28.10.1970
Sameinað þing: 6. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 554 í D-deild Alþingistíðinda. (4170)
319. mál, úthlutun fjárveitingar til jöfnunar námskostnaðar skólafólks
Halldór E. Sigurðsson:
Herra forseti. Það er rétt, sem hæstv. ráðh. sagði, að það er nokkuð dregið úr kostnaði hjá nemendum, sem eru í skyldunámi í heimavist. En enda þótt það sé gert, hafa þeir nemendur erfiðari aðstöðu en þeir, sem heiman geta gengið. Hins vegar er það svo, að þegar komið er í gagnfræðaskóla, falla þau hlunnindi niður, sem tilheyra skyldunáminu, eins og greiðsla til starfsfólks og fleira þar um. Um húsnæðið mun hins vegar vera rétt, að þeir þurfa ekki að greiða húsaleigu. Þess vegna er það ekki réttmætt, að þessir nemendur, þeir, sem frá því að þeir hófu barnaskólanám hafa haft erfiðari aðstöðu en þeir, sem að heiman hafa gengið, skuli sitja við það borð nú, að við þeim sé ekki einu sinni lítið. Og ég vil undirstrika það, að það er hróplegt ranglæti, ef þannig á að fara með þetta mál í framkvæmdinni síðar meir. Hæstv. ráðh. getur í þessu tilfelli afsakað sig með því einu, að fjárhæðin sé svo lítil, að það sé ekki hægt að skipta henni meira en gert er. En það er ekki réttlætanleg skipting að skilja nemendur í gagnfræðaskólum, sem heimavistar njóta, eða menntaskólum, sem heimavistar njóta, algerlega eftir, eins og hér er gert. Ég vil því undirstrika það, að það er óhugsandi, að það sé hægt að framkvæma þetta mál svo framvegis. Enda þótt þessir nemendur hafi minni húsaleigukostnað, hafa þeir mjög svipaðan fæðiskostnað, að ég hygg, og hafa auk þess haft erfiðari aðstöðu áður fyrr.