23.02.1971
Sameinað þing: 27. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 727 í D-deild Alþingistíðinda. (4499)

347. mál, stofnlán fiskiskipaflotans

Sjútvrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Ég hefði nú talið langtum. æskilegra, — svona rétt til ábendingar fyrir hv. Alþ. í framtíðinni, — að slíkum fsp., sem útheimta mikið af tölum, ef svara á til fullnustu, yrði langtum fremur útbýtt skriflega, þannig að öllum hv. alþm. tækist að höndla þær tölur, sem töluvert er erfitt oft, þegar þær eru fluttar svona af munni fram, en ég skal reyna að svara þessari fsp. það rólega, að þm. ætti að vera mögulegt að ná þessum tölum niður, en ég bendi á þetta sem leið í framtíðinni, að slík svör væri æskilegra fyrir þm. almennt að fá skrifleg til sín á borðið heldur en lesin upp úr ræðustól. Svar mitt við þessari fsp. er svo hljóðandi:

Afborganir og vextir af stofnlánum fiskiskipa nema á árinu 1970: Af togurum 22.4 millj. kr. í afborganir, 11.6 millj. kr. í vexti. Önnur fiskiskip hafa greitt í afborganir 273.6 millj. kr. og í vexti 152.6 millj. kr. Skiptast þessar greiðslur þannig, að á árinu 1970 var greitt af skipalánum hjá Fiskveiðasjóði Íslands, af togurum í afborganir 3.3 millj. kr., í vexti 0.3 millj. kr. Önnur fiskiskip greiddu af lánum hjá Fiskveiðasjóði á sama ári, 1970, í afborganir 257.6 millj. kr. og í vexti 150.7 millj. kr.

Árgjöld 1970 af svonefndum R-lánum vegna togara, sem voru á vegum stofnlánadeildar sjávarútvegsins, en eru nú í vörzlu Seðlabankans, nema 0.8 millj. kr. í afborganir og 0.1 millj. kr. í vexti.

Áætlaðar greiðslur 1970 af þeim stofnlánum vegna togara, sem eru á vegum Ríkisábyrgðasjóðs, nema 18.3 millj. kr. í afborganir og 11.2 millj. kr. í vexti. Eru hér taldar greiðslur af þeim lánum, sem talizt geta virk, þ. e. greiðslur, sem falla á útgerðaraðila skipanna, og eru meðtalin lán vegna skipa, sem ekki eru lengur gerð út, hafa verið tekin af skipaskrá.

Á árinu 1970 má ætla, að greiðslur af lánum vegna hinna austur-þýzku togara, sem svo eru nefndir, öðru nafni tappatogarar, eins og stundum hefur heyrzt, verði sem hér segir: Afborganir 15.5 millj. kr. og vextir 1.7 millj. kr. Greiðslur af lánum vegna annarra fiskiskipa hjá Ríkisábyrgðasjóði eru: Afborganir 0.5 millj. kr. og vextir 0.2 millj. kr.

Ég vona, að ég hafi lesið þetta það hægt, að hv. þm. hafi náð þessum tölum niður, en þær eru meginuppistaðan í svarinu.