09.03.1971
Sameinað þing: 32. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 761 í D-deild Alþingistíðinda. (4565)
353. mál, flugvallargerð á höfuðborgarsvæðinu
Geir Hallgrímsson:
Herra forseti. Út af þeim umr. sem hér hafa spunnizt um flugvallarmál, vildi ég aðeins láta það koma fram, að það er mín skoðun, að nauðsynlegt sé að skoða betur álit minni hl. flugvallarnefndar, það álit, er hné að því að byggja fullkominn millilandaflugvöll á Álftanesi, áður en ákveðið er að takmarka sig við minni flugvöll þar. Ég á ekki við með þessari skoðun minni, að í henni felist, að nauðsynlegt sé eða fært sé að ráðast strax í framkvæmdir við gerð fullkomins millilandaflugvallar á Álftanesi, en hér er um svo öra þróun að ræða á sviði flugmála og svo mikil verðmæti í húfi og miklir hagsmunir varðandi flugsamgöngur, að ekki er tiltökumál að taka frá nokkurt landssvæði, þótt það væri gert aðeins um nokkurt árabil, til þess að eiga fleiri kosta völ, þegar endanlegar ákvarðanir verða teknar. Því vil ég láta það koma fram í þessum umr., að ég tel nauðsynlegt að skoða minnihlutaálitið nánar, áður en menn takmarka sig við minni gerð flugvallar á Álftanesi.