23.02.1971
Sameinað þing: 27. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 735 í D-deild Alþingistíðinda. (4521)
204. mál, Sementsverksmiðja ríkisins
Forsrh. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Ég skal láta liggja á milli hluta þá staðhæfingu, sem felst í 1. málsl. fsp., um að bráðabirgðaástand hafi ríkt um stjórn Sementsverksmiðju ríkisins, sem hafi þjakað rekstur hennar á þriðja ár og skapað óánægju og óvissu hjá starfsliði hennar. Það er hins vegar spurt um það, hvað líði störfum nefndar þeirrar, sem skipuð var til þess að endurskoða lögin um Sementsverksmiðjuna. Þessari endurskoðun er um það bil lokið. Ég átti hálfpartinn von á því jafnvel að fá nál. í dag eða á morgun, svo að það kemur nú í ljós innan tíðar.
Þá er spurt, hvort nefndin hafi haft samráð við starfslið verksmiðjunnar við þessa endurskoðun. Mér er kunnugt um það, að nefndin kynnti sér staðhætti, sumir nefndarmenn voru mjög kunnugir staðháttum þegar við rekstur Sementsverksmiðjunnar, en nefndin gerði sér einnig ferð upp eftir til þess að kynna sér sem bezt aðstæður. En við þessu vil ég einnig bæta því, að á liðnu hausti fóru á vegum ríkisstj. eða á kostnað ríkisstj. fulltrúar til Noregs til þess að sitja þar ráðstefnu um hið svokallaða atvinnulýðræði, sem nú er nokkuð mikið talað um, þ. e. að koma upp samstarfsnefndum í fyrirtækjum við stjórnun þeirra að einhverju eða öllu leyti. Ég á einnig von á alveg á næstunni að fá grg. frá þeim aðilum, sem fóru á þessa ráðstefnu, en það voru framkvæmdastjóri Iðnaðarmálastofnunar Íslands, sem var formaður nefndarinnar, og fulltrúar frá Alþýðusambandinu og Vinnuveitendasambandinu. Mér hefur verið tjáð, að um það sé samstaða innan nefndarinnar, að það væri mjög æskilegt að koma á slíkum samstarfsnefndum, eins og mjög hefur færzt í vöxt hjá frændum okkar á Norðurlöndum. Ég vildi aðeins bæta þessu við, til þess að það lægi fyrir að öðru leyti. En þess má vænta, að störfum nefndarinnar sé nú um það bil að ljúka í dag.