08.12.1970
Sameinað þing: 14. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 361 í D-deild Alþingistíðinda. (3782)

64. mál, Útflutningsráð

Guðlaugur Gíslason:

Herra forseti. Ég þakka fyrir upplýsingar hv. fyrri flm. till., þar sem hann skýrði frá því alveg afdráttarlaust, að með útflutningsráði væri aðeins átt við fyrirgreiðslustofnun. En þá hlýtur sú spurning að vakna, hvort ástæða sé til að stofna til slíks útflutningsráðs, þegar í lögum er gert ráð fyrir slíkri stofnun eins og þarna er um að ræða. Eins og ég benti á, er í 5. gr. laga um fiskimálaráð beinlínis gert ráð fyrir, að sú stofnun verði fyrirgreiðslustofnun í sambandi við útflutning sjávarafurða, en ekki aðeins fyrirgreiðslustofnun, heldur skuli fiskimálaráð hafa forgöngu um markaðsrannsóknir og skipulagðar aðgerðir til öflunar nýrra markaða fyrir sjávarafurðir, svo og framleiðslu nýrra vörutegunda. Ég sé ekki, að hugmyndin um útflutningsráð, eins og hún kemur fram í þeirri þáltill., sem hér um ræðir, sé neitt víðtækari heldur en þegar er í lögum um fiskimálaráð, og því dreg ég mjög í efa, að það sé nokkur ástæða til þess að stofna til enn nýrrar stofnunar um útflutning sjávarafurða.

Um aðra aðila hef ég þegar bent á, að það er gert ráð fyrir með því stjfrv., sem liggur fyrir í sambandi við iðnaðinn, að stofnuð verði útflutningsmiðstöð iðnaðarins, sem hafi sama hlutverki að gegna og gert er ráð fyrir í till. um útflutningsráð, nema víðtækara. Þar er um nokkru víðtækari aðstoð að ræða en gert er ráð fyrir í sambandi við útflutningsráðið.

Ég tel, að eins og málum er háttað nú, og á ég þar helzt við útflutning sjávarafurða, þá beri að leggja meiri áherzlu á það en nú hefur verið gert fram að þessu, að utanríkisþjónustan taki þessi mál frekar í sínar hendur en verið hefur og þá beinlínis með því, að settir yrðu niður í hinum ýmsu sendiráðum viðskiptafulltrúar, sem sæju um þessi mál fyrir þá aðila hér á landi, sem útflutning annast. Ég tel, að þetta vanti inn í utanríkisþjónustuna, og vona, að þegar að því kemur, að breyting verður gerð á lögum um utanríkisþjónustu, þá verði þetta atriði sérstaklega tekið upp. Það var ekki gert í því frv., sem var lagt fyrir þessa hv. d. á síðasta þingi, nema að mjög takmörkuðu leyti. Ég flutti þá brtt. við það frv. þess eðlis, að í tveimur tilteknum löndum, sem við höfum mikil viðskipti við, en sendiherrarnir sitja víðs fjarri, yrðu ráðnir viðskiptafulltrúar, þ.e. á Ítalíu og Spáni. Sendiherrar þessara landa sitja í London og í Osló. Ég flutti brtt. um það, að í þessum tveimur löndum yrðu þegar skipaðir viðskiptafulltrúar.

Ég held, að með tilliti til þeirra upplýsinga, sem hér hafa komið fram, að útflutningsráð eigi aðeins að verða fyrirgreiðslustofnun, þá sé þegar í lögum aðstaða til þess að veita þá fyrirgreiðslu, sem þessi þáltill. gerir ráð fyrir, og því ekki ástæða til þess að stofna til enn fleiri ráða í sambandi við þessi mál.