25.02.1971
Neðri deild: 53. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 515 í D-deild Alþingistíðinda. (4102)
167. mál, Landssmiðjan
Forsrh. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Síðustu spurningu hv. þm. um, hvenær vænta megi löggjafar, get ég náttúrlega ekki svarað, en rn., sem hefur haft þessi mál til meðferðar, er einmitt þessa dagana að skila mér till. um frv. Hvort þær svo ná fram að ganga eða ekki, veit ég ekki, en það skiptir kannske ekki öllu máli á þessu stigi málsins, vegna þess að ég tel, að rekstur verksmiðjunnar sé nú tryggður fram á næsta haust, en það þarf að búa þannig að henni, að hún sé reiðubúin til þess sjálf að taka til starfa með eðlilegum hætti í framtíðinni og ekki þurfi að eiga þessi löngu viðtöl við ráðh., eins og hv. þm. talaði um. En þetta er allt í burðarliðnum.
En það eru nú kannske fleiri ráðh. en við, þessir vesalings íslenzku ráðh., sem eru eins og útspýtt hundsskinn fyrir fyrirtæki og stærri fyrirtæki en við eigum að fjalla um. Ég nefni nú aðeins í því sambandi hinar heimsfrægu Rolls Royce-verksmiðjur, sem menn hafa heyrt fréttir af þessa dagana, og Burmeister & Wain, eitt stærsta skipasmíðafyrirtæki, sem var í Danmörku um langan aldur, og fleira mætti sjálfsagt nefna.
Mig langar að víkja að einu atriði í ræðu hv. 6. þm. Reykv., þar sem hann mæltist til þess, að ég fylgdi a.m.k. till. sinni um það, að Alþ. skæri úr um það, hvort Landssmiðjan yrði lögð niður eða ekki. Þetta leiðir auðvitað af sjálfu sér, og hefur aldrei verið gert ráð fyrir öðru. Það eru til lög um landssmiðju á Íslandi, og spurningin hjá okkur innan ríkisstj. var um það á sínum tíma, hvort við ættum að afnema þau lög eða ekki. Það verður auðvitað í höndum Alþ. (Gripið fram í.) Jú, en hér var spurt um það, hvort ég gæti fallizt á þá skoðun hans, að Alþ. ætti að skera hér úr, og það fellst ég auðvitað á, og eins og ég segi, það leiðir af hlutarins eðli, að Alþ. skeri úr um það, hvenær sem það verður. Það hefur einu sinni verið ákveðið að setja á stofn þetta fyrirtæki, og það er ekki önnur stofnun en Alþ., sem getur ákvarðað um það, ef ekki á að halda áfram rekstri.
Þegar n. fær þetta mál um Landssmiðjuna til meðferðar og eins og till. er orðuð, að það eigi að athuga alls konar endurskipulagningarmöguleika á verksmiðjunni, þá vil ég mælast til þess við hv. n., að hún afli sér allhás bunka af grg. og álitsgerðum og útreikningum, sem fyrir liggja í iðnrn. frá síðustu árum og fari rækilega í gegnum hann, áður en hún tekur sína endanlegu ákvörðun.
Það að setja upp útibú annars staðar úti á landi er nokkuð frumleg hugmynd, en ég er nú hræddur um, að sá hv. þm., sem kom með þá till. að setja upp útibú Landssmiðjunnar á Skagaströnd og annars staðar, mundi ekki sækja um útibússtjórastöðu, þegar hún yrði auglýst þar.