09.03.1971
Sameinað þing: 32. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 766 í D-deild Alþingistíðinda. (4573)

353. mál, flugvallargerð á höfuðborgarsvæðinu

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Þótt ég hafi aðeins talað einu sinni, skal ég vera stuttorður og ekki tefja fundarstörf, en úr því að skoðanir voru eftir mér hafðar hér úr ræðustól áðan af hv. þm. Gils Guðmundssyni, þá vil ég aðeins skýra nánar skoðun mína á þessu máli. Ég tók ekki afstöðu til þess, hvort byggja ætti stóran eða lítinn flugvöll á Álftanesi. Ég tók það aðeins fram sem skoðun mína, að það ætti að kanna það mál nánar, m. a. áður en horfíð væri frá minnihlutaáliti nefndar þeirrar, sem um þetta mál hefur fjallað, og einkum lagði ég áherzlu á, að það væri e. t. v. hagkvæmt að taka frá meira en minna landssvæði þegar í upphafi til þess að eiga fleiri kosta völ, þegar fram liðu stundir og þróunin væri ljós.