23.02.1971
Sameinað þing: 27. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 739 í D-deild Alþingistíðinda. (4527)
204. mál, Sementsverksmiðja ríkisins
Fyrirspyrjandi (Jónas Árnason):
Herra forseti. Ég treysti mér ekki til þess að svara hv. 7. þm. Reykv. eða þeirri fullyrðingu hans, að flokksbræður mínir hafi fyrir 9 árum greitt atkv. gegn till., sem hann hafi flutt hér um samstarfsnefndir. Mér er ekki kunnugt um, hvaða till. hér er um að ræða. Maður er engu nær eftir fullyrðingar hv. þm., og þess vegna segi ég, að ég treysti mér ekki til þess að svara þessu. Hins vegar vil ég benda á það, að á dagskránni í dag er þáltill., flutt af mér, sem sé till., sem er flutt á vegum okkar Alþb.-manna, og þessi þáltill. um atvinnulýðræði hefur verið flutt þing eftir þing. Ég hygg, að það séu 6–7 ár eða jafnvel enn lengra síðan hún var flutt fyrst, og sá áhugi, sem nú er fyrir atvinnulýðræði hér í þingsölum, ég er sannfærður um það, að hann er ekki hvað sízt árangur af baráttu okkar Alþb.-manna fyrir þessum málum hér á þingi.
Eins og hæstv. forseti sagði, hef ég aðeins leyfi hér til þess að gera aths. En ég vil aðeins gera aths. í sambandi við það, sem hv. þm. Daníel Ágústínusson sagði hér áðan. Hv. þm. er ekki þaulkunnugur þingstörfum, að ég hygg. Hann er varaþm. og hefur ekki setið á þingi mikið áður, og ekkert þetta kjörtímabil, fyrr en núna skyndilega, að hann kemur á þing, þegar nær dregur svona vissum hlutum í vor. Ég vil leyfa mér að benda þessum hv. þm. á það, að það er takmarkaður ræðutími, sem menn hafa til þess að fylgja eftir þessum fsp. með ræðu, og reyndar hefur mjög dregið úr ræðuflutningi í sambandi við fsp., hamingjunni sé lof, og menn taka æ meira upp þann háttinn að láta nægja svarið. Svo er þetta kallað, að menn séu að halda revíur og efna til söngleikja. Ég ætla nú ekki að fara út í nein leikræn spursmál í þessu sambandi, en ég vil aðeins benda hv. þm. á það, að þegar ég tala um, að rekstur Sementsverksmiðjunnar hafi verið þjakaður á þriðja ár vegna óvissunnar, sem þar ríkir, þá á ég við rekstur verksmiðjunnar.
Hv. þm. segir okkur þær fréttir, að menn hafi verið mjög ánægðir á árshátíð í starfsmannafélagi Sementsverksmiðjunnar, þar hafi menn verið afskaplega ánægðir. Þetta segir þessi hv. þm. í sambandi við þá fullyrðingu mína, að rekstur Sementsverksmiðjunnar hafi verið þjakaður. Ég segi enn, ég var að tala um rekstur Sementsverksmiðjunnar, en ég var ekki að spyrja frétta af þorrablóti uppi á Akranesi, þó að ég hins vegar gleðjist yfir því, að vinir mínir við Sementsverksmiðjuna hafi skemmt sér vel og eigi von á sumarbústöðum.