23.02.1971
Sameinað þing: 27. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 727 í D-deild Alþingistíðinda. (4498)

347. mál, stofnlán fiskiskipaflotans

Fyrirspyrjandi (Geir Gunnarsson):

Herra forseti. Á þskj. 320 flytjum við þrír þm. Alþb. svo hljóðandi fsp. til hæstv. sjútvrh. um greiðslur af aflaverðmæti til Stofnlánasjóðs fiskiskipa og til útgerðarfyrirtækja:

„Hve miklu er áætlað, að afborganir og vextir af stofnlánum fiskiskipa nemi á árinu 1970:

a) af togurum,

b) af öðrum fiskiskipum?“