08.12.1970
Sameinað þing: 14. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 633 í D-deild Alþingistíðinda. (4332)
334. mál, vöruvöndun á sviði fiskveiða og fiskverkunar
Sjútvrh. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Í sambandi við framkomna fsp., hvaða ráðstafanir ríkisstj. hyggist gera til að auka vöruvöndun á sviði fiskveiða og fiskverkunar og hvenær megi vænta þess, að þær komi til framkvæmda, er rétt að skýra frá ýmissi starfsemi, þ. á m. starfsemi Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins og tillögum nefndar um hollustuhætti í fiskiðnaði eða þeim þáttum hennar, sem lúta að vöruvöndun. Námskeið í fiskiðnaði hófust að tilhlutan sjútvrn. á árinu 1969. Hafa þegar verið haldin sex námskeið í hreinlætistækni fyrir verkstjóra, eftirlits- og matsmenn, og hafa þau staðið í 10–14 daga hvert. Eru þátttakendur í þessum námskeiðum nú orðnir 127 talsins. Þá má nefna kennslu í meðferð fiskafla í Sjómannaskólanum. Er þessi kennsla komin í það form, að haldið er eitt námskeið á vetri fyrir nemendur í fiskimannadeild skólans, sem stendur samfellt í eina viku, og fer kennslan fram í húsakynnum Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins, eins og hreinlætisnámskeiðið. Auk þess hefur verið haldið á þessu ári eitt námskeið í síldarverkun um borð í fiskiskipum. Þessari fræðslustarfsemi verður haldið áfram og hún aukin, þar til skólamál fiskiðnaðarins eru komin í fast form. Í sambandi við fræðslumálin er rétt að geta þess, að forstöðumaður námskeiðanna hefur samið ítarlegar till. um fiskiðnskóla, sem byggðar eru á reynslu hans af námskeiðum og kynnum hans af skólamálum fiskiðnaðarins í Noregi og Nýfundnalandi.
Gerlafræðilegt eftirlit með afurðum og hráefnum fiskiðnaðarins hefur lengi verið þýðingarmikill þáttur í starfsemi Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins. Hann er líka sá þátturinn, sem verið hefur í örustum vexti undanfarið, og stafar það bæði af auknum hreinlætiskröfum og vaxandi vinnslu á skelfiski og rækju. Er húsnæði gerladeildarinnar fyrir löngu orðið of lítið fyrir þessa starfsemi, auk þess sem deildin er of fáliðuð. Hvað húsakostinn snertir, þá má reikna með, að úr rætist, þegar lokið er þeim byggingarframkvæmdum, sem stofnunin er nú að hefja, og má í þessu sambandi enn fremur minna á nýsetta reglugerð um kröfur, sem gerðar eru til fiskvinnslustöðva, sem vinna eiga slíkan fisk, og nýlega hefur verið birt almenningi.
Sumarið 1969 var Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins aðili að tilraunum, sem gerðar voru í Vestmannaeyjum til þess að kanna og meta notagildi fiskkassa á sumarvertíð. Tilraunin leiddi í ljós, að nettóhagnaður af notkun kassanna var u.þ.b. 1 kr. á kg af slægðum fiski með haus. Var samin ítarleg skýrsla um tilraunina í bókarformi og henni dreift í samráði við félagasamtök innan sjávarútvegsins. Rétt er að geta þess, að auk Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins stóðu Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og sameiginleg skrifstofa frystihúsanna í Vestmannaeyjum að þessari tilraun, en Fiskimálasjóður greiddi kostnaðinn. Nú eru í undirbúningi tvær tilraunir svipaðs eðlis hjá stofnuninni. Verður önnur fólgin í því, að vertíðarafli dagróðrabáta verður ísaður til þess að kanna, hvaða áhrif það hefur á fiskgæðin og nýtingu aflans, en vertíðarafli dagróðrabáta er ekki ísaður, enda er það ekki lögboðið. Hinni tilrauninni er ætlað að sýna, hvaða áhrif það hefur á fiskgæðin og geymsluþol fisksins, ef ísuðum togbátafiski er landað að sumarlagi í þar til gerðum kössum og hann svo geymdur í þeim í kæli, þar til hann er unninn. Verkefni af þessu tagi verða ekki unnin nema með góðri samvinnu milli rannsóknaraðilans, sjómanna og vinnslustöðvanna í landi, en þau eru hins vegar mikilvæg viðleitni til aukinnar vöruvöndunar.
Í fjórða lagi er starf tillögunefndar um hollustuhætti í fiskiðnaði, en nefnd þessi var skipuð haustið 1969, og var verkefni hennar að hafa forgöngu um undirbúning nauðsynlegra aðgerða hér á landi vegna væntanlegrar lagasetningar í Bandaríkjunum um eftirlit með fiski og fiskafurðum. Einnig skyldi hún fylgjast með þróun þessara mála í Bandaríkjunum og gera, eftir því sem tilefni gæfist til, till. um nauðsynlegar ráðstafanir í þessum efnum hér á landi. Nefndin skyldi starfa í samráði við Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins. Störf nefndarinnar hafa öðru fremur verið á sviði hollustumála, enda eru þau mál kjarninn í hinni væntanlegu, bandarísku eftirlitslöggjöf. Í byrjun var starf nefndarinnar einkum fólgið í söfnun gagna, en síðan tók hún sér fyrir hendur að kynna fiskiðnaðinum og sveitarstjórnum hina væntanlegu löggjöf, eftir því sem kostur hefur verið á. Þá hefur nefndin látið semja handbók fyrir frystihús í hreinlætis- og hollustumálum, og er hún nú þegar komin út. Er þetta allmikið rit, og er þar miðað við þær kröfur, sem væntanlega munu felast í hinni margnefndu löggjöf. Verður handbókin send öllum frystihúsum í landinu svo og eftirlits- og matsmönnum í fiskiðnaði og heilbrigðisnefndum. Rétt þykir að taka fram, að handbókin er frumsmíð og vafalítið margt í henni, sem betur mætti fara. Efni hennar er líka þess eðlis, að það verður aldrei fullunnið. Er því gert ráð fyrir, að handbókin verði endurskoðuð og endurbættárlega á næstu árum.
Nefndin beitti sér líka fyrir því, að bandarískur ráðgjafi í matvælafræðum kom hingað til lands til að skoða frystihús landsmanna. Maður þessi er gerlafræðingur að mennt og fyrrverandi starfsmaður Matvælastofnunar Bandaríkjanna og því þaulkunnugur þeim kröfum, sem hún gerir. Hefur hann skoðað samtals 20 frystihús og samið skýrslu um hvert einstakt þeirra og gert till. til úrbóta. Auk þess hefur hann skilað skýrslum og till., sem eiga við frystiiðnaðinn í heild.
Nefndin mun halda áfram störfum í anda skipunarbréfsins frá 1969. Nefndarmenn eru að vísu allir störfum hlaðnir og því takmarkast starf nefndarinnar við það, sem þeir geta annað utan vinnutíma. Nefndin hefur því farið fram á, að komið verði á fót fámennum, t.d. þriggja manna starfshóp tæknimenntaðra manna, er vinni með nefndinni. Vonir standa til, að fjárveiting að upphæð allt að 1/2 millj. kr. fáist úr ríkissjóði til þessarar starfsemi nefndarinnar, og er til athugunar hjá stjórn Fiskimálasjóðs, að sjóðurinn veiti jafnhátt framlag til þessarar starfsemi.
Verkefni starfshópsins yrði einkum það að leiðbeina og aðstoða fiskiðnaðinn í viðleitni hans til að fullnægja hinum væntanlegu kröfum. Hann mundi einnig vinna að lausn ýmissa tæknilegra og heilbrigðislegra vandamála og gera teikningar að margs konar búnaði og aðstöðu, sem hann mælir með. Til greina kemur, að hann geri frumteikningar að fyrirmynd að frystihúsum af ýmsum stærðum og miðað við ólík skilyrði. Eitt af verkefnum hans yrði að endurskoða handbókina og jafnvel fella inn í texta hennar teikningar og ljósmyndir, eins og tíðkast um sumar hliðstæðar, erlendar handbækur. Loks gæti hann tekið þátt í úttekt á frystihúsum, eftir því sem hentugt þætti. Það skal sérstaklega tekið fram, að Fiskmat ríkisins á fulltrúa í tillögunefndinni, og mundi það því eiga aðgang að starfshópnum.
Ég vænti þess, að hv. fyrirspyrjanda þyki þetta fullnægjandi svör.