09.03.1971
Sameinað þing: 33. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 434 í D-deild Alþingistíðinda. (3939)
152. mál, fiskverð á Íslandi og Noregi
Guðlaugur Gíslason:
Herra forseti. Ég vil taka undir það, sem hér hefur komið fram og í þáltill. felst, að rannsakað verði, í hverju sá mismunur liggur, sem allir vita, að er á fiskverði hér á landi og í nágrannalöndunum. Ég tel þetta ekki einasta nauðsynlegt vegna sjómanna eða útgerðarmanna, ég tel það ekki síður nauðsynlegt vegna fiskiðnaðarins í heild eða þeirra aðila, sem taka við fiskinum til vinnslu, því ef aðeins er litið á þær tölur, sem mest er talað um, hið beina fiskverð hér á landi og svo í Noregi, Danmörku og Færeyjum, þá mætti ætla, að verulegur hlutur og kannske allt of stór hlutur af andvirði fisksins gengi til fiskvinnslustöðvanna eða fiskiðnaðarins, sem þá ætti að koma út með verulegum fjárhagslegum ágóða. Því miður er þetta ekki svo; því að þótt vitað sé, að aðstaða fiskiðnaðarins hafi batnað núna s.l. tvö ár, þá hygg ég, að afkoma fiskiðnaðarins almennt, ef litið er á lengra tímabil, sýni ekki, að þar hafi verið tekinn neinn óeðlilegur gróði umfram það, sem eðlilegt verði að teljast í sambandi við afskriftir og endurnýjun bæði bygginga og tækja. Ég tel einmitt, að vegna þessara ástæðna sé það ekki síður mikilsvert fyrir fiskiðnaðinn, að þetta mál sé rannsakað.
Nú er það svo, að hér á landi er, eins og allir vita, starfandi verðlagsráð sjávarútvegsins. Þar eiga bæði sæti fulltrúar seljenda og fiskkaupenda, fulltrúar sjómanna og útgerðarmanna annars vegar og fulltrúar fiskiðnaðarins hins vegar. Verðlagsráð á aðgang að öllum opinberum upplýsingum, sem hægt er að finna í sambandi við afkomu sjávarútvegsins, bæði bátanna og fiskiðnaðarins, þannig að fulltrúum fiskseljenda hlýtur að vera það ljóst, að þarna er um annað að ræða en að fiskiðnaðurinn hafi í gegnum árin tekið til sín óeðlilegan hlut af fiskverðinu.
Það er rétt, sem kom fram hjá hv. framsögumanni, að það er nokkuð erfitt og nokkuð flókið að bera saman fiskverðið hér á landi og annars staðar, því að uppgjöri til útgerðarmanna og sjómanna er skipað nokkuð á annan veg hér en í Noregi og öðrum löndum í okkar nágrenni. Það liggur augljóslega fyrir a.m.k. nú í ár, og einnig gilti það um s.l. ár,,að af brúttósöluverði útfluttra sjávarafurða er tekin veruleg upphæð, ég hygg mun stærri upphæð en hv. flm. nefndi hér áðan, því að veruleg upphæð af brúttóandvirði sjávarafurða er tekin í verðlagssjóð. Verðlagssjóði var á sínum tíma komið á fót með lögum hér frá Alþ., og man ég ekki betur en að menn væru almennt sammála um, að það væri mjög eðlilegt, að hann tæki til starfa og á þeim grundvelli, sem ráð var fyrir gert, og verður að telja, að svo sé, því að ef svo færi, að verð sjávarafurða félli skyndilega á erlendum markaði, þá á að vera hægt að mæta því verðfalli með því fjármagni, sem verðlagssjóður er nú að fá til ráðstöfunar, án þess að fiskverð hér á landi þyrfti að lækka, og á ég þar við fiskverð til sjómanna og útgerðarmanna. Það má því segja, að verðlagssjóður — en í hann er nú tekinn verulegur hlutur af andvirði sjávarafla — sé nokkurs konar trygging fyrir þá aðila, sem útgerð stunda, og þá jafnframt þá sjómenn, sem á bátaflotanum eru. Þetta m.a. gerir það að verkum, að fiskverð hlýtur að lækka, útborgunarverð á fiski bæði til útgerðarmanna og sjómanna.
Í sambandi við aðstöðu Norðmanna er það alkunna, að þeir hafa hlutfallslega mun meiri sölu á fiski innanlands en við höfum hér á landi. Ég hygg, að verð á neyzlufiski sé mjög hátt í Noregi, þannig að ætla má, að fiskkaupendur geti með því eitthvað jafnað til verðinu á því, sem þeir selja innanlands, og á því, sem þeir þurfa að vinna sem útflutningsvöru á erlendan markað. Þá er aðstaða Norðmanna, Færeyinga og Dana nokkru betri að því leyti, að þeir hafa aðstöðu til þess að flytja ferskan fisk á nokkuð örugga markaði. Norðmenn flytja, eins og vitað er, mikið af ferskum fiski yfir til Bretlands, eru ekki eins háðir þeim sveiflum, sem á þeim markaði eru, eins og Íslendingar, hafa þar oft og tíðum fyrirframsamninga og hafa með því náð hærra verði á þessum ferska fiski en þeir geta fengið út úr þeim fiski, sem unninn er, hvort sem er í frystingu eða í salt. Þessi aðstaða er miklu erfiðari hjá Íslendingum. Þó að hún þekkist í mjög smáum mæli, þá er hún miklu erfiðari og getur, ég er ekki með neinar fullyrðingar um það, en mér sýnist, að hún geti mjög vel leitt til þess, að norskir fiskkaupendur geti af þessum orsökum að einhverju leyti greitt hærra verð fyrir fiskinn til útgerðarmanna og sjómanna. Einnig kemur það til, að vitað er, að uppbótakerfi er í Noregi og einnig Danmörku, þar sem ríkissjóður greiðir nokkurn hluta af fiskandvirðinu. Allt þetta tel ég eðlilegt, að rannsakað sé, og Alþ. og allir þeir, sem láta sig þessi mál varða, fái um þetta réttar upplýsingar, þannig að við vitum, hvar við stöndum í þessu sambandi. Þó tel ég nú, að nokkuð hafi eyðzt sú tortryggni, sem áður var um þetta, þegar útgerðarmenn eða sjómenn horfðu beint á þær tölur, sem fyrir hendi voru um fiskverð hér og annars staðar — sú tortryggni hafi nokkuð eyðzt við það, að verðlagsráð sjávarútvegsins og fulltrúar þessara aðila þar eiga aðgang að öllum skjölum varðandi rekstur frystihúsanna og fiskvinnslustöðvanna, þannig að þeir geta kynnt sér, hver hlutur þeirra raunverulega sé í sambandi við fiskverðsálagninguna.
Ég skal nú ekki fjölyrða meira um þetta. En eins og ég sagði í upphafi, þá tel ég mjög eðlilegt, að sú rannsókn, sem þarna er gerð tillaga um, verði látin fara fram. Hygg ég, að það verði öllum til nokkurs hagræðis, sem nálægt þessum málum koma, að fyrir liggi réttar upplýsingar og menn fái vitneskju um það, í hverju sá munur liggur, sem nú virðist vera á verði á ferskum fiski til útgerðarmanna og sjómanna hér á landi og í nágrannalöndunum. Eins og hv. flm. tók réttilega fram, er þetta að mörgu leyti flókið mál, grípur þar margt inn í, en að mínum dómi er því meiri ástæða til þess, að það verði rannsakað og upplýst.