18.12.1970
Efri deild: 38. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 635 í B-deild Alþingistíðinda. (438)
170. mál, vegalög
Frsm. minni hl. (Karl Guðjónsson):
Herra forseti. Þetta frv. um breytingu á vegalögum er, eins og hér hefur verið rakið af hv. frsm. meiri hl., þess efnis, að áformað er að hækka þungaskatt á bifreiðum um 50% og benzíngjald, sem rennur til Vegasjóðs, um nálega 39%. Hvort tveggja er þessu ætlað að gera samtals á næsta ári 284 millj. kr. rúmlega, en það er sú upphæð, sem talið er, að vanti til Vegagerðar ríkisins á því ári. Engu að síður starfar Vegagerð ríkisins eftir kostnaðaráætlun, sem Vegasjóður hefur fengið um tekjur hans og gjöld, en ástæðurnar fyrir því, að þessa aukafjár er nú talin þörf, eru aðallega þrjár: Í fyrsta lagi þær, að tekjur Vegasjóðs hafa ekki staðizt áætlun að undanförnu, aðallega vegna þess að bílainnflutningur hefur verið miklum mun minni á síðustu árum en reiknað var með. Í öðru lagi hefur tilkostnaðurinn við vegagerð og vegaviðhald hækkað af ástæðum, sem allir munu kannast við, þ. e. vegna verðbreytinga og kaupbreytinga, sem urðu á s. l. ári aðallega. Og í þriðja lagi vegna þess að aukið hefur verið við þau verkefni, sem Vegagerðinni eru ætluð á næsta ári umfram það, sem gert var ráð fyrir í vegáætlun.
Það má segja, að hér sé um hluti að tefla, sem ekki eru í sjálfu sér óeðlilegir. Að vísu er það ekki nógu gott, að inn þurfi að taka verulega stórar fjárhæðir, til þess að Vegagerðin geti annazt ný verkefni, þegar gerð hefur verið fyrir fram áætlun um verkefni hennar, sem í gildi á að vera. En við þetta allt er það að athuga, að allir þessir liðir voru þekktir. Menn vissu gjörla um þá, þegar hér voru samþykkt verðstöðvunarlög, og þá var þetta mál ekki tekið upp. Ráðh. mun hafa ýjað í þá átt í sínum ræðum, að eitthvað þyrfti að gera, en það kom ekkert fram skjalfest um það, að svo væri. Almenningur í landinu hefur þess vegna tekið verðstöðvunarlögin svo, að hið opinbera, ríkisstj. alveg sérstaklega, sem að l. hefur staðið, mundi þó ekki, eftir að l. voru gengin í gildi og allra sízt á fyrstu dögum þess tímabils, sem verðstöðvunin átti að ná til, gera ráðstafanir til þess, að dýrtíð í landinu færi vaxandi um fjallháar upphæðir. En hér er það einmitt það, sem gerzt hefur með þessari nýju áætlun, með þessari nýju gjaldheimtu. Það er auðvitað býsna slæmt, að þessi aðili skuli ganga hér fram fyrir skjöldu í framkvæmdum, sem auka á skattheimtuna og auka á dýrtíðina í landinu, þegar sá sami aðili hefur gengizt fyrir því að setja verðstöðvunarlög, sem a. m. k. heimila, að fólkinu í landinu verði ekki borgað kaup eftir þeim samningum, sem það hefur gert, heldur verði þær kaupupphæðir gerðar lægri.
Hér er enn fremur um það að ræða, að þessi lög munu koma fram í þeirri mynd, að þau leggjast á atvinnustéttir landsins ákaflega misjafnlega þungt, eins og hér hefur reyndar verið vikið að af hv. frsm. meiri hl., þannig að bifreiðarstjórar landsins, bæði vörubifreiðarstjórar og einnig leigubílstjórar á fólksflutningabílum, hafa ekki möguleika til þess að velta þessu gjaldi yfir á aðra. Vörubifreiðastjórarnir eru bundnir af samningi við Vinnuveitendasamband Íslands, og sá samningur er þess háttar, að honum verður ekki breytt, þó að þetta gjald komi til, heldur kemur það beinlínis á bifreiðarstjórana sjálfa sem rýrðar tekjur þeirra. Þá hefur enn fremur verið grennslazt fyrir um það, hvort gjaldskrár fyrir leigu- og flutningabifreiðar fáist hækkaðar, og það hefur ekkert komið fram, sem bendir til, að svo muni verða. Þar af leiðandi verða leigubifreiðarstjórar einnig að taka þetta hækkaða benzíngjald á sig sem rýrðar kaup- eða atvinnutekjur. Félag ísl. bifreiðaeigenda hefur sýnt fram á það, að gjöld af bifreiðum og bifreiðahlutum eru svo há, að ríkissjóður hefur af því ósmáar tekjur umfram það, sem rennur í Vegasjóð. Þeir hafa sýnt fram á með bréfi, sem ég hygg, að allir alþm. hafi fengið, að á s. l. ári muni ríkissjóður hafa fengið 370 millj. kr. tekjur með þessum hætti og á yfirstandandi ári muni þessar tekjur nema eitthvað yfir 350 millj. Hér er um geysiháar upphæðir að ræða. Ég er ekki talsmaður þess, að ekki komi til mála, að ríkissjóður geti haft neinn hagnað af bifreiðum í landinu. En hér er bara um svo háar upphæðir að ræða, að það sér hver maður, að það er ekki hægt að vega endalaust í þann sama knérunn, þ. e. að láta borga af bifreiðunum sjálfum svona háar fjárhæðir árlega sem skatta og einnig að hækka stöðugt gjaldið af eldsneytinu, sem þær brenna.
Því hefur verið haldið fram sem nokkurri réttlætingu fyrir þeirri breytingu á benzíngjaldi, sem hér er fyrirhuguð, að til séu lönd ekki allfjarri okkur, þar sem benzín sé álíka dýrt eins og verða mundi hér að þessu nýja gjaldi lögleiddu. Vera má, að þetta sé rétt, en miðað við allt okkar vegakerfi er augljóst, að kostnaður við ekinn km mun óvíða — ef nokkurs staðar — vera hærri en hér.
En þá komum við að öðru atriði málsins. Þegar slíkt megingjald er komið á eldsneyti bifreiða — á benzín, hvaða réttlæting er þá fyrir því að taka svo há leyfisgjöld og tollgjöld af bifreiðum, sem gert er hér, því að það mun algerlega vera einsdæmi í nokkru landi? Ef benzínverðið hér má vera jafnhátt því hæsta, sem tíðkast í öðrum löndum, þá fæ ég ekki séð, að réttlæting sé fyrir því, að aðflutningsgjöld af bifreiðum séu eftir sem áður miklum mun hærri hér en nokkurs staðar á byggðu bóli. Ég held þess vegna, að samfara slíkum samþykktum, sem hér eru í uppsiglingu, ætti að taka það mál alvarlega til athugunar, að Íslendingar viðurkenni, að bifreiðin sé eitt af þeim tækjum, sem þeir þurfi að nota, og skattleggi þau tæki í samræmi við það, sem tíðkast um aðrar notkunarvörur í landinu, en ekki sem lúxusvarning eða svo ofboðslega hátt, sem nú er.
En það, sem ég tel skipta hér sköpum, er það, að slíkar hækkanir, sem hér eru fyrirhugaðar, tei ég fásinnu, að megi leyfa nú, þegar samþykkt hafa verið Íög um verðstöðvun í landinu. Þessi lög eiga að standa fram til 1. sept. árið 1971, og það verður greinilega margur að fresta ýmsum þeim framkvæmdum, sem hann annars hefði viljað koma á og nauðsynlegar kynnu að vera, á meðan á slíku stendur, og því þá ekki, að ríkissjóður verði að hafa þar fordæmi og ganga ekki fram fyrir skjöldu til þess að brjóta niður sín eigin lög, jafnvel þótt nauðsynlegar framkvæmdir bíði.
Ég hef ekki getað orðið sammála öðrum nm. í samgmn. þessarar d., þar sem þeir leggja til —auðvitað með mismunandi og yfirleitt lítilli ánægju, að þetta verði samþ. Ég tel, að að svo komnu máli eigi ekki að koma til svona framkvæmda, og hef því lagt til, að málinu verði vísað frá með svofelldri rökstuddri dagskrá:
„Með því að frv. þetta samrýmist ekki hugmyndum landsmanna um verðstöðvun, sem skv. nýsettum l. á að ríkja til 1. sept. 1971, og felur auk þess í sér mikið misrétti þjóðfélagsþegnanna eftir atvinnustéttum, þá tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.“