17.11.1970
Sameinað þing: 10. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 593 í D-deild Alþingistíðinda. (4262)
324. mál, námslán og námsstyrkir
Fyrirspyrjandi (Magnús Kjartansson):
Herra forseti. Þegar sett voru ný lög um námslán og námsstyrki 1967, var því fagnað mjög hér á hinu háa Alþingi, og lögin voru samþykkt einróma. Ástæðan var sú, að í þeim fólst bæði skynsamleg skipulagsbreyting á þessum málum og auk þess stórauknar fjárveitingar. Hins vegar var á það bent í meðförum málsins, að ástæða væri til að gera ýmsar breytingar á frv. eins og það lá fyrir, og t.d. var á það bent af hálfu námsmanna, að ástæða væri til, að Alþ. setti sér tiltekin mörk. Í frv. eins og það lá fyrir óg í þeim lögum, sem nú gilda, er það tiltekið í 2. gr., að að því skuli stefnt, að opinber aðstoð samkv. lögum nægi hverjum námsmanni til að standa straum af árlegum námskostnaði, þegar eðlilegt tillit hefur verið tekið til aðstöðu hans til fjáröflunar. Þetta er markmið, sem er mjög eðlilegt og nauðsynlegt, en til þess að ná þessu marki,. þarf að hafa uppi skipulegar aðgerðir um visst árabil, og námsmenn lögðu til 1967, að Alþ. tæki slíka ákvörðun, setti sér það að ná þessu marki á tilteknum árafjölda. Og í samræmi við það voru fluttar brtt. frá þm. Alþb. í báðum deildum, þar sem lagt var til, að Alþ. setti sér það mark að ná þessum áfanga árið 1971. Þessar brtt. fengu í sjálfu sér góðar undirtektir hjá mönnum. Menn töluðu um það, að það væri eðlilegt, að um þetta væri spurt og að þessu yrði stefnt, en samt töldu stjórnarflokkarnir sig ekki reiðubúna til þess að taka slíka ákvörðun, sem legði á Alþ. allstórar fjárhagslegar skuldbindingar nokkur ár fram í tímann. Þessi málatilbúnaður leiddi til þess, að þessi merku lög náðu tilgangi sínum mun verr en ætlað var næstu árin á eftir. Ástæðan var tvær gengislækkanir, sem dundu yfir á árunum 1967 og 1968, sem breyttu mjög stórlega högum lánasjóðsins og þar með högum námsmanna, sem viðskipti eiga við sjóðinn.
Það er alkunna, hversu miklir erfiðleikar hafa orðið hjá námsmönnum hér á undanförnum árum, og aðstoð hins opinbera við námsmenn hefur gengið allt of seint og verið allt of lítil. Þetta leiddi til þess, að á síðasta ári, eins og menn muna, hófu námsmenn mjög harðvítuga baráttu fyrir réttindamálum sínum. Þessi barátta kom um skeið næsta illa við hæstv. ráðh. Ég minnist þess, að á síðasta ári stóðu bæði hæstv. forsrh. og hæstv. menntmrh. hér í þessum ræðustól og fóru mjög hörðum orðum um námsmenn og stúdenta og höfðu jafnvel í hótunum við þá. Engu að síður varð sá árangur af þessari baráttu námsmannanna, að hæstv. ríkisstj. sá að sér og lagði fram mjög aukið fjármagn til lánasjóðsins, þannig að aðstæður þessa sjóðs eru nú miklu betri en þær hafa verið. Ég get nefnt það sem dæmi, að á síðasta ári fengu námsmenn á fyrsta ári hér innanlands um 30% af umframkostnaði sínum og námsmenn erlendis um 40%, en nú fá námsmenn bæði innanlands og erlendis 60%. Það er tvöföldun hjá námsmönnum innanlands og 50% hækkun hjá námsmönnum erlendis. Þetta er vissulega mjög mikill árangur, sem ástæða er til að fagna. En við þurfum að gæta okkar á því, að ekki sökkvi aftur í sama farið.
Námsmenn lögðu á það áherzlu í fyrra, að Alþ. setti sér nú það mark að ná því, að opinber aðstoð nægði námsmönnum til að standa straum af árlegum námskostnaði, þ.e. umframfjárþörf, á einhverjum tilteknum árafjölda, og námsmenn nefndu árið 1974. Við fluttum þá tveir alþm., ég og hv. þm. Þórarinn Þórarinsson, till. hér á þinginu í fyrra. Það var brtt. við svolítið frv. um breytingu á lögum um námslán og námsstyrki. Þessi brtt. okkar varð til þess, að það mál var aldrei tekið á dagskrá framar. Þarna virtist vera um að ræða feimnismál hjá hæstv. ríkisstj., en ég held, að þetta sé svo mikilvægt mál til þess að tryggja jafna eða jafnari aðstöðu til menntunar en núna er í þjóðfélaginu, að við megum ekki hafa það að neinu feimnismáli, og ég held, að það þurfi að vera sameiginlegt áhugamál stjórnarflokka og stjórnarandstöðu að vinna að því að koma þessu máli í höfn. Þess vegna vildi ég, áður en ég tæki aftur upp þá till., sem hér var flutt í fyrra, fá vitneskju um það, hverjar eru ráðagerðir hæstv. ríkisstj. á þessu sviði, því að ef hæstv. ríkisstj. er með áform um það að leysa þetta mál á tiltölulega skömmum tíma, þá mun stjórnarandstaðan vafalaust veita henni fulla aðstoð í því, en komi það í ljós, að hæstv. ríkisstj. hefur ekki slík áform, þá verður að vekja þetta mál á annan hátt.