stórum stíl. Þetta er sú tegund af sjávarfangi, sem útheimtir mjög mikla vinnu, skapar mikla vinnu í landi og er ein dýrasta sjávarafurð, sem flutt er út, og gæti þar af leiðandi orðið mjög til hagræðis og til þess að auka útflutning landsins á sjávarafurðum.

Þá verður sú breyting á, að hér við suðurströndina, bæði á miðum Grindavíkurbáta og miðum Vestmannaeyjabáta, er farið að veiða í net á þeim tíma árs, sem ekki hefur verið talið gerlegt að reyna þetta áður. Að vísu er þar nær eingöngu um eina fisktegund að ræða. Það er ufsi, sem veiðist í netin. Þetta var áður fyrr talinn mjög verðlítill fiskur. Nú í dag er þetta aftur að verða mjög verðmikill fiskur, og eftir því aflamagni, sem bátar hafa fengið undanfarna daga, bæði þeir, sem róa í Grindavíkursjó, og þeir, sem róa á miðin við Portland, þá er um það mikið magn að ræða, að vel getur svo farið að netavertíð lengist verulega frá því, sem við höfum áður þekkt. Netaveiðar hafa almennt ekki byrjað hér við suðureða suðvesturströndina fyrr en komið er langt fram í febrúar eða marzmánuð. En við það, að ufsinn er allt í einu orðinn verulega verðmætur fiskur, bæði fyrir sjómenn og eins fyrir fiskvinnsluna í landi, þá virðist vera orðin nokkur breyting á til hagsbóta fyrir þjóðarheildina í framtíðinni, því að fari svo, að netavertíð lengist hér á þessum aðalveiðisvæðum frá Reykjanesi og austur að Hornafirði, lengist kannske allt frá því í okt. og fram á vor, þá auðvitað gerbreytir það rekstrargrundvelli þeirra báta, sem veiðar stunda á þessu svæði. Þessar veiðar byrjuðu frá Grindavík og frá Vestmannaeyjum á s.l. ári, svona upp úr áramótum eða með áramótum, með svona sæmilegum árangri, og hygg ég, að nokkur undirbúningur hafi verið undir það að byrja þessar veiðar miklu almennara upp úr áramótum en áður hafði verið. En við það, sem gerzt hefur síðustu daga, þá er það sjáanlegt, að stefnt verður að því, ef framhald verður á þessum veiðum eftirleiðis, að þessar veiðar byrji þegar með októbermánuði.

Það, sem gaf mér tilefni til þess að ræða þá till., sem hér er flutt fram, er ekki það, að ég sé henni mótfallinn. Ég tel allar athuganir, sem miða í þá átt að kanna, hvernig við getum bezt komið okkur fyrir með fiskveiðarnar, sjálfsagðar, en ég vildi þó benda á það, að þarna er komið inn á a.m.k. tvær fisktegundir, þ.e. spærling og sandsíli, en ég hygg, að það þurfi nánari athugunar við, hvort það sé gerlegt og hagkvæmt þjóðfélagslega séð að taka upp veiðar á þeim í stórum stíl. Spærlingsveiðar hafa verið reyndar hérna. Þær voru reyndar fyrst árið 1969 og aftur nú í sumar. Því er ekki að neita, að þetta virtist vera nokkuð til ávinnings til að byrja með. Menn töldu sig sjá fram á það, að þarna gæti orðið um aukinn rekstrargrundvöll fyrir stærri gerð fiskibáta að ræða. Hins vegar er veitt í botnvörpu með mjög smáriðnum möskvum, og hlýtur það að skapa nokkurn vanda, þegar 200–400 tonna bátar fara inn á trollsvæði, þar sem annars er ekki leyfilegt að veiða, og veiða þar með mjög smáriðnum möskvum. Það hefur kannske ekki komið beint í ljós, að þarna geti verið hætta á því, að þeir veiði ekki einasta þá fisktegund, sem þeir ætla að veiða, heldur fylgi þar með aðrar fisktegundir, sem bannað er að veiða í smáriðna möskva. Þó er þetta nú kannske ekki aðalatriðið. Hitt er vitað, að það hlýtur að vera mikil freisting fyrir þá, sem þessar veiðar stunda, að misnota þessi veiðarfæri, halda sig ekki eingöngu að þeirri fisktegund, sem þeir hafa leyfi til að veiða, heldur veiða með í stærra mæli en reiknað er með aðrar fisktegundir í veiðarfæri, sem ekki eru lögleg til veiða á þeim svæðum, sem þeir hafa veiðiheimildir á.

Ég endurtek: Allar frekari athuganir eru sjálfsagðar, en grundvallarstefnan í sambandi við fiskveiðarnar held ég að hljóti að verða sú í framtíðinni, að ekki einasta sé stefnt að því að moka upp sem mestu magni af fiski í bræðslu, heldur að nytja allar þær fisktegundir, sem hægt er að veiða, og þá alveg sérstaklega með það fyrir augum að gervinna þær til útflutnings.