26.01.1971
Sameinað þing: 22. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 686 í D-deild Alþingistíðinda. (4423)
175. mál, hagnýting jarðhita
Fyrirspyrjandi (Jónas Árnason):
Herra forseti. Ég fram á það að fá að gera stutta aths., vegna þess að hæstv. ráðh. beindi til mín fsp. Hann spurði, hvort ekki væri rétt að byrja á undirbúningi? Að sjálfsögðu er rétt að byrja á undirbúningi, en það eru náttúrlega takmörk fyrir því, hvað undirbúningurinn einn getur staðið lengi, svoleiðis að menn séu ánægðir, og eðlilegt, að menn fari að kalla til framkvæmda, þegar liðið er, eins og ég segi, langt á annað ár frá því, að þessi till. var samþ. En það er til marks um málflutning ráðh., að hann orðaði þetta svo, að nú væri komið á annað ár, eða rúmt ár, minnir mig, að hann segði. Það eru að verða tvö ár síðan þessi till. var samþ. Það hefur ekkert enn þá orðið úr framkvæmdum. Það liggur alveg ljóst fyrir.
Ráðh. lýsti furðu sinni yfir, að ég minntist hér á till. um leirverksmiðju í Dölum, sem hefði týnzt í skjalasafni iðnrn., og um leið átaldi ég það, hvernig farið væri með þál. af hálfu margra hæstv. ráðh. Þetta vita náttúrlega allir þm., að er alveg rétt. Það má heita undantekning, ef ályktanir fá einhverja verulega framkvæmd.
Ráðh. byrjaði ræðu sína á því að fullyrða: „Ef ég vissi ekki, að þessi hv. þm. hefði sofið vel í nótt, þá mundi ég telja, að hann væri eitthvað ruglaður.“ Ég veit nú ekki, hvaðan hæstv. ráðh. kemur vitneskja um það, hvernig ég hef sofið. En ég verð að segja það með tilliti til málflutnings hæstv. ráðh. núna, að hafi hann sofið vel í nótt, þá býð ég ekki í málflutning hans, þegar hann hefur sofið illa.