23.02.1971
Sameinað þing: 27. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 394 í D-deild Alþingistíðinda. (3860)
93. mál, löggjöf um rétt til óbyggða, afrétt og almennings
Jón Árm. Héðinsson:
Herra forseti. Ég sé ástæðu til að þakka fyrir, að þessu máli er hér hreyft. Ég er sannfærður um, að hér er um eitt hið mikilvægasta mál að ræða, sem við eigum við að glíma á næstu árum. Það er alveg skýlaust, að eignarréttur er mikilvægur hér á landi, og mér er sagt, að í setningarræðu í gær á Búnaðarþingi hafi formaður Búnaðarfélagsins kveðið svo að orði, — e.t.v. er það mismæli, e.t.v. er það ekki alveg laukrétt hermt, — en hann hafði átt að segja: „Um 2700 bændur eiga landið.“ Hvað eigum við hinir þá og hvað á þá öll íslenzka þjóðin, ef 2700 bændur eða þar um kring eiga allt landið?
Það kom skýrt fram í máli ræðumanns, að hann taldi, að víst væri, eins og hann orðaði það, að ríkið ætti mikinn hluta landsins, en ekki liggur ljóst fyrir, hvað ríkið á. Ég tel það vel tímabært, að það liggi ljóst fyrir á 1100 ára afmæli landsins, hvað íslenzka þjóðin á og hvað einstakir þegnar eiga, og það yrði skýrt afmarkað og undinn að því bráður bugur að fá löggjöf um það, sem tekur fram, hvað hver á, að nytjar þeirra, sem hafa nytjað landið, séu tryggðar. Það ætlast enginn til þess, að þeir missi af sínum nytjum, sem hafa nytjað öræfin, en það liggur líka ljóst fyrir, að fjöldi bænda hefur rekið upp í sameiginlegan almenning, án þess að eignarréttur sé viðurkenndur. Það kemur líka skýrt fram í sambandi við hæstaréttardóm í Nýjabæjarmálinu svo nefnda um afréttir, að það er mjög erfitt að sanna eignarrétt uppi í óbyggðum. Það er nauðsynlegt, að þetta komi fram vegna þeirra möguleika, eins og ræðumaður kom inn á, sem búa í óbyggðunum. Ég tel þess vegna mjög nauðsynlegt, að menn hugleiði það alvarlega að leysa þennan hnút, sem fram undan er, því að ella verða mjög mörg erfið mál fram undan, sem skapa erfið málaferli.
Ég ætlast ekki til þess, að þeir, sem hafa nytjað landið um áratugi með upprekstri á búfé eða með veiðum, missi sinn rétt. En það verður að liggja ljóst fyrir, hver á landið. Á þjóðin það sameiginlega eða er það eign nokkurra einstaklinga eða hreppsfélaga? Og það verður að höggva á þennan hnút sem fyrst, ella stefnir í voða.
Það er sagt, að ein jörð í Mývatnssveit eigi stærra landssvæði en t.d. Árnessýsla öll er. Ég veit ekki, hvort nokkrir pappírar liggja fyrir um þessa eignaraðild. En þessu hefur verið haldið fram um áratugi. Mest af þessu landi er vötn og sandar og hraun og jöklar, en engu að síður er það talið í bókum, að því er mér er tjáð, eign vissra jarða og vissra manna þá um leið. Nauðsyn er því á, að hv. Alþ. taki undir þessa till. hér og stuðli að því, að löggjöf verði sett um, hverjir eiga landið.