23.03.1971
Sameinað þing: 27. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 728 í D-deild Alþingistíðinda. (4503)
348. mál, greiðslur af aflaverðmæti til Stofnlánasjóðs fiskiskipa
Fyrirspyrjandi (Geir Gunnarsson):
Herra forseti. Í tengslum við þá fsp., sem hæstv. ráðh. var að enda við að svara, flytjum við sömu þm. og stöndum að fyrri fsp. svo hljóðandi fsp. til sjútvrh. um greiðslur af aflaverðmæti til Stofnlánasjóðs fiskiskipa og til útgerðarfyrirtækja:
„Hversu miklu er áætlað, að greiðslur af óskiptu aflaverðmæti samkv. lögum nr. 79 31. des. 1968 nemi á árinu 1970:
1) Í Stofnfjársjóð fiskiskipa:
a) til togara,
b) til annarra fiskiskipa?
2) Til útgerðarfyrirtækja, sem hlutdeild í almennum útgerðarkostnaði?“