26.01.1971
Sameinað þing: 22. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 659 í D-deild Alþingistíðinda. (4376)

346. mál, dreifing raforku

Forsrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Fsp. þessi var borin fram fyrir þinghlé, en komst þá ekki að til svara vegna annars annríkis. Ég skal reyna í sem stytztu máli að veita svör við því, sem að er spurt.

1. Hversu mörg sveitabýli séu tengd samveitum á þessu ári, en þess var réttilega getið, að átt væri við árið 1970. Það var ekki alveg fullljóst um miðjan des., þegar ég fékk grg. um þetta, hve mörg býli yrðu fulltengd samveitum á árinu 1970, en það lætur nærri, að tala þeirra verði u. þ. b. 250.

2. Hversu mörg býti með allt að 1.5 km meðalfjarlægð verða utan samveitu í lok þessa árs, 1970? Tala býla í samþykktum veitulögnum á framkvæmdaáætlun fyrir árið 1971 með allt að 1.5 km meðalfjarlægð milli bæja er um 80. Og þegar framkvæmdum við þessa veitulögn lýkur á árinu 1971, þá er lokið þeim áfanga að tengja öll býli samveitum, þar sem meðalfjarlægð milli bæja er ekki meiri en 1.5 km. Það er rétt að taka það fram, að nokkur fleiri býli hafa verið tengd samveitum en þau, er uppfylltu þetta skilyrði, enda hafa þá ábúendur greitt svo kallað óendurkræft framlag til þess að jafna metin.

3. Hvað er miklu fé varið til dreifingar raforku um sveitir árið 1970? Til dreifingar raforku um sveitir landsins hefur verið varið á árinu 1970 u. þ. b. sem hér segir: Framlag á fjárlögum 27.1 millj. og framkvæmdalán ríkisstj. um 15 millj. kr. eða samtals 42.1 millj. Auk þess hefur farið til framkvæmdanna framkvæmdalán úr héruðum 21.9 millj. kr., óafturkræf framlög úr héraði 2.4 millj. og áætluð heimtaugagjöld 4 millj. eða alls 70.4 millj. kr. Af þessu fé þurfti að vísu að endurgreiða framkvæmdalán úr héraði frá fyrri árum að upphæð 4.2 millj. kr., þannig að til sjálfra framkvæmdanna hafa því farið um 66.2 millj. kr., og er óhætt að fullyrða, að það er verulegt átak á þessu sviði, enda er verið að reyna að ná hér lokamarki, eins og áður hefur komið fram.

4. Hvað er fyrirhugað að verja miklu fé til þeirra framkvæmda á næsta ári? Í frv. til fjárlaga fyrir árið 1971 er sem kunnugt er gert ráð fyrir 32 millj. kr. framlagi til þessara framkvæmda. Þá hafa verið ráðagerðir uppi um það að fara fram á 10 millj. kr. upphæð í framkvæmdaáætlun ríkisstj. í þessu skyni, og ef það mark næst, þá verða til þessara framkvæmda samtals rúmlega 42 millj. kr. Þar við bætist lítils háttar vegna heimtaugagjalda, og enn fremur má gera ráð fyrir því, að nokkur framkvæmdalán verði boðin fram úr héraði til lagna, er annars mundu ekki falla undir 1.5 km regluna.

Hér með er í raun og veru svarað þessum fjórum fsp., en ég vil aðeins bæta nokkrum orðum víð, þó að ekki sé kannske beinlínis um það spurt. Það, sem ég vildi taka fram, er, að á s. l. vetri, 1970, var af hálfu iðnrn. og í samráði við Orkustofnun gerð framkvæmdaáætlun um sveitaveitur 1970–1971. Þegar sýnt þótti, að áfanganum með 1.5 km meðalfjarlægð milli býla yrði lokið á árinu 1971, var farið að athuga, hvernig standa bæri að frekari framkvæmdum. Til þess að hafa sem gleggstar upplýsingar um þessi mál lagði rn. á s. l. sumri fyrir Orkustofnun að rita öllum hreppstjórum á landinu og fá hjá þeim upplýsingar um fjölda býla, sem tengd væru samveitum, hefðu vatnsaflsstöðvar, dísilstöðvar eða hefðu ekki neitt rafmagn. Þessar upplýsingar eru nú komnar frá velflestum hreppstjórum landsins, og sýna þær, þetta yfirlit, að alls eru nú í landinu 1081 býli, sem ekki er tengt samveitum, þar af hafa 604 býli dísilstöðvar og 227 býli vatnsaflsstöðvar, en enn eru 250 býli án rafmagns. Á Orkustofnun er verið að vinna að þessum málum á grundvelli þeirra upplýsinga, sem nú liggja fyrir, og gert er ráð fyrir, að heildaráætlun um rafvæðingu í dreifbýlinu verði lokið í vetur og gerð um það ítarleg kostnaðar- og tímaáætlun. Rn. gerir ekki ráð fyrir því, að sett verði ákveðin mörk um fjarlægð milli bæja, heldur að athugað verði, með hverjum hætti hugsanlegt verði að tengja öll býli á landinu, sem tiltækt er, samveitum eða stuðla að lausn í rafmagnsmálum þeirra með öðrum hætti. Vonir standa til þess, að þessari áætlun verði lokið nú í vetur, þannig að unnt verði að gera þinginu nánari grein fyrir þessum málum síðar. Það hefur einnig komið í ljós, að þegar þessum áfanga var u. þ. b. að verða náð með rafvæðingu til býla, sem ekki er lengri meðalfjarlægð en 1.5 km á milli, þá komu fram vissir erfiðleikar, sem leysa þurfti. Þá eru kannske sveitir, sem í raun og veru hafa innan sinna vébanda styttri vegalengdir en þetta, en að meðaltali lengri en þarf til þess að komast í sjálfa raforkuna. Hefur það verið sérstaklega til athugunar á vissum stöðum, og verður reynt að stuðla að því að hafa þar í frammi viss frávik frá því, sem áður hefur verið gert, til þess að flýta rafvæðingunni.

Ég held, að það séu meginatriði málsins, sem ég nú hef nefnt, en hitt er svo það, að mér er það ljóst, að þm. er þetta áhugamál, eins og eðlilegt er, og það er stöðugt unnið að þessu, og mundi rn. á hverjum tíma vera reiðubúið til þess að láta í té frekari upplýsingar bæði einstökum þm. og um framkvæmdir á einstökum stöðum, ef þess yrði óskað.