26.01.1971
Sameinað þing: 22. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 370 í D-deild Alþingistíðinda. (3811)
82. mál, skipan dóms- og lögreglumála á Suðurnesjum
Flm. (Geir Gunnarsson):
Herra forseti. Á þskj. 85 flyt ég ásamt hv. 5. þm. Reykn. svo hljóðandi till. til þál., með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að láta leggja fyrir Alþ. það, er nú situr, frv. til I. um skipan dóms- og lögreglumála á Suðurnesjum á þann veg, að á svæðinu sunnan Hafnarfjarðarkaupstaðar heyri þessi mál til einu embætti í Keflavík.“
Þegar menn leiða hugann að skiptingu landssvæða í lögsagnarumdæmi og ígrunda, að hverju beri að keppa, þegar sú skipting er ákveðin, sýnist ljóst, að markmiðið ætti að vera það, að íbúarnir njóti sem beztrar og aðgengilegastrar þjónustu og rekstrarkostnaður embætta sýslumanna og bæjarfógeta verði þó sem minnstur. Í ríkisrekstrinum er það að sjálfsögðu svo, að þessi sjónarmið stangast æði oft á. Því meira sem gert er til þess að tryggja aðgengilegri og bætta þjónustu, þeim mun meiri verður rekstrarkostnaðurinn. Sú breyting, sem í þeirri þáltill., sem hér er til umr., er lagt til, að gerð verði á lögsagnarumdæmum í Reykjaneskjördæmi, er þó þess eðlis, að hún ætti hvort tveggja í senn að verða til sparnaðar og hagkvæmni fyrir ríkissjóð og auka og bæta þjónustu við það fólk, sem á Suðurnesjum býr.
Allt til ársins 1949 annaðist embætti sýslumanns í Gullbringu- og Kjósarsýslu og bæjarfógeta í Hafnarfirði héraðsdóms- og stjórnsýslustörf á öllu því svæði, sem nú er Reykjaneskjördæmi. Varðandi Suðurnes, þ.e. svæðið sunnan Hafnarfjarðar, hefur það síðan gerzt, að Keflavíkurkauptún fékk kaupstaðarréttindi og varð sérstakt lögsagnarumdæmi árið 1949 og Keflavíkurflugvöllur var gerður að lögsagnarumdæmi undir stjórn sérstaks lögreglustjóra árið 1954. Þannig skiptist þetta svæði sunnan Hafnarfjarðar nú á milli þriggja lögsagnarumdæma. Lögreglulið á þessu svæði, nær 50 manns, lýtur stjórn þriggja aðila, og það fólk, sem býr í hreppsfélögunum umhverfis Keflavík, hefur ekki not af því, að sérstakt bæjarfógetaembætti er í Keflavík, heldur verður um afgreiðslu sinna mála að sækja til Hafnarfjarðar, þar sem sýslumaður hefur aðsetur. Íbúar Miðnes- og Gerðahrepps verða þannig að fara um Keflavík, þar sem embætti bæjarfógeta er, og halda allt til Hafnarfjarðar, ef þeir þurfa t.d. að láta þinglýsa skjali, skrá bifreið eða leita réttar síns fyrir dómstóli. Byggðin í Ytri-Njarðvík er samvaxin Keflavík, en samt sem áður verða íbúarnir í hreppsfélaginu að fara til Hafnarfjarðar, þegar um afgreiðslu slíkra mála er að ræða. Nokkur fyrirgreiðsla er að vísu veitt í sveitarfélögunum með greiðslu tryggingabóta einn tiltekinn dag í mánuði, og fyrir kemur, að haldin eru þar dómþing. En augljóst er, að þægilegra væri fyrir íbúa þessara sveitarfélaga og hagkvæmara fyrir ríkissjóð, að þeir fengju afgreiðslu mála sinna hjá embætti í Keflavík, og auðsætt er að sú skipan mála, sem nú ríkir í þessu efni, er afleiðing af öðru en því, að hafðir hafi verið sérstaklega í huga hagsmunir íbúanna á þessu svæði í heild eða þá fjárhagslegir hagsmunir ríkissjóðs.
Sveitarfélögin sunnan Hafnarfjarðar eru í rauninni allsamstæð heild, en jafngreinilega aðskilin frá öðrum hlutum þess svæðis, sem heyrir til embætti sýslumanns Gullbringu- og Kjósarsýslu. Þróunin stefnir í þá átt, að þessi sveitarfélög leysi meira og meira af vandamálum sínum og verkefnum í sameiningu og samstarfi, og sú till., að þau verði sérstakt og eitt lögsagnarumdæmi, er eðlilegur liður í þeirri þróun, sem þarf að verða, og nauðsynlegur undanfari nánara samstarfs og samstöðu íbúanna á Suðurnesjum. Það er auðsætt, að hagkvæmara og ódýrara væri fyrir íbúa Suðurnesja að geta fengið sín mál afgreidd hjá embætti í Keflavík í stað þess að þurfa að sækja til Hafnarfjarðar. Á sama hátt yrði um sparnað að ræða fyrir ríkissjóð, ef lagt yrði niður sérstakt embætti lögreglustjóra á Keflavíkurflugvelli, og betri nýting fengist á því 50 manna lögregluliði, sem nú lýtur stjórn þriggja embætta, ef hægt væri að skipuleggja störf þess sameiginlega á svæðinu öllu undir stjórn embættis, sem þegar er til í Keflavík. En sýslumaðurinn, sem situr í Hafnarfirði, væri þá leystur undan þeirri skyldu að annast stjórn löggæzlu í sveitarfélögum, sem svo fjarri eru aðsetri hans.
Þegar undirnefnd fjvn. starfaði að því fyrir nær tveimur árum að kanna ásamt fleiru, hvort unnt væri að draga úr kostnaði ríkisins við löggæzlu í landinu, gerði hún það m.a. að till. sinni til fjmrn., að löggæzla á Suðurnesjum yrði sett undir eina stjórn, þannig að allt það lögreglulið, sem þar starfar, væri unnt að skipuleggja sem eina heild á svæðinu öllu. Vert er að geta þess, að eins og skipan þessara mála er nú, er embætti lögreglustjórans á Keflavíkurflugvelli sérstætt að því leyti, að það heyrir undir utanrrn., en með þeirri nýskipan að gera allt svæðið sunnan Hafnarfjarðar að sérstöku lögsagnarumdæmi, er gert ráð fyrir, að dóms- og stjórnsýslustörf á Keflavíkurflugvelli hyrfu undir dómsmrn., til þess að unnt væri að koma við fyllstu hagsýni í fjárveitingum til lögreglumála. Fæ ég ekki séð, að neitt væri þeirri skipan til fyrirstöðu, en legg þó áherzlu á, að að mínum dómi er aðalatriðið, að dómsog löggæzlumál í öllum sveitarfélögum á Suðurnesjum heyri til einu embætti í Keflavík, og það ætti að vera unnt að framkvæma, hvað sem um lögreglustjóraembættið á Keflavíkurflugvelli yrði.
Ég hef orðið þess var, að þessi þáltill. hefur mælzt vel fyrir meðal íbúa á Suðurnesjum, enda yrði það án efa til aukins hagræðis því fólki, að þessi mál heyrðu til einu embætti í Keflavík.
Eins og ég benti á í upphafi máls míns, er það ekki oft, að unnt er að gera hvort tveggja í einu að auka þjónustu við almenning og koma samtímis við aukinni hagkvæmni og sparnaði í ríkisrekstrinum, en hvort tveggja tel ég, að mundi leiða af samþykkt þessarar þáltill. Og þess vegna vænti ég þess, að hún fái jákvæðar undirtektir hv. þm. Ég legg svo til, herra forseti, að till. verði vísað til hv. allshn., áður en umr. lýkur.