27.03.1971
Neðri deild: 74. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 519 í D-deild Alþingistíðinda. (4116)

290. mál, hlutafélag til kaupa og reksturs á verksmiðjutogara

Flm. (Haraldur Henrýsson):

Herra forseti. Þessi stutta ræða hæstv. forsrh. er glöggt vitni um þá miklu þröngsýni, sem ríkir meðal ráðamanna í þessum efnum. Í fyrsta lagi reyndi hann að gera það að aðalatriði í mínum málflutningi, að hlutafélagið Úthaf hefði ekki getað keypt slíkan togara. Það er algert aukaatriði. Aðalatriðið er það, hvort við Íslendingar eignumst slík skip. Fyrir mörgum árum hefur verið bent á nauðsyn á þessum skipum. Hlutafélagið Úthaf varð til vegna skilningsleysis að áliti sjómannasamtakanna hjá ráðamönnum á nauðsyn slíkra skipa, þannig að það hlutafélag varð til til þess að reyna að knýja þetta mál fram. Það varð til að forgöngu þessara sjómannasamtaka. Þetta hlutafélag er stofnað fyrst og fremst vegna áhuga þessara samtaka á þessu máli, en það er ekki stofnað í neinu eiginhagsmunaskyni, og hluthafar í þessu félagi eru úr öllum starfsstéttum og mjög margir.

En síðan kom ráðh. að hinu, að nauðsyn þessara skipa, og þar sneri hann út úr mínum orðum. Ég tók það einmitt mjög skýrt fram, að þessum skipum væri ætlað að leita á fjarlægari mið, einmitt á þau mið, sem þau skip, sem við eigum núna, geta ekki sótt á og skilað fullkominni og fyrsta flokks vöru. Og það er einmitt þetta, sem haft er í huga, þegar við erum að benda á nauðsyn þess að fá svona skip. Við viljum auka og breikka grundvöll sjávarútvegsins, þannig að við getum unnið á fleiri miðum, getum haft fleiri vígstöðvar og þannig treyst grundvöll þjóðarbúskaparins. Og ég tel, að það sé okkur mikil nauðsyn. Rætt hefur verið um það á síðustu árum, að það ætti að fara að skipta úthafinu niður í kvóta milli fiskveiðaþjóðanna miðað við það, sem þær hafa veitt þar á undanförnum árum. Ég tel, að okkur sé mjög mikilvægt að komast inn í þennan kvóta, að við verðum ekki útilokaðir. Ef við drögum það miklu lengur að hefja fiskveiðar á úthöfunum, þá getum við verið settir þar út.

Ég sé ekki ástæðu til þess að fjölyrða frekar um þetta, en ég tel, að ræða hæstv. forsrh. sýni glögglega þá þröngsýni, sem ríkir innan ríkisstj. í þessum málum, og því fyrr sem sú þröngsýni verður útilokuð, þeim mun betra.