03.12.1970
Neðri deild: 27. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 498 í D-deild Alþingistíðinda. (4070)
134. mál, rannsókn á verðhækkunum
Flm. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Á þskj. 164 höfum við hv. 4. þm. Reykv. og hv. 5. þm. Austf. leyft okkur að flytja till. til þál. um rannsókn á verðhækkunum.
Eins og fram hefur komið í umr. hér fyrr á hv. Alþ. á þessu hausti, hafa orðið miklar umr. hér á Alþ. og eins í blöðum um verðhækkanir þær, sem hafa orðið síðan gerðir voru kjarasamningar í júnímánuði s.l. Menn eru ekki á eitt sáttir um það, hvað valdið hafi þessum verðhækkunum, og heldur ekki um hitt, hversu miklar þær hafi verið. Þess vegna höfum við, sem flytjum þessa þáltill., talið, að nauðsyn bæri til að fá úr því skorið, hvað þessar verðhækkanir hafi orðið miklar, og svo hitt, hvað hafi valdið þeim. Þess vegna leggjum við til með þessari þáltill., að skipuð verði fimm manna nefnd innandeildarþm. hér í hv. Nd. samkv. 39. gr. stjórnarskrárinnar til þess að rannsaka þetta mál. Það er hugsun okkar flm., að hér skuli ekki eingöngu rannsaka verðhækkanir á þeim vörum, sem eru undir verðlagseftirliti, heldur og allar þær verðhækkanir, sem hafa átt sér stað frá því að kjarasamningarnir voru gerðir í júní og þar til að ákveðin var verðstöðvun I. nóv. Við viljum láta rannsaka eðli þessara hækkana og ástæðuna fyrir þeim. Í öðru lagi teljum við, að það sé nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því, hvort þessar hækkanir hafi verið sérstaklega óeðlilegar. Því hefur verið haldið fram, bæði af okkur og öðrum í umr. þar um, að það hafi verið hægt að hafa vald á því, að þessar verðhækkanir yrðu ekki svo miklar sem raun ber vitni um, og hafi borið nauðsyn til að gera það. Við höfum deilt á hæstv. ríkisstj. fyrir að hafa ekkert aðhafzt í þeim efnum fyrr en um seinan. Og við teljum okkur ekki þurfa að eyða löngum tíma í að rökstyðja það, að verulegar verðhækkanir hafi átt sér stað umfram það, sem gert var ráð fyrir, þegar kjarasamningar voru gerðir, því að ég trúi því ekki, að þeir hefðu verið gerðir með þeim hætti, ef hæstv. ríkisstj. hefði reiknað með því að þurfa að eyða um einum milljarði af tekjum þjóðarinnar í niðurgreiðslur, eftir að áhrif þeirra væru komin fram. Ég trúi því ekki, að þá hefðu verið gerðir slíkir samningar sem gerðir voru hér á s.l. vori. Ég tel hins vegar, að það hafi komið fram í umr. þar um, að það var gert ráð fyrir því, að atvinnuvegirnir gætu borið þær verðhækkanir, sem kæmu eðlilega vegna þeirra, og þyrfti ekki aðgerða ríkisvaldsins við. Þessi athugun mundi einnig leiða til þess, að það yrði rannsakað og það kæmi í ljós, hvort verðlagseftirlitið í landinu er þess virði, sem menn ætla, hvort eftirlit af hálfu verðlagsyfirvalda er með þeim hætti, að ekki eigi sér stað óeðlilegar hækkanir m.a. á því, sem undir verksvið þeirra heyrir. Þess vegna leggjum við á það mikla áherzlu, að þessi rannsókn á verðlagsmálunum verði mjög víðtæk og alger, svo að í ljós komi eðli verðhækkananna og ástæður til þeirra og eftirlit, sem haft er með verðlagi hér á landi. Í tillögugerð okkar leggjum við svo til, að niðurstöður af þessari rannsókn, sem þarna fer fram, verði lagðar fyrir Alþ. og Alþ. meti það, til hverra aðgerða beri að grípa að rannsókn lokinni. Við teljum, að verðlagsyfirvöldin eigi að grípa inn í það, sem óeðlilegt kemur fram við þessa rannsókn, og að Alþ. eigi svo að meta, til hvaða aðgerða eigi að koma, eftir að málið hefur hlotið allsherjarrannsókn eins og hér er lagt til. Við teljum nauðsynlegt, að slík rannsókn fari fram og hún sé víðtæk og Alþ. meti svo, hvaða aðgerða sé þörf að henni lokinni. Það sé nauðsynlegt að grípa til þess ráðs, þegar svo víðtækar deilur hafa orðið manna á meðal um þetta atriði. Eins og ég áður sagði, þá leggjum við á það höfuðáherzlu, að gerð verði allsherjarrannsókn á verðhækkunum, sem orðið hafa síðan kjarasamningarnir voru gerðir. Við leggjum einnig á það höfuðáherzlu í tillögugerð okkar, að við gefum ekki neinar fyrirskipanir um aðgerðir þær, sem Alþ. ákvæði, þegar rannsóknir lægju fyrir. Hins vegar leggjum við á það megináherzlu, að rannsóknin fari fyrst fram og ákvörðun Alþ. um málið verði tekin á eftir. Þessi till. lokar engri leið til aðgerða af hálfu Alþ., hins vegar er hún víðtæk og krefst þess, að fyrir Alþ. liggi heildarrannsókn á málinu, áður en ákvörðun um aðgerðir verður tekin.
Ég mun ekki, nema tilefni gefist til, fara að ræða hér það, sem fram kom í umr. um þáltill. um skylt efni hér fyrir nokkru, því að ég tel, að síðar gefist tækifæri til þess að ræða það, sem þar kom fram, og það eigi ekki erindi inn í þessar umr. Mun ég þess vegna ekki gera það, nema tilefni gefist til. Ég tel hins vegar, að þessi grg. nægi til að skýra eðli málsins, og legg svo til, herra forseti, að umr. verði frestað og málinu vísað til hv. fjhn.