23.02.1971
Sameinað þing: 27. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 742 í D-deild Alþingistíðinda. (4531)

204. mál, Sementsverksmiðja ríkisins

Forsrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Nú segi ég eins og Hannibal Valdimarsson sagði áðan, nú kem ég alveg af fjöllum, þegar verið er að tala um linlega framkomu mína í sambandi við málaferli og erfiðleika í sambandi við Sementsverksmiðju ríkisins. Þau mál hlutu þá meðferð, sem þeim bar, bæði að áliti dómsmrh. og iðnrn. og saksóknara ríkisins, og skal ég ekki frekar fara út í það, en tel algerlega óviðurkvæmilegt nú að koma með getsakir í minn garð sem ráðh., að ég hafi tekið linlega á þeim málum, því að þau voru fyrst og fremst í höndum saksóknara ríkisins, yfirskattstjórans og annarra, sem lögum samkv. eiga að fjalla um þau mál.

Það var ekki meining mín, þegar ég var að svara þessari fsp., að hefja umr. um Sementsverksmiðjuna og þær till., sem nefndin, sem hefur unnið að endurskoðun á lögum Sementsverksmiðjunnar, kann að gera, því að ég hef ekki séð þær enn þá. En þegar nefndin var skipuð, fékk hún erindisbréf um það, að hverju hún skyldi starfa, og þar var ekki aðeins um forstjóra eða stjórnun fyrirtækisins að ræða, heldur byggðist þetta á því, að gömlu lögin um Sementsverksmiðjuna voru ákaflega ófullkomin og voru í raun og veru aðeins heimildarlög, heimild fyrir ríkisstj. til þess að láta reisa sementsverksmiðjuna. En margt hefur skeð síðan, og þetta er orðið stórt og mikið fyrirtæki, og mörg málefni hafa komið fram einmitt í sambandi við verksmiðjurekstur og atvinnurekstur, sem eðlilegt var að setja í slík lög, og þannig ábendingar fékk nefndin, sem vann að þessum málum. Þar á ég við bæði í sambandi við hreinlætismál og mengun og annað slíkt, því að það eru nú að vísu sumir, sem ekki vilja tala um mengun nema frá álbræðslunni, en því miður er það svo, að í efnaiðju hér og efnarekstri öðrum er það atriði, sem þarf að taka til athugunar, enda ekkert einstakt fyrirbrigði hjá okkur, og það á auðvitað sérstaklega við um eldri verksmiðjur. En ný tækni færir okkur á þessu sviði í betra horf en áður.

Varðandi stjórnun fyrirtækisins, þá hefur eins og vikið er að í fsp. verkfræðingur verið framkvæmdastjóri verksmiðjunnar til bráðabirgða. En jafnhliða honum var ráðinn til bráðabirgða fjármálalegur framkvæmdastjóri. Þetta vildi ég, að fram kæmi. Það var leitað eftir verkfræðingum á sínum tíma, bæði til Verkfræðingafélagsins og auglýst eftir verkfræðingum, og í bili tókst það ekki, en síðan tókst verksmiðjunni að fá erlenda sérfræðinga, tæknisérfræðinga og verkfræðinga, til aðstoðar verksmiðjustjórninni og nú síðari árin íslenzkan verkfræðing, sem ég veit ekki betur en hafi sinnt sínu starfi vel.

Um samstarfsnefndirnar eða atvinnulýðræði í rekstri ríkisfyrirtækja og samstarfsnefndir í stjórnun fyrirtækja, þá hef ég aldrei aðeins átt við ríkisfyrirtæki, heldur einnig einkafyrirtæki, og það voru fyrst ungir sjálfstæðismenn, sem vöktu athygli á því hér á árunum fyrir 1930, þeim möguleika að sætta fjármagn og vinnu og koma í veg fyrir deilur, sem við höfum nú heimsmet í, eftir því sem sjónvarpið sagði í gærkvöld, varðandi verkföll og sífelldar deilur á milli verkamanna og fyrirtækjanna, sem þeir vinna við. Magnús Jónsson prófessor og þm. var einn þeirra manna, sem á þessum árum skrifaði mjög mikið í tímaritið Stefni um slíka bót á rekstri fyrirtækja hér, um hlutdeild verkamanna í atvinnurekstrinum og aukið samstarf þar á milli. Ég hef viðurkennt það alveg hispurslaust, að okkur hefur ekki tekizt að ná þeim árangri, sem við töldum æskilegt á sínum tíma að ná á þessum vettvangi. Það var m. a. þess vegna, sem við vildum eiga samleið og styðja Alþýðusambandið og Vinnuveitendasambandið til þátttöku í ráðstefnu í Osló um hið svokallaða atvinnulýðræði, sem haldin var, ef ég man rétt, í nóvembermánuði. Ég hef ekki fengið grg. frá þessum aðilum, sem þessa ráðstefnu sóttu, en ég veit, að það er mikið málefni frá henni, og ég hef lagt drög að því oftar en einu sinni að fá það sem fyrst í hendur ríkisstj., því að ég tel, að það sé líka rétt og skylt, að fulltrúar, sem fara að einhverju leyti á kostnað ríkisvaldsins, geri grein fyrir niðurstöðum á erlendum ráðstefnum, sem þeir eru á. Ég veit, að þessu er nú lokið, og ég vænti næstu daga einmitt að fá þessa grg. um þessa hlið málanna í hendur ríkisstj. til frekari athugunar. Ég hef sjálfur aðhyllzt þá meginleið, að hér væri frekar byggt á frjálsu samkomutagi við starfslið í fyrirtækjum, hvort sem það væru einkafyrirtæki eða ríkisfyrirtæki, en lögþvinguðum samstarfsnefndum. Það kemur eflaust til kasta Alþ. síðar að taka ákvarðanir um það, og það er í sjálfu sér ekkert við því að segja, þó að skiptar skoðanir kunni að vera á þeim vettvangi, en ég held fyrir mitt leyti, að við séum þar á réttri leið og gætum stuðlað að verulegum úrbótum í rekstri fyrirtækjanna hérlendis, bæði einkafyrirtækja og opinberra fyrirtækja.