03.11.1970
Sameinað þing: 7. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 556 í D-deild Alþingistíðinda. (4176)

20. mál, haf- og fiskirannsóknir

Fyrirspyrjandi (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram svo hljóðandi fsp.:

„Hvaða skipakost er fyrirhugað að hafa á næsta ári til haf- og fiskirannsókna, fiskileitar og veiðitilrauna?“ Ég álít, að við stöndum að vissu leyti á tímamótum í sambandi við þessi mál, haf- og fiskirannsóknir, og hef leyft mér að flytja sérstaka þáltill. um, að fram fari sérfræðileg úttekt á því, hvernig við erum á vegi stödd í þeim efnum, og fer því ekki almennt út í málið í sambandi við þessa fsp., en ég vil vona, að þeirri till. verði vel tekið, þegar þar að kemur. En vegna þess að mér var ljóst, að það mundi dragast nokkuð, að hún gæti komið hér til umr., þá brá ég á það ráð að leggja fram þessa fsp. til hæstv. sjútvrh. strax í byrjun Alþ. til þess að vekja athygli á þessu máli nú þegar og fá ofurlitlar byrjunarumræður um það á þessu stigi.

Ég fer ekkert dult með, að ástæðan til þess, að ég flýtti þessum þætti málsins, var sú, að ég óttaðist, að það kynni að standa til að hætta að gera út fiski- og hafrannsóknarskipið Hafþór, sem ríkið á og hefur verið haft í þeirri starfrækslu. Og ástæðan fyrir þeim ótta voru m.a. ummæli, sem ég hafði heyrt falla um þau efni og sem raunar einnig komu fram í grg. við fjárlagafrv., þegar það svo birtist.

Ég vil benda á, að það er ákaflega rík nauðsyn á því að halda Hafþóri úti af fullum krafti, þó að Bjarni Sæmundsson bætist við, og má færa fyrir því mörg mjög veigamikil rök, sem ekki er hægt að koma að í sambandi við þetta mál núna, vegna þess að ræðutíminn er svo stuttur. En allir þeir, sem eitthvað þekkja til í þessum efnum, vita það, að rannsóknarefnin eru óþrjótandi, sem ekki hefur verið hægt að sinna, og það hefur heldur ekki verið hægt að veita fiskveiðiflotanum þá þjónustu, sem hann endilega þarf að fá, og má í því sambandi minna á, að líklega er íslenzki síldveiðiflotinn í Norðursjónum eini síldveiðiflotinn, sem ekki hefur stuðzt að neinu leyti við leitarskip, og þannig mætti raunar halda áfram að telja lengi.

Nýtízku fiskveiðar verður að reka með allt öðrum hætti en áður tíðkaðist, og í vaxandi mæli verður að veita fiskveiðiflotanum sérstaka þjónustu á þar til ætluðum skipum. Auk þess má benda á, að í sambandi við þá nýju sókn, sem verður að gera í landgrunnsmálinu, koma til greina ótal ný rannsóknarverkefni. Það er þess vegna augljóst mál, að þótt Bjarni Sæmundsson bætist við, þá megum við ekki með nokkru lifandi móti missa Hafþór úr þeim flota, sem þessa starfrækslu hefur með höndum. Ég mun ekki fara lengra út í þessi efni, en ég vil vona, að hæstv. sjútvrh. gefi okkur upplýsingar um fyrirætlanir sínar í þessum efnum á næsta ári og það komi a.m.k. fram í svari hæstv. ráðh., að það sé ekki neitt ákveðið um það enn sem komið er, að Hafþór verði tekinn úr þessari þjónustu og það sé opið til samninga og skoðunar, að hann verði áfram til að sinna þessum verkefnum. Sannast að segja finnst mér, að ef menn telja einhvern vafa leika á því, hvort það sé brýn nauðsyn að halda áfram að gera Hafþór út, þá ættu menn að geta sætzt á að láta fara fram á því skyndiskoðun, þar sem annars vegar væru menn frá Hafrannsóknastofnuninni og hæstv. ráðh. og hins vegar frá samtökum útvegsmanna og sjómanna — sem sé láta fara fram skyndiskoðun á því, hvernig við stöndum í þessum efnum, áður en gengið verður frá fjárlögum. Slík skyndikönnun yrði þá miðuð við, hvað rétt væri að gera á næsta ári, og gæti ekki að neinu leyti rekið sig á þá till., sem ég hef flutt, um að láta fara fram sérfræðilega úttekt á því, hvernig við stöndum, og gera 5 ára áætlun um fiski- og hafrannsóknir. Ég álít, að hér sé um svo veigamikil verkefni að ræða, að við ættum að gera um þessi efni áætlanir hliðstæðar þeim, sem hafa verið gerðar um rannsóknir á orkulindum landsins.