29.01.1971
Sameinað þing: 23. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 389 í D-deild Alþingistíðinda. (3847)
89. mál, einkaréttur ríkisins til lyfsölu
Sjútvrh. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Í framhaldi af flutningi þessarar till. vildi ég aðeins upplýsa það, að nú fyrir skömmu var gefin út ný lyfsölureglugerð, sem byggð er á lögum, sem sett voru hér fyrir, að mig minnir, 2–3 árum, þar sem mjög var þrengdur hagur þeirra einstaklinga eða apóteka, sem hafa farið með lyfsölu, og mjög aukið á allt eftirlit, sem hana varðar. Ég veit ekki, hvort þessi reglugerð er komin fyrir almannasjónir, en hún fór frá m., að mig minnir, fyrir einni eða tveimur vikum. Ég vil lýsa því yfir í sambandi við fsp. hv. 1. flm. þessarar till., að ég tel hana mjög athyglisverða og að hún eigi að fá gaumgæfilega athugun hér í n. Um sérstaka afstöðu mína til einkaréttar ríkisins eða einstaklinga þarf þm. ekkert að spyrja. Ég hef, eins og hann lýsti yfir, aðhyllzt það, að ríkið eigi að hafa á sínu valdi slíka hluti sem þessa. Þar tala ég að sjálfsögðu ekki fyrir hönd ríkisstj. í málinu. Um þetta hafa ekki verið deilur innan ríkisstj., þegar málið var þar á dagskrá.
Hv. þm. lagði mikla áherzlu á það, að ráðh. úthluti hér einstaka mönnum í gróðaskyni leyfum til sölu á lyfjum. Það, sem ráðh. eru að gera í þessu máli, bæði fyrirrennarar mínir og ég, er að framkvæma gildandi lög. Það eru sérstök lög um lyfjaskrárnefnd, og hún gerir sínar till. til ráðh., og það er meira formsatriði en hitt, að ráðh. staðfesti þessa reglugerð. Í nefndinni er fulltrúi ríkisins, og er hann formaður hennar, þannig að ríkið hefur mjög hönd í bagga með þessum málum eins og þau eru í dag. Ég skal ekki segja, hvort fulltrúi ríkisins sem slíkur getur ráðið úrslitum í verðákvörðunum hverju sinni, en hann er alla vega þarna með, og hann er fulltrúi ráðh. í lyfjaskrárnefnd og á að gefa honum skýrslu, ef hann telur, að of langt sé gengið. Ég vil sem sagt segja um málið í heild, að ég tel, að þessi till. eigi að fá vandlega skoðun og síðan verði látið á það reyna, hvort meiri hl. sé fyrir þeirri breyttu tilhögun, sem þessi þáltill. gerir ráð fyrir, frá gildandi lögum. Ég vænti þess, að þetta séu nægjanleg svör.