26.03.1971
Efri deild: 76. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 524 í D-deild Alþingistíðinda. (4131)

274. mál, sjúkraflug á Vestfjörðum

Flm. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Ég leyfi mér að leggja fram í þessari hv. d. till. til þál. um sjúkraflug á Vestfjörðum. Í hv. Nd. liggur fyrir þáltill. um svipað málefni: Athugun á sjúkraflugi á Vestfjörðum með þyrilvængju. Ég tel hins vegar nauðsynlegt, að samfara þeirri athugun, sem þar er lagt til, að verði gerð, verði einnig framkvæmd athugun á sjúkraflugi með venjulegum tveggja hreyfla flugvélum.

Heilbrigðisþjónusta hefur verið mjög á dagskrá á hinu háa Alþingi, sem von er. Þetta er einn hornsteinn nútíma velferðarþjóðfélags, og því miður er það staðreynd, að víða í dreifbýli þessa lands er pottur brotinn í þessu sambandi. Hafa hv. alþm. bent á ýmsar leiðir til úrbóta, m.a. að flytja inn erlenda lækna og að skylda íslenzka lækna til að vera lengur úti í dreifbýlinu heldur en nú er. Sjálfur er ég þeirrar skoðunar, að aldrei fáist lausn á þessu máli nema í nánu samstarfi við læknastéttina. Tel ég, að það samstarf eigi að efla, og harma, að það hefur ekki verið eins gott og nauðsynlegt er, til þess að samstaða geti náðst um lausn í þessu mikilvæga máli.

Helzt hafa læknar bent á læknamiðstöðvar sem líklega lausn á læknavandræðum dreifbýlisins. Ég er þeirrar skoðunar, að á þær beri að leggja ríka áherzlu. Læknamiðstöðvar koma hins vegar ekki að tilætluðum notum, nema læknum, sem þar eru, sé gert kleift að komast út til hinna ýmsu staða á þeirra svæði, sem oft eru innilokaðir í snjóum og erfitt með samgöngur. Þeir þurfa að geta farið á landi með snjóbílum, þegar það er unnt, en oft er það ekki, og verða þá að koma önnur tæki til. Einnig er það mjög algengt úti í dreifbýlinu, að flytja verði sjúklinga nokkurn veginn án tafar á hin fullkomnari sjúkrahús, eins og t.d. í Reykjavík. Mjög oft hafa íslenzkir flugmenn þá hlaupið undir bagga og bjargað lífi með flýti og áræði, þegar þeim hefur tekizt að flytja fársjúka sjúklinga í sjúkrahús í Reykjavík eða annars staðar um landið.

Ég tel vafasamt, að annars staðar sé þetta ástand alvarlegra en á Vestfjörðum. Á vetrum eru Vestfirðirnir mjög víða innilokaðir, erfitt eða útilokað að komast þar um landveg. Oft er næstum því eina leiðin með flugvélum og venjulega minni flugvélum, ef mikið liggur við, því að flugvellir eru ekki stórir víðast hvar.

Þyrla er vitanlega hið þarfasta þing, en staðreyndin er sú, að þyrla af þeirri stærð, sem nauðsynleg er til þess að geta flogið í misjöfnu veðri og sviptivindum, kostar um 40–50 millj. kr. og viðhald slíks tækis er mjög mikið. Þyrla þarf að hafa upphitað skýli og helzt ávallt einn til tvo viðgerðarmenn, og stöðugt eftirlit þarf að vera og ítarleg athugun jafnvel eftir tiltölulega fáa flugtíma. Vátrygging á því tæki er mjög kostnaðarsöm og fæst ekki, er mér tjáð, nema flugmaður hafi a.m.k. þús. flugtíma á þyrlu. Því sjá allir, að það er miklum erfiðleikum bundið að halda úti slíku tæki í dreifbýlinu.

Ég er þeirrar skoðunar, að það beri að leggja ríkari áherzlu á að afla fullkominnar þyrlu til Landhelgisgæzlunnar, sem þá er unnt að grípa til, þegar önnur tæki duga ekki.

Ég tel hins vegar skynsamlegra að bæta flug venjulegra tveggja hreyfla flugvéla, sem vel eru búnar tækjum, þannig að þær geti sinnt sjúkravitjun og sjúkraþjónustu, þegar þörf er á. Venjulega tveggja hreyfla flugvél, sem er búin fullkomnum blindflugstækjum og öðru, sem nauðsynlegt er í misjöfnu veðri, má fá fyrir innan við 10 millj. kr., líklega fyrir u.þ.b.6–10 millj.

Það er mín skoðun, að slík flugvél þurfi að vera staðsett á Vestfjörðum. Hún getur auk þess að sinna sjúkraflugi komið að mjög miklum notum við flutninga um Vestfirðina, bæði á mönnum, á pósti og við vöruflutninga, sem mjög aukast nú með flugvélum. Það er skoðun þeirra, sem á þetta mál hafa litið vandlega, að líklegt sé, að slík flugvél geti jafnvel staðið undir sér á Vestfjörðum, ef hún fær góða fyrirgreiðslu og lögð er áherzla á að nota hana fyrst og fremst til flugs um svæðið.

Flugvellir á Vestfjörðum eru satt að segja nokkuð margir. Mér telst til, að þeir séu a.m.k. 25. Þar af eru þrír flugvellir, sem eru allfullkomnir og vel búnir tækjum, þ.e. flugvöllurinn á Ísafirði, á Þingeyri og á Patreksfirði, en 22 eru minni flugvellir, svo kallaðir sjúkraflugvellir, og eru þeir að sjálfsögðu nokkuð misjafnir. Yfirleitt mun það vera svo, að þessa sjúkraflugvelli þarf að lagfæra nokkuð frá því, sem nú er. Nauðsynlegt er að bera betur ofan í þá. Þeir eru oft mjög lausir og afar erfiðir, sérstaklega í leysingum, en þetta má auðveldlega bæta. Fæstir þessara flugvalla eða jafnvel engir eru með ljósum. Ljós má fá tiltölulega ódýr, þannig að unnt er að lenda í myrkri, en þó er slíkt vafasamt á þeim flugvöllum, sem eru staðsettir t.d. inni í þröngum fjörðum og hindranir eru í vegi fyrir næturflugi.

Flugvellir eru á Gjögri, Hólmavík, Kollafjarðarnesi og á Borðeyri í Strandasýslu. Allt eru þetta flugvellir, sem með tiltölulega litlum kostnaði má lagfæra. með því að bera ofan í þá. E.t.v. þarf þó að lengja og bæta flugvöllinn á Borðeyri nokkuð meira.

Á Króksfjarðarnesi er góður flugvöllur, sem e.t.v. mætti þó lengja nokkuð, en það er ýmsum erfiðleikum háð. Á Reykhólum er hins vegar lélegur flugvöllur, sem þarf að bæta mikið.

Síðan eru flugvellir á Melanesi, Skálmarnesi, Brjánslæk og Hrísnesi, sem allir eru sæmilega viðunandi fyrir sjúkraflug og má með tiltölulega litlum kostnaði bæta þannig, að góðir geti talizt. Að Hvallátrum er flugvöllur, sem svipað er ástatt um.

Ég hef nefnt flugvöllinn á Patreksfirði, sem er sæmilega góður.

Flugvöll vantar á Tálknafirði. Þar þyrfti hið skjótasta að koma,sjúkraflugvöllur, enda auðvelt að gera hann á eyrinni, sem fyrir neðan kauptúnið er. Þetta hefur verið skoðað af flugmönnum, og dæma það allir, sem ég hef hitt, mjög gott flugvallarstæði og ódýrt. tel ég þetta einhverja mikilvægustu framkvæmdina á Vestfjörðum í gerð nýrra flugvalla.

Á Bíldudal hefur flugvöllur verið nokkurt vandræðamál. Þar var gamall flugvöllur, sem hefur lagzt niður, en einkaaðilar hafa gert þar annan flugvöll, og skilst mér, að flugmálastjórnin sé nú að festa kaup á þeim flugvelli. Geri ég þá ráð fyrir því, að hann verði endurbættur eins og nauðsynlegt er.

Þessir tveir staðir, Tálknafjörður og Bíldudalur, hafa þannig verið í erfiðu sambandi við flugvöll, því að eins til tveggja tíma akstur er frá þessum stöðum á flugvöllinn sunnan Patreksfjarðar. Það er því mjög nauðsynlegt að þarna séu a.m.k. sæmilega góðir sjúkraflugvellir.

Hjá bóndanum í Selárdal er jafnvel lítill flugvöllur, og geri ég ekki ráð fyrir því, að hann þurfi að bæta að ráði.

Á Þingeyri er nú kominn góður flugvöllur, og er það einstakt framtak einstaklings, sem hefur lyft þessu Grettistaki. Það hefur sannazt upp á síðkastið, að flugvöllur þessi er mjög mikilvægur. Þangað er mikið flogið og með fjölda farþega, og flutningar til og frá flugvellinum eru sömuleiðis miklir. Hefur það bætt úr mikilli þörf þess svæðis fyrir góðan flugvöll.

Á Núpi er flugvöllur, sem þarf að vísu að bera ofan í, eins og víðar, og sömuleiðis í Holti. Þar er 600 m braut. í Súgandafirði er aftur á móti vandræðaástand. Þar er erfitt að gera flugvöll. Litið hefur verið á tvo staði. Þeir munu báðir vera kostnaðarsamir í framkvæmd, og þarf að skoða þá töluvert nánar.

Í Bolungarvík er flugbraut, sem hefur að vísu ekki verið haldið við eins og skyldi, enda er sá staður nálægt Ísafirði. Þó getur þannig háttað til, að erfitt sé að komast út í Bolungarvík, og væri æskilegt, að flugvöllurinn þar væri lagfærður.

Á Ísafirði er að sjálfsögðu góður flugvöllur. Í Djúpinu eru allmargir minni sjúkravellir, t.d. við Ögur, á Strandseli, á Reykjanesi, Arngerðareyri og Melgraseyri og á Snæfjallaströndinni. Að vísu þurfa þeir nokkurrar lagfæringar við, t.d. á Melgraseyri, en varla mun það vera erfitt verk eða kostnaðarsamt.

Í Flatey er loks flugvöllur, sem þjónar eyjunum á Breiðafirði.

Ég hef talið upp þessa flugvelli til þess að leggja áherzlu á það, að margir flugvellir eru á svæðinu, sumir góðir, aðrir, sem þarf að vísu að bæta verulega, en þó mun ekki vera mikill kostnaður samfara þeim aðgerðum, sem þarna eru nauðsynlegar. Margir þessir flugvellir eru fyrst og fremst erfiðir í leysingum. Viðgerðarflokkar koma þangað oft seint og síðla sumars, og hafa þá einstakir flugvellir verið ónothæfir mikinn hluta sumarsins. Úr þessu þarf að bæta.

Niðurstaða mín verður því sú, að með venjulegri, góðri, tveggja hreyfla flugvél, sem kostar innan við 10 millj. kr., og með nokkurra millj. kr. fjárveitingu til endurbóta á flugvöllum á svæðinu öllu megi efla mjög sjúkraflug á Vestfjörðum og að öllum líkindum gera það mjög viðunandi. Þetta held ég, að sé skynsamleg framkvæmd, og því hef ég leyft mér að leggja til í þessari þáltill., að slíkar endurbætur verði athugaðar með tilliti til sjúkraflugs, jafnframt því sem athugun fari fram á sjúkraflugi með þyrilvængju.

Þó hef ég e.t.v. ekki minnzt enn á eitt mikilvægasta atriðið í þessu sambandi. Á Vestfjörðum er nú staðsett lítil flugvél, sem er í eigu hlutafélags, tiltölulega nýstofnaðs. Með þessari flugvél hefur þegar verið gert margt gott í sambandi við sjúkraflug. Hún hefur leyst mikinn vanda, eins og frá hefur verið greint í blöðum. Flugmaður þessarar vélar og þeir aðrir, sem að þessu fyrirtæki standa, hafa fullan hug á því að fá fullkomnari vél til Vestfjarða og eru áreiðanlega reiðubúnir til samstarfs við heilbrigðisþjónustuna við að leysa hið mikilvæga mál sjúkraflugsins. Þar held ég, að sé kjarni, sem rétt sé að hlúa að með samstarfi hins opinbera og einstaklinganna.

Að þessu mæltu vil ég óska eftir því, að umr. verði frestað og till. vísað til heilbr.- og félmn.