02.03.1971
Sameinað þing: 29. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 403 í D-deild Alþingistíðinda. (3882)
115. mál, dreifing framkvæmdavalds
Jónas Pétursson:
Herra forseti. Þessi till. er nú búin að liggja alllengi hér á borðum okkar, eins og ýmsar fleiri í hv. Sþ. Ég vil aðeins taka undir það, að hér er hreyft merkilegu máli, og raunár var þessi till. flutt fyrir nokkrum árum, — ég held af hv. þm. Birni Jónssyni, lík till. a.m.k. Ég vil þó nota tækifærið og víkja aðeins máli mínu til hv. flm. út af því, að ég hef einmitt verið sérstakur baráttumaður fyrir því í verki að reyna að hamla á móti þessu miðstjórnarvaldi allra stofnana hér í Reykjavík. Það eru raforkumálin, sem ég tel einmitt vera alger grundvallarmál í öllum þessum sjálfstæðismálum byggðarlaganna í landinu, vegna þess að raforkumálin eru orðin svo mikilvæg, að þau raunverulega stjórna allri starfsemi. Allur atvinnurekstur er orðinn meira háður raforku en nokkru öðru, að við tölum ekki um allt daglegt líf fólks. En eins og marga mun reka minni til, þá flutti ég hér á Alþ. fyrir nokkrum árum frv. um sjálfstætt raforkufyrirtæki á Austurlandi, og ég held, að það muni allir einnig hafa veitt því athygli, að þá var ekki mikill áhugi hjá hv. flm. þessarar till. á því að styðja mig í því máli. En ég vil ítreka það, að ég álít, að það sé einmitt eitt af þeim verksviðum, þar sem við eigum að byrja og þar sem auðveldast er að byrja. Þið munið e.t.v. eftir því líka, að þegar frv. um Lagarfossvirkjun var hér á ferðinni í vetur, þá beitti ég mér fyrir því, að inn í það kæmi ákvæði, þar sem heimilað væri að veita heimaaðilum þátttöku í þeirri virkjun. Það er alveg rétt, að þessi hv. þm. lagðist ekki beint þar á móti, en væntanlega rekur hann einnig minni til þess, að hér flutti hann þá ræðu, sem gekk í þá átt að tortryggja á allan hátt það, sem vakti fyrir mér með þessari baráttu. Og ég man eftir því, að í blaðinu Þjóðviljanum var slegið upp daginn eftir þessari fyrirsögn: „Á að leggja niður Rafmagnsveitur ríkisins?“ Þarna er einmitt um eitt ríkisfyrirtæki að ræða, sem ég tel, að nú hafi lokið sínu hlutverki. Ég tel, að það eigi að skipta því upp, og ég held, að það sé meira að segja talsverður prófsteinn á það, hvað menn meina, þegar menn eru að tala um, að það þurfi að efla sjálfstæði byggðarlaganna með ýmsum hætti með því að flytja miðstjórnarvald burtu héðan úr höfuðborginni o.s.frv.
Ég vil enn fremur minna á það, að núna fyrir stuttu var lagt hér fram frv. um verkfræðiráðunauta ríkisins. Ég lýsti því þá hér í Nd. hv. Alþ., — að það væri auðvitað hin mesta nauðsyn að fá tæknimenn út um landið, en ég væri algerlega mótfallinn því, að það væri ríkið, sem réði yfir þessum mönnum. Og ég tel, að það sé einmitt hlekkur í þessu máli, sem hér er um að ræða, og við verðum að átta okkur á því, hvernig á að taka á þessu. Það er ekki mest um vert að færa, ef svo mætti segja, angana út um allt frá stofnunum, miðstjórnarstofnunum, sem hér eru settar, heldur beinlínis að skipta málunum meira upp og veita byggðarlögunum meira sjálfstæði.