24.11.1970
Sameinað þing: 11. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 602 í D-deild Alþingistíðinda. (4284)

66. mál, leirverksmiðja í Dalasýslu

Forsrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Mér kom þetta mál ókunnuglega fyrir sjónir, þegar fsp. var fram borin. Síðan hún var flutt hér, hef ég reynt að kanna það í skjalasafni rn. og með öðrum hætti, hvað orðið hafi um þessa till. og til hvaða aðgerða af hennar völdum hafi verið stofnað. Till. er frá 1957. Ég get ekki fundið, að neinar ráðstafanir hafi verið gerðar á þeim tíma af þáv. ríkisstj. til framkvæmdar þessari till. né af ríkisstj. síðar, og hef ég þó reynt að grafast alvarlega fyrir um það. Þess vegna get ég ekki svarað með öðrum orðum þessari fsp., en hins vegar er mér ljúft að láta í ljósi þann vilja minn, að ég er reiðubúinn til þess í samráði við hv. fyrirspyrjanda og aðra, sem áhuga kynnu að hafa fyrir þessu máli, að láta hefja rannsókn og undirbúning verksmiðju, eins og till. á sínum tíma, 1957, gerði ráð fyrir. Þá geri ég ráð fyrir því, að frumstigið væri það að fá vísindalega rannsökuð gæði leirsins. Ég hef rætt um það við forstöðumann Rannsóknastofnunar iðnaðarins. Ef þær niðurstöður mundu leiða til þess, að gæðin væru talin nægjanleg, þá mundi ég einnig vilja eiga hlut að máli um það, að gerð yrði kostnaðaráætlun og arðsemisáætlun fyrir slíka verksmiðju, hvort tiltækilegt þætti að reisa hana. Því miður get ég ekki svarað þessu með öðru móti, en vildi, eins og ég segi, gjarnan hafa samráð bæði við hv. fyrirspyrjanda og aðra um frekari framkvæmdir á þann hátt, sem ég hef lýst.