24.11.1970
Sameinað þing: 11. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 621 í D-deild Alþingistíðinda. (4312)
331. mál, heyverkunaraðferðir
Fyrirspyrjandi (Lúðvík Jósefsson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja hér tvær fsp. til hæstv. landbrh. um nýjar heyverkunaraðferðir. Fyrri spurningin er þannig:
„Hvaða rannsóknir hafa verið gerðar samkv. þáltill., sem samþ. var á síðasta þingi um nýjar heyverkunaraðferðir?
Hefur landbrn. kynnt sér sérstaklega heyverkunaraðferð þá, sem Benedikt Gíslason frá Hofteigi hefur látið gera, og ef svo er, hver er niðurstaðan?“
Eins og kunnugt er, er ríkjandi mikill áhugi á því um allt land, að gerðar verði tilraunir með nýjar heyverkunaraðferðir. Þessi mál hafa verið rædd hér talsvert á Alþ. og mjög mikið í blöðum og á mannfundum. Fréttamiðlar hafa skýrt frá því, að ýmsar tilraunir varðandi þessi efni séu í gangi, og þar hefur m.a. sérstaklega verið skýrt frá þeim árangri, sem Benedikt Gíslason frá Hofteigi hafi náð. Mér þykir því full ástæða vera til að óska eftir því, að hæstv. landbrh. skýri hér frá því, hvað rn. hans hafi gert í þessum efnum, hvaða athuganir hafi farið fram á þess vegum um þetta mál og hvers megi vænta á næstunni varðandi þessi mál.