10.11.1970
Sameinað þing: 9. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 577 í D-deild Alþingistíðinda. (4222)
321. mál, sjónvarpsmóttaka í Ólafsvík, Rifi, Hellisandi og nágrenni
Fyrirspyrjandi (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Á þskj. 68 hef ég leyft mér ásamt hv. 1. og 2. þm. Vesturl. að flytja svo hljóðandi fsp. til hæstv. menntmrh.:
„Hvað líður aðgerðum til úrbóta á móttöku sjónvarps í Ólafsvík, Rifi, Hellissandi, Arnarstapa og í nágrenni þessara staða?“
Ástæðan til þess, að um þetta er spurt, er sú, að móttökuskilyrði á þessum stöðum eru mjög slæm og þess vegna leikur öllum forvitni á að vita, hvort úr því verður ekki bætt.