23.02.1971
Sameinað þing: 27. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 730 í D-deild Alþingistíðinda. (4509)
349. mál, setning reglugerðar um skóla skv. 15.gr. laga um fávitastofnanir
Sjútvrh. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Ég verð að játa það, að þegar þessi fsp. var lögð á borðið, varð ég kannske ekkert síður undrandi en hv. þm. á því, hver dráttur hefði þarna á orðið. En hann á sínar skýringar, sem ég mun nú reyna að gera grein fyrir, þó að það verði í allmiklu lengra máli en ég hefði óskað, því að ég reyni yfirleitt að haga svörum mínum þannig, að þau séu sem allra stytzt eða skýrust.
Menn gætu haldið, að með umræddum lögum og lagagreininni þar með, sem hv. fyrirspyrjandi vitnaði til, hafi verið ákveðið, að stofnaður skyldi sérstakur skóli, sem ekki var til á þeim tíma. Þessu er hins vegar ekki þannig farið, því að haustið 1958 var byrjað að reka skóla við fávitahælið í Kópavogi fyrir starfsstúlkur, sem síðan hlutu nafnið gæzlusystur. Þetta skólahald byrjaði fyrir áeggjan þáv. landlæknis, Vilmundar Jónssonar, og var þá gert til reynslu til að bæta úr brýnni þörf, því að þá var mikill skortur á faglærðu starfsfólki, jafnvel starfsstúlkum, svo sem er því miður enn í dag í mörgum af okkar sjúkrahúsum. Allt var þetta gert í fullu samráði við stjórnarnefnd ríkisspítalanna, og sá stjórnarnefndin um auglýsingar í dagblöðunum um þetta mál. Fyrsta auglýsing um þetta efni birtist í sept. 1959, þar sem svo var komizt að orði, að stúlkur, sem vildu læra gæzlu og umönnun vangefinna, gætu komizt að námi í Kópavogshæli þá um haustið. Þær stúlkur, sem lokið hafa námi í skólanum, hafa fengið prófskírteini, þar sem tiltekið er, að þær hafi stundað nám í gæzlu og umönnun vangefinna, staðizt tilskilin próf að loknum námstíma og að kennari og prófdómari telji þær hæfar til starfsins.
Frá upphafi hafa útskrifaðar gæzlusystur átt þess kost að vera fastráðnir ríkisstarfsmenn á Kópavogshæli með þeim réttindum og skyldum, sem slíkri ráðningu fylgja. Þær hafa einnig verið ráðnar af öðrum stofnunum fyrir vangefna. Þær hafa annazt umsjón og verkstjórn á hælisdeildum sem deildargæzlusystur og gæzlusystur. Fyrstu árin tóku þær laun eftir 11. og 12. flokki þágildandi launalaga, og samkv. úrskurði kjaradóms 1963 var þeim skipað í 12. launaflokk. Eftir kjaradóm 1965 var þeim raðað í 13. launaflokk, og samkv. nýgerðum kjarasamningum eru gæzlusystur nú í 14. launaflokki og deildargæzlusystur í 15. launaflokki.
Frá upphafi hefur um inntökuskilyrði og nám verið fylgt reglum, sem settar voru af forstöðumanni og yfirlækni í samráði við stjórnarnefnd ríkisspítala, og var um nám og undirbúning aðallega stuðzt við samsvarandi kennslu í Danmörku. Námstíminn er tvö ár og skiptist í bóklegt nám og verklegt. Bóklegar kennslugreinar eru eftirfarandi: Sjúkdómafræði og meðferð fávita og þar undir líkamsfræði, undirstöðuatriði í sjúkdómafræði um smitsóttir, helztu fávitasjúkdóma og geðsjúkdóma. Auk þess er kennt um helztu lyf, sem gera má ráð fyrir, að þurfi að nota á deildum fávitahæla, hjúkrun, heilsufræði og hjálp í viðlögum. Kennd eru hentug handbrögð við hjúkrun og daglega snyrtingu sjúkra, meðferð almennra sára, hirðing legusára og varnir gegn þeim, aðgæzla við lyfjagjafir og sóttvarnir, og sérstök áherzla er lögð á hjúkrun afbrigðilegs fólks. Einnig er kennt um meðferð ungbarna, daglega hirðu þeirra og fæðuþörf ásamt fæðuþörf fullorðinna og um vaneldiskvilla, sem helzt koma fyrir hjá slíku fólki. Í hjúkrunarfræði er farið allítarlega yfir það, sem við kemur persónulegri hirðu og framkomu, heilsusamlegum lifnaðarháttum og heilsuvernd. Nokkuð ítarlega er kennd hjálp í viðlögum, sérstaklega lögð áherzla á slys í heimahúsum, rétt viðbrögð við beinbrotum, bruna, rafmagnsslysum, blæðingum, köfnun og eitrun. Kennd er lífgun úr dauðadái, bæði með blástursaðferð og hjartahnoði. Í uppeldis- og sálarfræði er lögð sérstök áherzla á þau atríði, sem að gagni mega koma á stofnun við uppeldi vangefinna barna og umgengni við fávita almennt. Þá er lögð áherzla á að kenna nemum einfalt föndur með það fyrir augum, að nemarnir geti leiðbeint vistfólki bæði börnum og fullorðnum við ýmiss konar föndurgerð, svo sem pappírsföndur, saum, tóvinnu og því um líkt. Nemar eru æfðir í að syngja og leika létt sönglög, einkum gítarleik eða blokkflautuleik, og er stefnt að því, að nemar geti aðstoðað vistfólk við söng á deildum.
Eins og fyrr segir, er námstíminn tvö ár og skiptist þannig, að bókleg kennsla er um 12 stundir á viku og fellur inn í vinnutímann, þannig að vinnutíminn styttist að þessu marki. Fyrstu þrír mánuðir námstímans skoðast sem reynslutími af beggja hálfu, og hætta nemar að þeim tíma loknum, ef þeim fellur ekki starfið eða er bent á að hætta, ef forstöðumaður skólans telur þeim ekki henta starfið.
Fyrstu ár skólans voru nemar aðeins 2–3. Þannig útskrifuðust á árinu 1960 2, á árinu 1961 3, en síðustu ár hefur nemum fjölgað, þannig að á árinu 1969 útskrifuðust 9 gæzlusystur og á árinu 1970 7 gæzlusystur. Alls hafa útskrifazt 47 gæzlusystur frá upphafi hér innanlands.
Eins og sést á þessu yfirliti, þá hefur skóli gæzlusystra verið í allföstu kennslu- og rekstrarformi um 10 ára bil. Hann hafði þegar mótazt í því formi, sem hann er nú, þegar lög um fávitastofnanir voru sett og þegar segja má, að þetta nám hafi verið lögfest.
Þegar lög um fávitastofnanir voru sett, var vitað, að um gagngerðar breytingar var að ræða í fræðslulögum almennt og því yrði sennilega nauðsynlegt að samræma inntökuskilyrði, námsefni og námið sem heild nýjum fræðslulögum. Af þessum sökum var það álit stjórnarnefndar ríkisspítalanna og forstöðumanns skólans, að bíða ætti með setningu reglugerðar, þar til séð yrði, hvernig nám gæzlusystra gæti tengzt eðlilega hinu almenna skólakerfi, og því hefur skólinn verið rekinn eftir setningu laga um fávitastofnanir eins og áður, en gera verður ráð fyrir því, og ég lýsi því yfir sem vilja mínum nú, að fljótlega verði hægt að marka þessum skóla sess í kennslukerfinu í eðlilegum tengslum við aðra skóla, sem mennta hjálpar- og hjúkrunarlið á heilbrigðisstofnunum. Ég tel eðlilegt, að í sambandi við setningu þeirrar reglugerðar verði höfð hliðsjón af þeirri reynslu, sem fengin er á undanförnum árum af rekstri þessa skóla, og haft verði samstarf við gæzlusystur við setningu reglugerðarinnar.