02.02.1971
Sameinað þing: 24. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 714 í D-deild Alþingistíðinda. (4478)
345. mál, kal í túnum
Fyrirspyrjandi (Vilhjálmur Hjálmarsson):
Herra forseti. Þessi fsp. mín til landbrh. um ráðstafanir vegna kals í túnum er svo hljóðandi:
„1. Hvað líður rannsóknum á kali í túnum?
2. Telur ráðh. nauðsynlegt að auka fjárveitingar til kalrannsókna, og ef svo er, þá hve mikið?
3. Eru fyrirhugaðar sérstakar ráðstafanir, aðrar en rannsóknir, til þess að hamla gegn fóðurskorti af völdum langvarandi kals í túnum eða til þess að bæta að nokkru það stórfellda tjón, sem kalið veldur?“
Sú gróðureyðing, sem átt hefur sér stað undanfarin ár og almennt er kölluð kal í túnum, hefur valdið íslenzkum landbúnaði og þjóðfélaginu í heild gífurlegu tjóni, sem mér vitanlega hefur ekki verið í tölum talið. Þar sem ástandið er verst, hafa túnin verið stórskemmd árum saman og heyfengur eftir því, og bændur hafa neyðzt til að gera annað tveggja að kosta stórfé til endurræktunar og fóðurkaupa ellegar að skera niður af bústofni sínum og margir hverjir safnað alveg gífurlegum skuldum við þetta. Gróðureyðingin í túnunum er tvímælalaust þjóðfélagslegt vandamál, og mér þykir þess vegna eðlilegt að biðja hæstv. landbrh. að gefa þinginu skýrslu um, hvað rannsóknum líði, sbr. 1. lið fsp., sem ég greindi áðan.
Þá þykir mér einnig nauðsynlegt að heyra álit ráðh. á fjárþörfinni, hvort hann telur, að kalrannsóknir geti haldið áfram með eðlilegum hraða við þann aðbúnað fjárhagslega, sem þær hafa nú. Ég vil í þessu sambandi leyfa mér að vekja athygli hv. þm. á því, að þessi fsp. er borin fram, áður en fjárlög voru afgreidd, en þó að fjárlög fyrir árið 1971 hafi þegar verið afgreidd, þá auðvitað verða fjárlög hér til meðferðar á ný, áður en varir, og það er æskilegt að fá að heyra álit hæstv. ráðh. einmitt um þetta atriði.
Að mínum dómi þarf að mæta eyðileggingu túnanna með fleiri ráðstöfunum en eflingu svokallaðra kalrannsókna. Ég álít, að þar kæmi t. d. til greina sérstakur stuðningur við endurræktun og við ræktun grænfóðurs og svo fyrirgreiðsla við að koma upp bústofni að nýju til þeirra, sem orðið hafa að fækka stórlega búfé sínu vegna grasleysisins. Ég tel, að einnig gæti komið til mála að efla alveg sérstaklega leiðbeiningastarfsemi að fengnum nokkuð öruggum niðurstöðum af athugunum vísindamanna. Mig fýsir að vita, hvort hæstv. ríkisstj. hefur nokkur sérstök áform á prjónunum í þessa stefnu, og að því lýtur 3. liður fsp.