02.03.1971
Sameinað þing: 29. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 743 í D-deild Alþingistíðinda. (4535)
352. mál, eftirlit með skipum
Fyrirspyrjandi (Pétur Sigurðsson):
Herra forseti. Eins og þm. munu minnast, urðu nokkur vandkvæði á því, að samþykkt fengist á stjfrv. um Siglingamálastofnun ríkisins, sem var til umr. hér á síðasta þingi. Ég held, að það sé samdóma álit þeirra, sem til þekkja, að það, sem m. a. olli því, að samkomulag náðist og samþykkt á því frv. og öðrum fylgifrv., var samþykkt þingsins á 44. gr. laga um eftirlit með skipum. En grein þessi fjallar um rannsóknarnefnd sjóslysa. Í grein þessari segir m. a., með leyfi forseta:
„Hlutverk rannsóknarnefndar sjóslysa er að fylgjast eftir föngum með starfi sjódóma, safna saman upplýsingum, sem skýrt geta eða upplýst orsakir sjóslysa, miðla slíkum upplýsingum til sjómannaskóla, sjómanna og útgerðarmanna og gera tillögur um ráðstafanir til að draga úr slysahættu á sjó.“
Þegar haft er í huga, að nú er komið að lokum yfirstandandi skólaárs í sjómannaskólum okkar, með það í huga og aðra þá nauðsynlega kynningarstarfsemi, sem hefði átt að fara fram samkv. þessari lagagr., hef ég leyft mér á þskj. 347 að bera fram fsp. á þessa leið:
„Hvað dvelur skipan rannsóknarnefndar sjóslysa, sem skipa á samkv. lögum frá 30. apríl 1970, um eftirlit með skipum?“