09.03.1971
Sameinað þing: 32. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 761 í D-deild Alþingistíðinda. (4564)

353. mál, flugvallargerð á höfuðborgarsvæðinu

Fyrirspyrjandi (Jón Skaftason):

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð út af því, sem hv. 1. þm. Reykn. sagði hér áðan. Ég vil taka það fram, að að sjálfsögðu er mér það ljóst, eins og vafalaust öllum alþm., að það er Alþingis að taka endanlega ákvörðun um þetta mál, hvort hér verður gerður flugvöllur og hvar hann verður gerður. Hitt er þó ljóst, að flugmálayfirvöld með hæstv. ráðh. í broddi fylkingar hljóta að hafa alla forustu um þetta og undirbúa málin, eins og þau raunar hafa gert með þeirri athugun, sem gerð hefur verið á þessu, og síðan er það væntanlega þeirra að leggja fyrir Alþ. það, sem þau vilja í þeim málum gera.

Það er misskilningur hjá hæstv. ráðh., að ég hafi haldið því fram áðan, að skipulagsmálum sveitarfélagsins alls væri haldið í klemmu út af þessum bollaleggingum um flugvallargerð á Álftanesi. Ég tók það fram, að það væru þrjár jarðir, sem haldið væri í klemmu út af þessum umr., og ég las því til undirstrikunar upp úr bréfi, sem mér hafði borizt frá eiganda og ábúanda einnar þessarar jarðar, svo að ég vona, að hæstv. ráðh. taki þessa leiðréttingu til athugunar.

Þá sagði hæstv. ráðh., að Reykjavíkurflugvöllur mundi gegna áfram hlutverki sínu sem innanlandsflugvöllur allt til ársins 1985, og væntanlega mundi það land, sem flugvöllurinn nú stendur á, hækka í verði til þess tíma, að hann yrði lagður niður, er að því kemur. Ekki skal ég um það segja. Það er þó mjög sennilegt, en hitt leyfi ég mér að draga fyllilega í efa, að allar þær framkvæmdir, sem gerðar hafa verið á undanförnum árum á Reykjavíkurflugvelli flugsins vegna, og allar þær framkvæmdir, sem koma til með að verða gerðar á Reykjavíkurflugvelli til ársins 1985, fáist greiddar, þó að land þetta verði tekið undir íbúðarbyggingar einhvern tíma í framtíðinni. Og það er m. a. þetta atriði, sem ég á aðallega við, þegar ég segi, að þjóðfélagið sem heild tapi á því, að ákvörðun í þessum efnum sé ekki tekin.