03.11.1970
Sameinað þing: 7. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 567 í D-deild Alþingistíðinda. (4197)
320. mál, Vesturlandsáætlun
Fyrirspyrjandi (Benedikt Gröndal):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svarið. Ég vil þó lýsa vonbrigðum mínum yfir því, að ekki skuli búið að taka ákvörðun um gerð slíkrar áætlunar. Að vísu er augljóst, að stjórn Atvinnujöfnunarsjóðs verður að raða þessum áætlunum á einhvern hátt og ekki er hægt að hafa of margar í framkvæmdum í einu. Þó vil ég láta í ljós nokkurn efa um, að það þurfi að takmarka starfið algerlega við eina áætlun í einu, því að fjárráð virðast vera nokkuð mikil.
Ég mun ekki fara út í að bera saman þörfina í hinum ýmsu landshlutum, það væri óhyggilegt, og ég vil ekki draga í efa, að þörfin er mikil í öðrum landshlutum. En ég hef orðið var við það undanfarin ár, að vegna þess að suðurhluti Vesturlandskjördæmis er skammt frá Reykjavík, telja menn, að þar muni ekki þurfa fyrir slíkum hlutum að hugsa fyrst um sinn. Þetta er mikill misskilningur. Það kreppuástand, sem hefur verið um árabil, leiddi í ljós, að það er mjög rík þörf á að taka þennan landshluta til athugunar og áætlunargerðar. Þá er það einnig augljóst, að þessi landshluti hefur dregizt mjög aftur úr í framkvæmdum í samgöngumálum undanfarin ár, en þarna er m.a. um að ræða samgöngubætur, sem munu koma öðrum landshlutum að mjög miklum notum. Það kemur við okkur, sem störfum fyrir Vesturland, þegar okkur er sagt frá því, hvað vegirnir batni stórkostlega mikið, eftir að komið er fyrir Gilsfjörð vestur á Vestfirði. Ég tel vissulega ekki eftir þær nauðsynlegu framkvæmdir, sem þar hafa orðið, en það er ærin ástæða til þess, að við notum aðstöðu okkar hér á Alþ. til þess að ýta á eftir þessu máli og koma á framfæri þeim sjónarmiðum, sem ég hef nú lýst. Við leggjum á það ríka áherzlu, að það verði fljótlega hafizt handa um undirbúning að Vesturlandsáætlun og síðan reynt að taka hana til framkvæmda jafnskjótt og fjárhagsleg geta leyfir.