03.11.1970
Sameinað þing: 7. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 564 í D-deild Alþingistíðinda. (4189)

322. mál, símasamband milli Reykjavíkur og Vesturlands

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Það má segja já við fyrri fsp., en nei við þeirri seinni. Símasambandið milli Reykjavíkur og Vesturlands hefur á undanförnum árum verið endurbætt mjög verulega í sambandi við sjálfvirku símstöðvarnar á þessu svæði, og enn er verið að gera áætlanir um sjálfvirkt símstöðvakerfi í sveitum landsins. Í des. n.k. er enn fyrirhugað að bæta við 12 talsímarásum milli Reykjavíkur og Borgarness. Mun þetta gera símaafgreiðsluna greiðari milli Reykjavíkur annars vegar og hins vegar Akraness, Borgarness svo og Stykkishólms. Tengdum línum fjölgar milli Reykjavíkur, Borgarness og Stykkishólms, og léttir þar með hlutfallslega á sjálfvirku hnútunum í Borgarnesi og Akranesi. Auk þessa hefur að undanförnu verið til athugunar og reynslu við íslenzkar aðstæður sjálfvirkt sveitasímakerfi, sem tengt hefur verið við sjálfvirku símstöðina á Akranesi. Er hér um athyglisverða nýbreytni að ræða, þar sem margir bæir geta verið á sömu línu, en hún virðist enn lítið ódýrari en það að hafa bæina hvern á sinni línu í jarðsíma, ef um langar vegalengdir er að ræða.

Breyting á gjaldskrá Pósts og síma varðandi eitt gjald innan Vesturlandssvæðisins hefur ekki verið fyrirhuguð, enda mjög kostnaðarsöm og mundi leiða til mjög mikillar hækkunar á gjaldskránni vegna stórfelldra útgjalda í auknum símarásum og vélbúnaði. Það er réttara að segja, að þetta hefur ekki verið fyrirhugað nú á næstunni, en ég vil hins vegar segja það, að það hlýtur að verða til athugunar, og það má vel vera, að einhvern tíma geti að því komið, innan fárra ára, að það þyki rétt að samræma gjaldskrána í sveitum og kauptúnum eða hafa eina gjaldskrá fyrir hvert svæði. En það getur ekki orðið fyrst um sinn.