24.11.1970
Sameinað þing: 11. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 602 í D-deild Alþingistíðinda. (4285)
66. mál, leirverksmiðja í Dalasýslu
Fyrirspyrjandi (Ásgeir Bjarnason):
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. svörin, en það kemur mér spánskt fyrir sjónir, að það geti svo um eina þál. farið, að hún finnist hvergi og hafi aldrei til framkvæmda komið. Hins vegar þakka ég ráðh. fyrir það, að hann hefur fullan hug á því að taka upp þetta mál að nýju og láta fullrannsaka það, sem till. fer fram á, og það vænti ég, að hæstv. ráðh. geri mjög fljótlega.
Mér er kunnugt um það, að ein stofnun hér í bæ hefur haft að nokkru með að gera leirrannsóknir. Það er Rannsóknastofnun iðnaðarins. Þar hygg ég að liggi nokkrar upplýsingar fyrir í þessum efnum, og mun ég alltaf geta fengið þær upplýsingar, þegar ég þarf á að halda, en ég hélt, að þær rannsóknir, sem þar hafa farið fram, hefðu verið gerðar í samráði við rn. og væru til komnar fyrir samþykkt þeirrar till., sem hér um ræðir. En það skilst mér nú, að hafi ekki verið. Hins vegar vil ég vona það, að þess verði ekki langt að bíða, að þær rannsóknir liggi fyrir, sem till. fer fram á, og þá væri hægt að hefjast handa um leirverksmiðju í Dalasýslu, ef rannsókn leiðir í ljós, að það þyki hagkvæmt.