09.03.1971
Sameinað þing: 32. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 753 í D-deild Alþingistíðinda. (4558)
353. mál, flugvallargerð á höfuðborgarsvæðinu
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Möguleikar núverandi Reykjavíkurflugvallar virðast of takmarkaðir til þess, að hann geti gegnt hlutverki flugvallar Reykjavíkursvæðisins um langa framtíð. Ekki verður þó annað séð en innanlandsflug geti nokkuð lengi farið um Reykjavíkurflugvöll með fullnægjandi öryggi og án verulegra endurbóta á flugvellinum. Þegar frá líður, má gera ráð fyrir, að innanlandsflug verði einnig að víkja af Reykjavíkurflugvelli vegna truflana af hávaða, þegar þotur verða teknar í notkun á innanlandsleiðum eða hagkvæmt verður að taka flugvallarsvæðið til annarra nota eða af öðrum orsökum.
Millilandaflug hefur nú að langmestu leyti verið flutt til Keflavíkurflugvallar, og er það án efa rétt stefna, þar sem öryggisbúnaður er þar verulega meiri og öryggi og allur aðbúnaður fyrir farþega og flugrekstur mun stórbatna og verða með því fullkomnasta, sem þekkist erlendis, þegar fyrirhuguðum endurbótum á Keflavíkurflugvelli lýkur. Aftur á móti hefur það verið skoðun flestra þeirra, sem um flugvallarmál höfuðborgarsvæðisins hafa fjallað undanfarin ár, að ekki væri unnt að gera ráð fyrir því, að innanlandsflug flyttist til Keflavíkurflugvallar, aðallega sakir þess, að við það yrða hlutfallslega mikil aukning bæði á ferðatíma og ferðakostnaði. Hins vegar hefur verið bent á, að nauðsynlegt væri að taka frá land á höfuðborgarsvæðinu eða í næsta nágrenni, þar sem gera mætti flugvöll, ef með þyrfti í framtíðinni, sem fullnægði þörfum innanlandsflugsins. Þó að æskilegt sé að taka fljótlega ákvörðun um frátöku lands vegna hugsanlegs flugvallar, er hvorki nauðsynlegt né tímabært að taka ákvarðanir um sjálfa flugvallargerðina, fyrr en fyllri undirbúningsrannsóknir hafa farið fram og aðstæður varðandi málið skýrast frekar í smærri atriðum.
Það er samhljóða álit sérfræðinga á sviði flugmála,að skilyrði til flugvallargerðar í nágrenni Reykjavíkur séu bezt á Álftanessvæðinu. Hafa athuganir því aðallega beinzt að því svæði, og þar kemur fyrst og fremst til greina að taka frá land til flugvallargerðar. Hins vegar er eitt af flugvallarstæðum höfuðborgarsvæðisins í Kapelluhrauni sunnan Hafnarfjarðar, og var lega Reykjanesbrautar norðan Kúagerðis svo og staðsetning mannvirkja álbræðslunnar í Straumsvík og háspennulína frá Búrfelli að Straumsvík sunnan Reykjanesbrautar m. a. ákveðin með hliðsjón af því, að ekki væru skertir möguleikar til flugvallargerðar í Kapelluhrauni í framtíðinni.
Flugvallargerð í Kapelluhrauni yrði mjög ódýr, og umferð mundi ekki valda teljandi truflun í byggð höfuðborgarsvæðisins, og enn fremur er flugvallarsvæðið í eigu ríkisstofnunar. Gallinn er hins vegar sá, að þetta er talið lakasta flugvallarstæðið frá flugtæknilegu sjónarmiði, einkum vegna misvinda frá Lönguhlíðarfjöllum, sem torvelda aðflug, svo og vegna minni skýjahæðar en á Álftanesi. Þó var talið nauðsynlegt að gera kerfisbundnar athuganir á flugskilyrðum á þessu svæði, áður en ákvörðun yrði tekin um flugvallarmál höfuðborgarsvæðisins.
Sumarið 1968 fór fram nokkur athugun á flugskilyrðum á hugsanlegu flugvallarsvæði í Kapelluhrauni. Var álit sérfræðinga neikvætt. Samkv. ákvörðun samgrn. voru síðar gerðar yfirgripsmiklar athuganir í sama skyni undir stjórn Leifs Magnússonar, framkvæmdastjóra Flugöryggisþjónustunnar, veturinn 1969–1970 og sumarið 1970. Voru flogin 210 tilraunaflug, og skilaði Leifur Magnússon um þau ítarlegri skýrslu dags. 8. des. f. á. Í niðurstöðum skýrslunnar er talið, að flugvöllur í Kapelluhrauni mundi ekki geta uppfyllt þær kröfur, sem gera verður til hans um notagildi miðað við almennar reglur, vegna nálægra hindrana í austri og suðri og notagildi slíks flugvallar miðað við Reykjavík og sama aðflugsbúnað yrði allt að 11% minna.
Ekki hefur verið samstaða meðal þeirra, sem rn. hefur falið athugun málsins, um það, hvaða hlutverki Keflavíkurflugvöllur ætti að gegna í framtíðarskipan flugvallarmála höfuðborgarsvæðisins og hvers konar flugvelli væri rétt að gera ráð fyrir á Álftanessvæðinu. Ágreiningurinn er í stuttu máli fólginn í því, sem kemur fram í skýrslu síðustu flugvallarnefndar, sem skilaði áliti 18. maí 1967. Meiri hl. nefndarinnar lagði til, að framtíðarmiðstöð millilandaflugs höfuðborgarsvæðisins yrði á Keflavíkurflugvelli, en á Álftanesi væri tekið frá svæði vegna þarfa innanlandsflugs eftir megintilhögun. Minni hl. nefndarinnar taldi rétt að gera ráð fyrir framtíðarmiðstöð alls innanlands- og millilandaflugs annars en hernaðarflugs á Álftanesi og að framkvæmdir samkv. megintilhögun yrðu hafnar sem fyrst. Síðan yrði Reykjavíkurflugvöllur og innlend starfsemi á Keflavíkurflugvelli lögð niður. Heitin X og L eru sprottin af innbyrðis afstöðu flugbrauta miðað við þessar tvær till.
Í meginatriðum verður að fallast á sjónarmið meiri hl. nefndarinnar. Sýnist ekki raunhæft að gera ráð fyrir, að Keflavíkurflugvöllur verði lagður niður, meðan flug er rekið í svipaðri mynd og nú er. Gildir þetta einnig, þótt byggður yrði flugvöllur samkv. till. L á Álftanesi, enda eru flugbrautir í Keflavík nú þegar lengri og fleiri en mögulegt er að koma fyrir á Álftanesi. Verður að álíta, að Keflavíkurflugvöllur verði um langa framtíð talinn ómissandi flugvöllur fyrir alþjóðlegt Atlantshafsflug, hver sem verður þróun herstöðvar þar, auk þeirra nota, sem íslenzk flugstarfsemi mun hafa af vellinum. Kemur ekki til mála annað en hin miklu mannvirki Keflavíkurflugvallar verði nýtt á sem hagkvæmastan hátt.
Við ákvarðanir um frátöku lands undir fyrirhugaðan flugvöll á Álftanesi virðist rétt að hafa hliðsjón af því fyrirkomulagi, sem nefnt hefur verið tilhögun X, og eru í því sambandi einkum hafðar í huga þarfir innanlandsflugs. Með því fyrirkomulagi mætti koma fyrir 1800 og 1400 m flugbrautum og nauðsynlegum öryggissvæðum og aðflugsljósum að mestu leyti á landi ríkissjóðs á Bessastaðanesi. Þess má geta, að sú lengd flugbrauta mundi nægja minni gerðum af þotum, þ. á m. þotu þeirri, sem Flugfélag Íslands nú á. Ef ástæða þætti til, mætti lengja flugbrautirnar báðar í 2300 m. Þó er ekki fyrirsjáanlegt, að þörf verði svo langra brauta miðað við það hlutverk, sem flugvelli af X-gerð yrði ætlað, a. m. k. alls ekki þverbraut flugvallarins.
Fyrirkomulag þetta hefur þrjá meginkosti í sambandi við annað. Í fyrsta lagi yrði tiltölulega útgjaldalítið að tryggja land samkv. því, þar sem kaupa þarf fremur lítið land í einkaeign og eingöngu land, sem ekki er talið vel hæft til íbúðarhúsabygginga. Í öðru lagi yrði forsetasetrið að Bessastöðum utan marka flugvallarins og í beinum tengslum við íbúðahverfið á Álftanesi. Í þriðja lagi liggja byggð svæði eða byggileg í nokkurri fjarlægð frá flugbrautum og flugbrautarendum, þannig að tæplega yrði veruleg truflun af hávaða í byggð í nágrenni hans miðað við þess konar umferð, sem gert er ráð fyrir, þ. e. umferð tiltölulega léttra flugvéla að degi til, enda færi umferð, sem truflaði meira, um Keflavíkurflugvöll.
Fyrir meginbyggð höfuðborgarsvæðisins virðist truflun af hávaða fljótt á lítið vera meiri í tilhögun X en í tilhögun L. Þegar betur er að gáð, breytist þó viðhorfið, enda fara óþægindi af hávaða í nágrenni flugvallarins eftir umferðarmagni og þyngd flugvéla auk fjarlægðar og brautarstefnu. Verður að ætla, að umferð yrði minni og léttari um X en L og öll umferð, sem veruleg truflun væri að, færi um Keflavíkurflugvöll.
Niðurstaðan er því sú, að flugvöllur með fyrirkomulagi X sé í samvinnu við Keflavíkurflugvöll fullnægjandi fyrir það hlutverk, sem honum væri ætlað í flugstarfsemi í framtíðinni. Jafnframt er sú skipun hagkvæmust fjárhagslega af þeim, sem til greina koma og eru fullnægjandi lausn, þegar gert er ráð fyrir örum vexti á flutningum í lofti. Um leið væri fjáröflun vegna landakaupa innan viðráðanlegra marka, og ætti ekki að þurfa að draga úr fjármagni til mikilvægra þátta flugstarfseminnar víða um land.
Samkv. hugmynd meiri hl. síðustu flugvallarnefndar, sem virðist aðgengilegust lausn, mundi þurfa að tryggja ríkinu til ráðstöfunar eftir 1985 nokkurt land, sem nú er í einkaeign, þ. e. land jarðanna Breiðabólstaðar, Akraness og Landakots á Álftanesi. Að gera flugvöll af L-gerð samkv. till. minni hl. síðustu flugvallarnefndar mundi krefjast eignarnáms eða kaupa á 16 jörðum á Álftanesi, og auk þess væri þá útilokað, að forsetasetur gæti áfram verið að Bessastöðum, og gera þyrfti ráð fyrir fé til að byggja nýtt forsetasetur.
Niðurstaðan af athugunum rn. í málinu í heild er sú, að æskilegt sé að tryggja land fyrir flugvöll af gerð X eftir 1985. Mun rn. fljótlega óska viðræðna án allra skuldbindinga við eigendur þeirra þriggja jarða í einkaeign, sem slíkur flugvöllur mundi ná til, um kaup jarðanna miðað við afhendingu eftir 1985, takmörkun varanlegrar mannvirkjagerðar, en venjulega ábúð að öðru leyti. Reynt verður að ljúka viðræðum og öðrum athugunum fyrir haustið og afla þá fjár til kaupanna, ef aðgengilegir kostir bjóðast um verð og greiðsluskilmála.