24.11.1970
Sameinað þing: 11. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 609 í D-deild Alþingistíðinda. (4296)

103. mál, samgöngumöguleikar yfir Hvalfjörð

Fyrirspyrjandi (Jón Árnason):

Herra forseti. Á þskj. 109 hef ég leyft mér að bera fram svo hljóðandi fsp., með leyfi forseta:

„Hvað líður störfum nefndar, sem skipuð var til að vinna að fullkominni rannsókn á samgöngumöguleikum yfir Hvalfjörð, samkv. þál. samþ. 18. apríl 1967?“

Það er nú liðinn alllangur tími fram yfir það, sem kveðið var á um, er umræddri rannsókn skyldi ljúka. Hins vegar er mér kunnugt um, að nefndin, sem skipuð var til þess að vinna að þessu verkefni, hefur unnið að því að kanna málið. Hún hefur haft til þess nokkra fjárveitingu, sem ætlað var, að nægja mundi til þess að ljúka verkefninu. Ég hef því leyft mér að bera fram þessa umræddu fsp. til hæstv. samgrh.