17.11.1970
Sameinað þing: 10. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 586 í D-deild Alþingistíðinda. (4248)
311. mál, vöruflutningar innanlands
Fyrirspyrjandi (Vilhjálmur Hjálmarsson):
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að láta í ljós ánægju yfir því, að fundartími Sþ. hefur verið færður yfir á dag, þar sem rýmra er um fundartíma en verið hefur. Ég veit, að það er gert til þess að greiða fyrir því, að mál ljúkist hér í Sþ., og ef hv. alþm. og hæstv. ráðh. ekki síður mættu nú þessari viðleitni hæstv. forseta með því að stytta nokkuð mál sitt í fsp.-tímanum, þá ætla ég, að af þessu yrði mikill árangur.
Ég hef flutt fsp. á þskj. 20 um vöruflutninga innanlands. Í 1. lið er spurt:
„Hvað hefur verið gert til þess að bæta aðstöðu Skipaútgerðar ríkisins til vöruafgreiðslu í Reykjavík?“ Í fyrravetur bar þessi mál á góma. Þá minnir mig, að hæstv. ráðh. hafi gefið það í skyn, að þessi mál væru í athugun, og mér finnst æskilegt að fá vitneskju um það, hvað þarna er að gerast.
Í öðrum lið er svo spurt:
„Hvað hyggst ríkisstj. gera til þess að greiða fyrir hagkvæmum framflutningi innfluttrar vöru með strandferðaskipunum?“
Þessi liður fsp. er borinn fram m.a. af því tilefni, að skipafélögin hafa nú ekki alls fyrir löngu þrengt kosti landsbyggðarinnar í sambandi við innfluttu vöruna. Eimskipafélag Íslands hefur fækkað umhleðsluhöfnum sínum, og skipadeild Sambands ísl. samvinnufélaga krefst stærri vörusendinga en áður, til þess að viðkomur fáist með þær á höfnum úti á landi. Og mér finnst full ástæða til þess, að þetta mál — því að það er stórmálverði athugað af hálfu hins opinbera.
Í þriðja lagi er svo spurt:
„Eru nokkrar sérstakar ráðstafanir fyrirhugaðar til þess að stuðla að sem fyllstri nýtingu á flutningagetu nýju strandferðaskipanna, t.d. með samræmingu á hafnargjöldum og breytingu á farmgjöldum eða á annan hátt?“
Það er öllum ljóst, að þarna eru komin eða koma til sögu mjög dýr tæki, og það skiptir mjög miklu máli, að þau notist sem allra bezt. Mönnum er það vafalaust einnig ljóst, að samkeppnisaðstaða skipanna er töluvert erfið, m.a. vegna þeirrar þróunar, sem orðið hefur á undanförnum árum, meðan Skipaútgerðin hafði ekki hentugum skipastóli yfir að ráða til vöruflutninganna. Þessi liður fsp. er borinn fram til þess að vekja athygli á nauðsyn þess að gera ráðstafanir til að auðvelda hagnýtingu eða fullnýtingu þessara ágætu flutningatækja.