29.01.1971
Sameinað þing: 23. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 374 í D-deild Alþingistíðinda. (3829)
87. mál, stjórnkerfi sjávarútvegsins
Flm. (Jón Skaftason):
Herra forseti. Á þskj. 91 hef ég leyft mér ásamt tveim öðrum hv. þm. að flytja till. til þál. um heildarendurskoðun á fyrirkomulagi stjórnkerfis sjávarútvegsins. Till. hljóðar þannig:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að skipa nú þegar nefnd fimm manna með þekkingu á málefnum sjávarútvegsins til þess að endurskoða ríkjandi fyrirkomulag um yfirstjórn hans og undirbúa frv. til l. um þau efni fyrir næsta reglulegt Alþingi.“
Með þáltill. þessari fylgir nokkuð ítarleg grg., og tel ég ekki ástæðu til að fylgja henni úr hlaði með langri framsöguræðu, þó að ég vilji bæta örfáum orðum við það, sem fram kemur í sjálfri grg.
Það lætur að líkum, að fyrir atvinnugrein eins og sjávarútveginn, sem gegnir í okkar þjóðfélagi ákaflega mikilsverðu hlutverki og þar sem svo margt byggist á velgengni hans, þá skiptir það talsvert miklu máli, að hinum æðstu stjórnarstofnunum, sem eru til fyrst og fremst vegna þessa atvinnuvegar, sé þannig fyrir komið, að þar sé hagkvæmni gætt og þær geti leyst sín mikilvægu verkefni þannig af hendi, að viðunandi sé. Ég hef orðið var við það í viðræðum við ýmsa menn, sem í þessari atvinnugrein starfa, að þeir telja, að á það skorti allnokkuð.
Fyrir nokkru var gerður aðskilnaður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytanna. En áður höfðu þessi rn. verið undir stjórn eins og sama ráðuneytisstjórans. Jafnframt voru þá, sem kunnugt er, gerðar allmiklar breytingar á starfsskiptingu rn. almennt. Þær helztu, er snertu sjávarútveginn, voru þær, að viðskiptamál sjávarafurða voru flutt til viðskrn. Að mínu viti var þetta mjög vafasöm ráðstöfun. Með þessu eru starfrækt tvö utanrrn. í vissum skilningi, og auk þess er rofið sambandið á milli öflunar, framleiðslu og sölu sjávarafurða, er verkefni þessi eru fengin tveimur mismunandi rn. Þá er það augljóst mál öllum, sem til þekkja, að sjálft sjútvrn. er fjarri því að vera þannig mannað eða þannig að því búið að öðru leyti, að það geti sinnt, svo að sæmilegt sé, þeim verkefnum, sem eðlilegt væri, að það annaðist. Ég get um það í grg., að í sjútvrn. starfi nú auk ráðuneytisstjóra aðeins einn fulltrúi og skrifstofustúlka og þetta rn. muni vera mannfæst af öllum rn. Ýmsum kann að virðast, að miðað við mikilvægi þess málaflokks, sem fyrst og fremst heyrir undir þetta rn., þá skjóti þarna nokkuð skökku við. Það held ég líka að sé samdóma álit þeirra, sem til þekkja, að af því hafi hlotizt bæði tafir við afgreiðslu mála og ýmislegt annað óhagræði fyrir það, hvað sjútvrn. er fáliðað. Þannig hafa mál sem til rn. hafa gengið oft verið send hinum og þessum aðilum út um allan bæ til umsagnar og það af þeirri ástæðu, að starfslið rn. er svo fámennt, eins og ég gat um, að það hefur ekki komizt yfir að sinna þeim án þess að fá upplýsingar frá öðrum aðilum í landinu, en eðlilegt væri, að sumir þeirra a.m.k. störfuðu í sjálfu rn. Ég tel því, að í sambandi við þá endurskoðun, sem lagt er til í þessari þáltill., að framkvæmd verði, sé sérstaklega gætt að því, hvað eðlilegt sé að leggja af verkefnum til sjútvrn., og það síðan búið því starfsliði, sem nauðsynlegt má telja, að sé þar til staðar til að sinna þeim verkefnum, sem sjútvrn. fer með á hverjum tíma.
Næsta stofnun, sem ég vík lítillega að í þáltill. minni, sem einnig er mjög mikilvæg, er Fiskifélag Íslands. Það er einnig stofnað vegna brýnnar þarfar á örlagaríku tímabili í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar, sem jafnframt var eitt hið merkilegasta tímabil í atvinnusögu hennar, er stærri og meiri framfaraspor voru mörkuð en nokkru sinni fyrr. Stofnendur Fiskifélagsins sáu þörfina á stjórnunarstofnun, sem fyllt gæti rúm, sem hjá flestum þjóðum, er notið höfðu stjórnarfarslegs og atvinnulegs sjálfstæðis um langt skeið, var fyllt af ríkisstofnunum annars vegar og hagsmunasamtökum hins vegar. Hvorugt var til hjá Íslendingum á þessu tímabili sögu þeirra. Ég veit, að flestir munu samdóma um, að Fiskifélag Íslands hafi verulega mikilvægum verkefnum að sinna, verkefnum, sem því eru falin ýmist með ákvörðunum, sem Fiskiþing tekur, verkefnum, sem Alþ. sjálft ákveður starfsmönnum Fiskifélagsins að vinna, eins og t.d. skýrslusöfnun og útgáfustarfsemi í sambandi við aflatryggingasjóð og stofnfjársjóð, og fleira. Auk þess hefur Fiskifélagið á sinni könnu að sinna verkefnum, sem til þess er vísað frá sjútvrn.
Staðið hefur yfir að undanförnu, og ég held, að henni sé ekki enn þá lokið, endurskoðun á samþykktum eða lögum Fiskifélags Íslands, og er sjálfsagt að líta til þeirrar niðurstöðu, sem þeir, sem vinna að þeirri endurskoðun, kunna að komast að, þegar endurskoðun á stjórnkerfi sjávarútvegsins verður framkvæmd, ef till. þessi verður samþ., því að að sjálfsögðu mun Fiskifélag Íslands áfram gegna verulega mikilvægu hlutverki í því kerfi.
Þriðja stofnunin, sem við flm. víkjum lítillega að, er fiskimálaráð, sem stofnað var með lögum nr. 35 frá 23. apríl 1968 og á samkv. lögunum að vera ráðgefandi um mótun heildarstefnu í uppbyggingu sjávarútvegsins. Eins og þessar upplýsingar bera með sér, er reynslan af starfi fiskimálaráðs ekki ýkja löng, en ég hygg þó, að ég geti sagt það með nokkrum rétti, að sú stofnun hafi ekki starfað mikið, og ég hef heyrt um það raddir, að vafasamt væri, að fiskimálaráð ætti sjálfstæðan tilverurétt, vegna þess að eðlilegt væri að fela verkefni þess ýmsum öðrum eldri og starfandi stofnunum í stjórnkerfi sjávarútvegsins, eins og t.d. Fiskifélaginu og jafnvel sjútvrn. Ég vil ekki kveða sjálfur upp endanlega dóm um réttmæti þessara staðhæfinga. Það fæst væntanlega úr því skorið, ef sú endurskoðun fer fram, sem hér er lagt til, að gerð verði.
Þá er vikið nokkrum orðum í grg. till. að hinum tæknilegu stofnunum sjávarútvegsins, og er þar átt við Hafrannsóknastofnunina og Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins. Ég sé ekki ástæðu til þess að fara mörgum orðum um þær, en það, sem mér og raunar fleirum finnst á vanta fyrst og fremst í starfsemi og starfrækslu þessara stofnana, er meira og betra samband við sjálfan útveginn og fiskiðnaðinn. Þegar lög voru sett um þessar stofnanir, var m.a. gert ráð fyrir, að á vegum þeirra væru starfandi svo kallaðar ráðgjafarnefndir. Í þeim ráðgjafarnefndum sátu m.a. menn frá viðkomandi atvinnugrein. Nú segja kunnugir menn mér, sem starfað hafa þarna lengi, þá sorgarsögu, að þessar ráðgjafarnefndir hafi á engan hátt staðið undir þeim vonum, sem við starfsemi þeirra voru bundnar í upphafi, og staðreynd er það, að allt samband á milli þessara stofnana og sjálfra atvinnuveganna, sem þær eiga að þjóna, sjávarútvegsins og fiskiðnaðarins, er of losaralegt og of lítið enn þá.
Um tæknideild Fiskifélagsins langar mig aðeins til þess að segja örfá orð til uppfyllingar því, sem fram kemur í grg. Þessi stofnun eða þessi deild í Fiskifélaginu var á sínum tíma sett á laggirnar í samráði við stjórn Fiskveiðasjóðs til þess að þjóna almennri þörf útvegsmanna, fylgjast með nýjungum og vera Fiskveiðasjóði til aðstoðar við útboð í smíði skipa. Með núverandi getu deildarinnar eru þessi verkefni henni algerlega ofviða. Benda má á það, að við verjum hundruðum millj. kr. til skipakaupa og tækjakaupa og hvers konar endurnýjunar á skipum og tækjum árlega. Aðeins þessi litli visir að skipatæknilegum rannsóknum er til í landinu til þess að sinna þessum verkefnum. Efast ég ekki um, að milljónir fara árlega í súginn vegna þess, að þessa starfsemi vantar. Tæknideildin hefur reynt að halda uppi námskeiðum til þess að fræða starfandi skipstjóra og vélstjóra, og hefur oftast tekizt vel til. Ég tel því nauðsynlegt, að þessi námskeið haldi áfram jafnframt því sem skólum sjávarútvegsins verði gert kleift að kenna nýsveinum undirstöðuatriði.
Þriðji kaflinn í grg. minni fjallar um lánastofnanir sjávarútvegsins, og er þar fyrst vikið að þeirri stærstu og langmikilvægustu, sem er Fiskveiðasjóður, sem er aðalstofnlánasjóður sjávarútvegsins. Ég sé ekki ástæðu til þess að eyða löngu máli um hann, en ég vil undirstrika það, sem fram kemur í grg. minni með till. þessari, að ég tel, að breyta ætti til um sjálfa stjórn Fiskveiðasjóðs á þann hátt, að auk þeirra bankastjóra og bankamanna, sem þar sitja nú, verði bætt við fulltrúum frá fiskveiðunum og fiskiðnaðinum. Ég tel, að öll afgreiðsla á lánamálum og lánabeiðnum til Fiskveiðasjóðs mundi verða öruggari og byggð á meiri réttsýni, ef fulltrúar, sem gjörþekkja til þessara atvinnugreina, ættu sæti í sjóðsstjórninni.
Um Fiskimálasjóð skal ég ekki heldur hafa mörg orð. Það er vitað, að á sínum tíma gegndi hann mjög verulegu og merkilegu hlutverki. Hann lánaði m.a. í árdaga til hraðfrystihúsa, sem þá var verið að byggja víða um landið, en síðan hefur það verkefni verið frá honum tekið og sett til Fiskveiðasjóðs, sem á allan hátt er eðlilegt. Mér virðist, að þeirri starfsemi, sem enn þá er eftir hjá Fiskimálasjóði, sé á allan hátt betur og eðlilegar fyrir komið í Fiskveiðasjóði í stað þess að viðhalda og reka sérstaka lánastofnun til þess að sinna því takmarkaða verkefni, sem Fiskimálasjóður gegnir í dag.
Ég skal svo ekki orðlengja þetta frekar. Að mínu viti og væntanlega okkar flm. er eðlilegt og hagkvæmt að sameina í eina löggjöf eins mikið af stjórnarstofnunum sjávarútvegsins og hagkvæmt og eðlilegt má telja, og miðar þessi till. að því, að sú hugmynd fái athugun kunnáttumanna og að frá þeim berist till. í þessum efnum, því að eins og ég gat um í upphafi, þá er það æði margra manna mál, sem þessum atvinnuvegi eru kunnugir, að þarna þurfi að bæta um frá því, sem er. Sá er líka tilgangurinn með tillöguflutningnum.
Ég legg svo til, herra forseti, að þáltill. þessari verði vísað til síðari umr. og hv. allshn.