17.12.1970
Sameinað þing: 18. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 584 í B-deild Alþingistíðinda. (383)
1. mál, fjárlög 1971
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Það var aðeins í tilefni af þessum ummælum hæstv. fjmrh. varðandi heimild eða till. um heimild til ríkisábyrgðar fyrir Blaðaprent h. f. Það kom skýrt fram, að hæstv. ráðh. er andvígur till. í sjálfu sér, en ég vildi nú mega vænta þess, að það lægi þá einnig líka ljóst fyrir, að hann mundi notfæra sér þessa heimild, ef meiri hl. Alþ. samþykkir að veita heimildina, vegna þess að að sjálfsögðu mundi till. verða öðruvísi orðuð, að ég tel, ef það væri meining hæstv. ráðh., þar sem hann er á móti efni málsins, að hann vildi ekki nota sér þessa heimild. Ég sem sagt vil skilja það svo, að verði meiri hl. Alþ. með till., mundi hann notfæra sér heimildina, þrátt fyrir þá afstöðu, sem hann hefur lýst til málsins, ef ekki kemur fram annað hér frá hans hálfu.