09.03.1971
Sameinað þing: 32. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 762 í D-deild Alþingistíðinda. (4566)
353. mál, flugvallargerð á höfuðborgarsvæðinu
Geir Gunnarsson:
Herra forseti. Vegna þess að hæstv. ráðh. leiddi hjá sér að svara þeirri spurningu, sem ég beindi hér til hans áðan, þá vildi ég gjarnan ítreka hana, en hún var á þá leið, hvort hæstv. ráðh. telur, að með ákvörðunum samgrn. og skipulagsyfirvalda hafi ríkið nú þegar verið bundið skyldum til þess að kaupa þrjár jarðir á Álftanesi eða hluta þeirra, en ég hef fyrir mér álit skipulagsfróðra og lagafróðra manna um það, að einmitt þannig sé þessu nú komið, en það kalla ég að fara aftan að hlutunum.