28.10.1970
Sameinað þing: 6. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 536 í D-deild Alþingistíðinda. (4144)

310. mál, Listasafn Íslands

Fyrirspyrjandi (Magnús Kjartansson):

Herra forseti. Veturinn 1968–1969 fjölluðum við þm. hér um frv. til l. um breyt. á lögum um Listasafn Íslands, þar sem lagaákvæði voru samræmd fenginni reynslu. Við í menntmn. Nd. höfðum þá á þann skynsamlega hátt, að við fórum í heimsókn á Listasafn Íslands til þess að kynna okkur þar störf og starfsaðstöðu. Við þá heimsókn kom það í ljós, sem sumir vissu að vísu nokkuð um áður, að aðstaða Listasafnsins í húsakynnum sínum var ákaflega bágborin, Í fyrsta lagi voru sýningarsalir allt of litlir. Þarna er hægt að sýna svo sem eins og 100 listaverk í senn, þó að listaverkaeignin sé orðin 1700–1800 listaverk. Auk þess kom það í ljós, að húsakynnin voru þá ákaflega léleg, húsið mjög gallað, sprungið og lekt, hitalögn og loftræstingarkerfi mjög áfátt, gluggar óþéttir, og frá sprungnu þaki hafði seytlað vatn inn í húsið. Þarna var ekkert eldvarnarkerfi og hvorki rakamælar né sjálfvirkir hitamælar. Auk þess kom það í ljós, að þá nýlega hafði orðið mjög alvarlegt slys í þessum húsakynnum, bilun á hitunarkerfinu hafði leitt til þess, að vatn hafði flætt niður um veggi safnsins og skemmt ein 15 listaverk, þ. á m. mjög ágæt listaverk eftir Jóhannes Kjarval, Jón Stefánsson, Guðmund Einarsson frá Miðdal og dýrmætar danskar myndir frá síðustu öld, sem voru hluti af stofni safnsins. Um þetta allt saman var rætt hér, þegar n. skilaði áliti um frv., og menn voru mjög einhuga um nauðsyn þess, að við svo búið mætti ekki standa. Þá var því heitið af hæstv. ráðh., að ráðizt yrði í lagfæringar á húsinu, og það var vissulega gert, en slíkar lagfæringar einar saman leysa ekki þann vanda, sem ég hef verið að lýsa. Og af þessum ástæðum fluttum við fjórir þm., einn úr hverjum flokki, sameiginlega þáltill., þar sem skorað var á hæstv. menntmrh. að beita sér fyrir því, að tekin yrði ákvörðun um lóð handa Listasafni Íslands og hafinn undirbúningur að byggingu jafnframt því, sem hæstv. ríkisstj. gerir áætlanir og till. um nauðsynlega fjáröflun, til þess að framkvæmdir geti gengið sem greiðlegast. Þessi till. okkar fékk ágætar undirtektir hér í þinginu. Um hana var fjallað í n., og n. lagði einróma til, að till. yrði samþ., og síðan var þessi ályktun samþ. í einu hljóði hér á Alþ. Ég ber fram þessa fsp. til þess að grennslast fyrir um það, hvað líði framkvæmdum á þessari þál.