26.01.1971
Sameinað þing: 22. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 663 í D-deild Alþingistíðinda. (4382)
157. mál, gengistöp hjá Fiskveiðasjóði
Sjútvrh. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Ég vænti þess, að þau svör, sem ég gef hér á eftir, fullnægi hv. fyrirspyrjanda.
1. Með ákvæði í lögum nr. 17 frá 10. marz 1961 var Fiskveiðasjóði heimilað að áskilja, að ný erlend lán, sem endurlánuð væru úr sjóðnum, endurgreiddust með breytilegri fjárhæð, sem næmi gengisbreytingu íslenzkrar krónu á lánstímanum. Þessa heimild notaði stjórn sjóðsins þegar á sama ári, og var ákveðið, að í skuldabréfum fyrir veittum lánum skyldi vera ákvæði, sem heimilaði að innheimta 3/5 hluta þeirra með breytilegri fjárhæð, sem næmi gengisbreytingu íslenzkrar krónu á lánstímanum.
2. Það hefur ekki tíðkazt, að erlend lán Fiskveiðasjóðs hafi verið endurlánuð beint, enda væri þá eðlilegra, að slíkt fé væri endurlánað með fullri gengisáhættu. Hins vegar hefur erlent lánsfé sjóðsins verið hluti af því fé, sem sjóðurinn hefur haft til ráðstöfunar, og því eðlilegt, að útlán sjóðsins verði bundin gengisákvæði að hluta. Með þessu móti hefur gengisáhættu verið jafnað niður á alla lántakendur jafnt. Sem dæmi má nefna, að árið 1961, þegar fyrrgreint ákvæði var sett í lög, hafði sjóðurinn umráðafé til útlána, sem var að 2/3 erlent, en að 1/3 innlent. Enda þótt þetta erlenda fé væri lánað út á árinu 1961, var í stað þess að láta einungis þá aðila, sem lán tóku á því ári, bera alla áhættuna, haldið áfram að jafna þeirri áhættu á lántakendur á næstu árum með því að hafa lánin gengisbundin að hluta til.
3. Af þessari dreifingu gengisáhættunnar hefur leitt, að hver einstakur lántakandi hefur aðeins orðið að bera gengistap að hluta, sem sjá má á því, að við hækkun erlends gjaldeyris um 32.6% vegna gengislækkunar íslenzku krónunnar 1967 nægði 5.3% hækkun á lánum sjóðsins fyrir gengisbreytingunni, og við lækkun erlends gjaldeyris um 54.4% vegna gengislækkunarinnar 1968 nægðu 15.54% til að mæta gengisbreytingunni það ár.
4. Snemma árs 1967 var erlent lánsfé Fiskveiðasjóðs orðið mjög lítilfjörlegur hluti af útlánum sjóðsins og útlit fyrir, að það færi enn minnkandi. Var því ákveðið, að frá byrjun þess árs skyldi fyrrgreint heimildarákvæði laganna ekki notað. Þegar kom fram á árið 1968, hafði viðhorf breytzt aftur, þar sem fyrirsjáanlegt var, að sjóðurinn yrði a. m. k. í náinni framtíð að verulegu leyti að nota erlent lánsfé til lánveitinga. Var þá talið óhjákvæmilegt að taka aftur í notkun heimildina frá 1961 og beita því ákvæði á sama hátt og gert hafði verið á tímabilinu 1961–1966. Gengisáhættu vegna erlendra lána Fiskveiðasjóðs er því enn dreift á alla lántakendur jafnt, en sá hluti af ráðstöfunarfé sjóðsins, sem er erlent fé, ekki endurlánaður sérstaklega með fullri gengisáhættu, sem ella væri óhjákvæmilegt. Ef það er véfengt, eins og virtist koma fram hjá hv. fyrirspyrjanda, að hér sé að lögum farið, þá er sjálfsagt, að leitað verði eftir lögfræðilegu áliti í því efni.