02.02.1971
Sameinað þing: 24. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 698 í D-deild Alþingistíðinda. (4451)

340. mál, Kennaraháskóli Íslands

Einar Ágústsson:

Herra forseti. Málefni Kennaraskólans eru hv. þm. að verulegu leyti kunn, hygg ég, eftir þær umr., sem hér hafa fram farið, ekki sízt í sambandi við afgreiðslu fjárlaga fyrir yfirstandandi ár og svo jafnframt vegna þess, að samtök kennara og kennaraskólanemenda hafa sent öllum hv. þm. áskorun um að víkjast nú vel við þeirra máli. Þess vegna er það fyrst og fremst tvennt, sem kemur mér a. m. k. á óvart í því svari, sem hæstv. menntmrh. hefur gefið hér við fsp. þeirri, sem á dagskrá er. Það er annars vegar sú staðhæfing, að þegar skólinn var byggður og tekinn í notkun 1958, þá hafi almennt verið við því búizt, að hann mundi duga um langt skeið eins og hann var þá byggður. Það hygg ég, að hæstv. ráðh. hafi sagt, um nokkurt skeið, kann að vera. Ég hef nú skrifað hér langt skeið, en ég efast ekki um, að ráðh. hefur sagt nokkurt skeið. Það eru hvort tveggja teygjanleg hugtök. En í því upplýsingabréfi, sem samtök kennara og nemenda sendu þm., segir, og það hygg ég vera rétt:

„Svo sem yður má vera kunnugt, hófust framkvæmdir við l. áfanga hins nýja húsnæðis Kennaraskólans við Stakkahlíð sumarið 1958 samkv. teikningu, er hlutaðeigandi yfirvöld höfðu samþykkt þá um vorið. Byggingu þessa áfanga er ekki enn að fullu lokið. En hann svaraði til tæps helmings þess húsnæðis, er ráð var fyrir gert samkv. teikningu og reist skyldi í fyrstu atrennu. Í þessum áfanga eru m. a. átta almennar kennslustofur auk einnar sérkennslustofu, bókasafn, kennarastofa og vinnuherbergi fyrir kennara, en fullgert var húsið áætlað fyrir 250–300 nemendur.“

En það átti að byggja meira en þetta samkv. upphaflegu áætluninni. Um það segir hér:

„Í þeim hluta, sem geymdur var, skyldi verða um helmingur alls kennslurýmis hússins, þ. á m. sérkennslustofur í raungreinum, setustofa nemenda, matsalur með nauðsynlegum búnaði, tækjum og öðru, hátíðasalur með leiksviði sem og starfsaðstaða fyrir námsflokka. Einnig var gert ráð fyrir heimavistum, fimleikasölum, kennslusundlaug og knattvelli á lóð skólans.“

Ég hygg, þegar þetta er athugað, að það, sem hæstv. menntmrh. átti við í svari sínu, sé það, að húsið fullbyggt, eins og ráðgert var á þessum árum, mundi duga um nokkra framtíð. Það er vafalaust rétt. En við verðum bara að hafa það í huga, að af þeirri áætlun var ekki og hefur ekki enn verið byggt nema helmingur, svo að ég held þess vegna, að það hafi verið alveg óþarfur kvíðbogi, sem hæstv. menntmrh. virðist hafa borið í brjósti fyrir því, að hann yrði sakaður um að fara gáleysislega með fé skattborgaranna, þó að hann byggði kennaraskólahúsið að fullu, eins og til stóð á þessum árum. Ég get ekki ímyndað mér, að nokkur maður hefði hallmælt honum fyrir eða láð honum það. Þvert á móti er yfirvöldunum og hæstv. ríkisstj. nú legið á hálsi fyrir að hafa ekki gert þetta. Og ég hygg, að það verði þeir við að búa.

Ég held, að það geti tæpast verið hugsun hæstv. ríkisstj., að í næstu framtíð verði 250 nemendur í Kennaraskólanum, hvort sem hann heitir nú háskóli eða eitthvað annað. Auðvitað verður þessi skólastofnun að miðast við þörfina í landinu á hverjum tíma fyrir það fólk, sem hún sérmenntar. Ég hef ekki séð þá áætlun, sem hæstv. ráðh. segir nú, að liggi fyrir um kennaraþörf á næstu árum og áratugum. En ég held, að hún hljóti þó að vera hærri en þessi tala, 250–300 nemendur, sem núverandi húsnæði rúmar. En hvort sem sú tala væri rétt eða ekki, þá er þó margt þarna óbyggt og búið að vera óbyggt, ja, síðan 1944, er fyrst var farið að gera áætlun um byggingu nýs kennaraskóla.

Það er alveg rétt, sem hæstv. ráðh. sagði, að kennslan hefur farið víðar fram en í kennaraskólahúsnæðinu. Þó það nú væri. Þarna hefur 920 nemendum verið kennt í húsnæði, sem tekur 250. En hvernig hefur sú kennsla farið fram? Hún hefur farið þannig fram samkv. þeim upplýsingum, sem ég hef vitnað til, að kennt hefur verið á ekki færri en 10 stöðum utan skólahússins við Stakkahlíð, og þá er æfingakennslan ekki meðtalin. Hún fer fram í 25 skólum, og margir eiga þó eftir að bætast við, þegar á veturinn líður, segir hér í þessu bréfi.

Nei, ég held, að hvernig sem þetta mál er skoðað, þá verði aldrei fram hjá þeirri staðreynd komizt, að það hefur verið allt of hægt farið í byggingar Kennaraskólans, og þær áætlanir, sem upphaflega voru gerðar, hafa ekki staðizt. Sú breyting er nýtilkomin, sem nú er höfð sem forsenda fyrir því, að þessar byggingar voru ekki byggðar. Það er búið að tala um kennaraháskóla í 2–3 ár, en þessar byggingar áttu að vera tilbúnar fyrir a. m. k. 10 árum.