26.01.1971
Sameinað þing: 22. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 668 í D-deild Alþingistíðinda. (4396)

341. mál, endurvarp sjónvarps frá Reykhólum

Benedikt Gröndal:

Herra forseti. Mér var kunnugt um það þegar í haust og hafði raunar nokkra vitneskju um það áður, að það væru erfiðleikar á móttöku sjónvarps í skólanum að Laugum í Dalasýslu. Ég lét þegar í ljós óskir við einn af framkvæmdastjórum Ríkisútvarpsins, sem hefur mest með þetta að gera, og einnig beint við Landssímann, sem annast framkvæmdirnar, um að það yrði reynt að leysa þetta vandamál. Þeir sögðu, að það mundu vera möguleikar til að leysa þetta, án þess að það yrði óviðráðanlega dýrt. Munu hafa verið sendir menn þangað vestur til mætinga, og ég hef ekki á þessu stigi annað en loforð þessara aðila fyrir því, að reynt verði að leysa málið eins fljótt og hægt er.

Hins vegar hlýt ég að taka undir það, sem hæstv. menntmrh. sagði, að dreifing sjónvarps er feikilegum erfiðleikum bundin við landslag eins og hér er. Það getur tekið mikið af tíma Alþ., ef við ætlum að ræða um hvert einasta vandamál af því tagi, sem fram kemur. Þetta verður eilíft vandamál. Um hljóðvarp erum við að uppgötva eftir 40 ár, að enn eru dreifingarerfiðleikar og enn eru að koma upp ný vandamál á því sviði.

Við verðum að treysta því, að reynt verði að leysa þessi vandamál bæði á Vesturlandi og annars staðar. Nákvæmlega sams konar vandamál eins og eru í Saurbænum, á Laugum og á sunnanverðu Snæfellsnesi eru víðs vegar um landið. En fjármunir til þess að leysa þessi vandamál eru takmarkaðir. Í fyrsta lagi hefur verið reynt að láta ganga fyrir að tengja heila landshluta, síðan stærstu byggðirnar og þar á eftir að þétta netið eins og getan framast leyfir. Hins vegar er mjög erfitt að segja fyrir um, hvernig sjónvarpsmóttaka verður. Er þegar reynsla fyrir því, að sú erlenda þekking, sem við byrjuðum með, dugir skammt. Það kemur í ljós, að margir staðir á Íslandi fá tiltölulega auðveldlega sjónvarpsmóttöku og hana allgóða, þar sem bækur kunnáttumanna segja, að svo ætti ekki að vera, sbr. sjónvarpssendingu frá Skálafelli til Norðurlands, sem er samkv. tæknivizku útlendra manna ómöguleg, en tekst ágætlega í höndum íslenzkra verkfræðinga. Aftur á móti kemur skyndilega í ljós, að á öðrum stöðum, t. d. á sunnanverðu Snæfellsnesi, sem eru í beinni sjónlínu á sterkar stöðvar sunnan við flóann, eru móttökuskilyrði víða mjög slæm, en verkefni af þessu tagi skipta hundruðum um allt land.

Við getum í sjálfu sér ekki annað en treyst því, að þeir embættismenn, sem reyna að leysa þetta hjá Ríkisútvarpinu og þá aðallega hvað tækniatriðin snertir hjá Landssímanum, muni hraða verkinu eins og þeir geta og leysa þessi vandamál eins vel og tækni og fjárhagsgeta leyfa hverju sinni.

Um skólasjónvarp ræði ég ekki hér, það er ekki til umr., en er hins vegar reiðubúinn til þess, ef þess væri óskað, við annað tækifæri.