26.01.1971
Sameinað þing: 22. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 666 í D-deild Alþingistíðinda. (4389)
157. mál, gengistöp hjá Fiskveiðasjóði
Sjútvrh. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Sem svar við síðustu fsp. hv. fyrirspyrjanda mundi ég vilja taka undir orð hv. 4. þm. Austf., að það er sjálfsagt og eðlilegt, að athugaðir séu allir möguleikar á því, að hér verði á sanngjörn leiðrétting, ef um óréttmætar aðgerðir hefur verið að ræða, sem ég vefengi. Ég geri ráð fyrir því, að menn hafi, eins og kom hér fram í umr. áðan, skrifað undir hlutaðeigandi lánsskjöl með opin augu, þegar þeir tóku lánin.