08.12.1970
Sameinað þing: 14. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 635 í D-deild Alþingistíðinda. (4333)

334. mál, vöruvöndun á sviði fiskveiða og fiskverkunar

Fyrirspyrjandi (Þórarinn Þórarinsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svör hans, og vafalaust eru þau fullnægjandi að því leyti, að þau telja upp allt það, sem nú er verið að aðhafast í þessum efnum. En þó að allt það, sem ráðh. taldi upp, stefni í rétta átt, þá fannst mér sá blær vera á því, að hér væri ekki um nógu skjótar aðgerðir að ræða, því að ég held, að þetta mál sé þannig á vegi statt, að hér sé þörf skjótra aðgerða, sem ekki megi draga á langinn. Svo mikilvægt er það, að vöruvöndun á útfluttum sjávarafurðum sé í góðu lagi, og svo miklu skiptir það fyrir okkur til að halda þeim mörkuðum, sem við höfum núna, og þó öllu frekar til þess líka að reyna að styrkja aðstöðu okkar þar í framtíðinni.

Ég held, að þó að námskeið í fiskiðnaðinum stefni í rétta átt eða sé betra en ekki neitt, þá þurfi að koma fullkomnara skipulagi á þau mál og meiri menntun, eins og till. hafa verið fluttar um hér á Alþ. Ég held, að ekki sé heldur nægilegt að rannsaka það, hvort hentugt sé að geyma ísaðan fisk í kössum um borð í fiskiskipunum, enda hafa rannsóknir, sem ráðh. gat um, leitt í ljós, að þetta er heppileg og hagkvæm aðferð. Ég held, að hér skipti mestu máli, að hafizt sé handa um framkvæmdir sem allra fyrst og útgerðinni gert mögulegt að taka þessa geymsluaðferð upp. Ég held, að einnig sé nauðsynlegt að herða verulega fiskmatið og fiskeftirlitið, bæði gagnvart fiskveiðunum og fiskvinnslunni, frá því sem nú er, því að mér sýnist af ýmsu, sem fram hefur komið, svo að ég nefni t.d. þær miklu skemmdir, sem urðu á saltfiskfarminum, sem fór til Ítalíu, að nauðsynlegt sé að herða það eftirlit, sem hér á sér stað. Ég held, að einnig sé nauðsynlegt í sambandi við ýmsar fiskveiðar, t.d. netaveiðarnar, að taka upp, ef svo mætti segja, meiri skömmtun, þannig að ekki sé komið með fiskinn meira og minna gamlan og skemmdan að landi, eins og nú á sér iðulega stað.

Að þessu sinni er ekki aðstaða til þess að ræða þetta mál nánar. Ég vil aðeins að lokum leggja áherzlu á það, að mér finnst mestu máli skipta, að hér sé hraðað framkvæmdum, en málin ekki dregin á langinn með meira og minna takmörkuðum aðgerðum, eins og nú á sér stað.